Geir: Ímynd íslenskrar knattspyrnu ósködduð!!!!!

Þvílíkt og annað eins að hlusta á!, á hvaða plánetu býr okkar  ágæti  formaður KSÍ ?

Hann talar eins og hann sé ekki í tengslum við raunveruleikann, hann gerir sér varla grein fyrir því að landslið okkar  er sokkið niður í hyldýpi ókannaðs svæðis!

Hér eru nokkur korn frá Geir frá téðum blaðamannafundi:

Hann segir: " Ég hef marglýst þeirri skoðun minni að það sem okkur skiptir mestu máli eru úrslitin í leikjum okkar í undankeppnum stórmóta,“

"Við höfum ekki horft til þess að vera vera taktískari í því að velja okkur andstæðinga í þeim tilgangi að koma okkur ofar á listanum. Það hefur ekki verið okkar markmið.“

"Við höfum ekki horft til þess að vera vera taktískari í því að velja okkur andstæðinga í þeim tilgangi að koma okkur ofar á listanum. Það hefur ekki verið okkar markmið.“ ?????

Hvað er þessi maður að gera sem formaður KSÍ ? er einhver glóra í þessu, það er ekki bara vandamál í þjálfun liðsins heldur fyrst og fremst í stjórn sambandsins í heild sem gerir  það að ekki næst betri árangur en raun ber vitni.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband