Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011
28.8.2011 | 01:22
Neituðu barni um vatn í fimm daga - lést úr ofþornun
Maður á ekki til eitt aukatekið orð yfir þeirri mannvonsku sem hér hefur verið beitt!
Hvernig er komið fyrir heiminum þegar að fólk beitir slíkum refsiaðgerðum gagnvart börnum sínum? Mér finnst ég heyra svona fréttir oftar og oftar á seinni árum, kannski hefur þetta alltaf verið svona.
Vona að þau dúsi í eins littlum klefa og fæst, í þau ár sem þau eiga eftir, fyrir þennann verknað.
http://visir.is/neitudu-barni-um-vatn-i-fimm-daga---lest-ur-ofthornun/article/2011110829015
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2011 | 00:50
Victoria Beckham makar á sig fuglasaur
Það sem fræga fólkið gerir ekki til að halda við "fegurðinni" eða heldur það að minnsta kosti!
Ekki skal ég draga í efa að þetta sé rétt, en ég skal heldur ekki selja þetta nokkrum manni án minnstu sannanna!!!
Victoria Beckham makar á sig fuglasaur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2011 | 00:44
Wenger vill fá þrjá leikmenn
Greyið mitt, af hverju fórst þú ekki fyrr af stað með að kaupa ????
Nú situr þú kannski upp með að engin vill koma til félagsins, eða þá að það er einfaldlega of seint!!
Wenger vill fá þrjá leikmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2011 | 22:40
Sir Alex: Það hefur enginn gert meira fyrir Arsenal en Wenger
Fallega sagt hjá einum mesta meistara fótboltasögunnar í gegnum tíðinna, er hann að blíðka Arsenal menn fyrir leikinn á sunnudag með þessum orðum eða er hann að tala frá hjartanu??
Veit það ekki, en eitt er víst, að ef Arsenal tekst að sigra á sunnudag, þá geta menn ekki annað en dáðst að Arsene Wenger!
http://visir.is/sir-alex--thad-hefur-enginn-gert-meira-fyrir-arsenal-en-wenger/article/2011110829172
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2011 | 22:29
Geir: Ímynd íslenskrar knattspyrnu ósködduð!!!!!
Þvílíkt og annað eins að hlusta á!, á hvaða plánetu býr okkar ágæti formaður KSÍ ?
Hann talar eins og hann sé ekki í tengslum við raunveruleikann, hann gerir sér varla grein fyrir því að landslið okkar er sokkið niður í hyldýpi ókannaðs svæðis!
Hér eru nokkur korn frá Geir frá téðum blaðamannafundi:
Hann segir: " Ég hef marglýst þeirri skoðun minni að það sem okkur skiptir mestu máli eru úrslitin í leikjum okkar í undankeppnum stórmóta,
"Við höfum ekki horft til þess að vera vera taktískari í því að velja okkur andstæðinga í þeim tilgangi að koma okkur ofar á listanum. Það hefur ekki verið okkar markmið.
"Við höfum ekki horft til þess að vera vera taktískari í því að velja okkur andstæðinga í þeim tilgangi að koma okkur ofar á listanum. Það hefur ekki verið okkar markmið. ?????
Hvað er þessi maður að gera sem formaður KSÍ ? er einhver glóra í þessu, það er ekki bara vandamál í þjálfun liðsins heldur fyrst og fremst í stjórn sambandsins í heild sem gerir það að ekki næst betri árangur en raun ber vitni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2011 | 22:01
Giggs: Má aldrei vanmeta Arsenal
Fallega sagt af meistara Giggs, en þetta er bara einn hluti í sálfræði Man U gegn Arsenal á sunnudag, þar sem að Arsenal á undir högg að sækja, enda ekki sýnt enn sem komið er að þeir séu á meðal þeirra bestu eins og staðan er í dag.
Arsenal er enn virkilega gott lið með gæðaleikmenn. Þegar liðið dettur í gírinn getur það unnið hvaða lið sem er í Evrópu. Þeir hafa sýnt það í gegnum árin. Ég veit að það er eitthvað um meiðsli hjá liðinu og það hefur misst nokkra leikmenn en samt sem áður eru gæðin fyrir hendi.Arsenal hefur frábæran knattspyrnustjóra, þetta er frábært félag sem aldrei má vanmeta,
Giggs: Má aldrei vanmeta Arsenal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2011 | 20:48
Níu milljóna afgangur af rekstri spítalans
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans hreykir sér af góðum árangri spílalanna á síðasta ári, "Þetta er eins og við höfum talað um og ég hef áður nefnt frábær árangur, samtakamáttur starfsmanna sýndur enn einu sinni,"
Frábær árangur!! Hvað finnst ykkur ??
http://visir.is/niu-milljona-afgangur-af-rekstri-spitalans/article/2011110829158
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2011 | 17:50
Wenger: United er sigurstranglegast
" Þeir hafa náð að endurnýja sitt lið vel, miðað við árið þar á undan, og eru enn með reynda og öfluga menn á bekknum. Síðasta sunnudag sátu þar til dæmis þeir Berbatov, Giggs, Carrick og Park, sem gætu allir byrjað inná gegn okkur," sagði Wenger.
Af hverju í ósköpunum er hann ekki einnig búinn að gera ráðstafanir og kaupa reyndari menn til að hafa i bland við unglingana sína??
Hann getur ekki endalaust keypt menn í unglingaflokki og ætlast til að titill vinnist, hann hefur nóg fjárráð en tímir ekki að kaupa neinn, og þegar að hann hefur selt alla fræga og góða í liðinu vill engin koma til liðsins, það trekkir bara ekkert að lengur.
Wenger: United er sigurstranglegast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2011 | 23:47
Glerhjúpur Hörpunnar afhjúpaður í kvöld
Ég veit ekki hvers vænta mátti er ég beið eftir því að sjá þennann glerhjúp tendraðan í ljósadýrð þeirri er menn hafa talað um, en ég varð fyrir miklum vponbrigðum svo ekki sé nú meira sagt, einnig varð ég fyrir vonbrigðum með flugeldasýninguna sem að mér fannst öll á einum punkti, allt skotið upp á sama ranni, í stað þess að dreifa henni á lengri flöt!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.8.2011 | 23:47
Paul Krugman og tíu ára spádómar hans
Paul Krugman er nóbelsverðlaunahafi í hagfræðum og er frá Bandaríkjunum, hann er iðinn við að tjá sig um heimskreppuna, gerir það reglulega eins og við sjáum hér að neðan.
Hann tjáði sig árið 2009 um ástand Bandaríkjanna, að það tæki þá um tíu ár að ná sér úr þessum öldudal.
Nú árið 2011 er hann enn að tjá sig, og nú um EB og telur að eins og ástandið sé nú, muni tíu ára heimskreppa ríkja og sumar þjóðir munu yfirgefa bandalagið, þau séu ekki nægilega samrýmd og með of ólíkar leiðir.
Allar líkur séu á að þjóðir eins og Grikkland og aðrar þjóðir í erfiðleikum muni yfirgefa bandalagið sökum efnahagserfiðleika, allt í óþökk Evrunar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)