Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Styttri biðlistar fyrir skurðaðgerðir

það er mjög ánægjulegt að biðlistar skuli vera styttri hvað varðar allar skurðaðgerðir á spítölum landsins, þetta kemur fram í fréttablaði landlæknis um heilbrigðistölfræði birt í dag.

Verulegur árangur hefur náðst varðandi syttingu á biðlistum á hjartaþræðingaðgerðum og er það vel. Vona að ekkert lát verði á.

 

 


Því má svokallað "villifé" ekki þróast áfram?

Í fréttum í vikunni var fjallað um fé sem gengið hefur úti milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar í áratugi og þróast þannig að það er háfættara en okkar venjulega sauðfé, nokkurs konar villifénaður, og er orðið annsi styggt en að sama skapi geysilega harðgert, það er orðið mjög fimmt í klifri enda orðið vant að feta ansi bratta stigu fjallanna, minnir mig á fjallageitur sunnar í álfunni, t.d. á Grikklandi þar sem þær eru nokkuð algengar. ´

Ég vil fyrir mitt leyti hafa þær þarna og leyfa þeim að þróast og sjá hvað út úr þessu verður, þær hafa jú verið þarna í að mér skilst í um átta ár eða svo og ef þær hafa lifað þau ár af , þá getur þetta fé alveg plumað sig.

 


Biðjum því við erum kannski að fara að hrapa!

Þetta er ekki það sem góður flugmaður ætti að gera þegar að hætta steðjar að, hann ætti frekar að reyna að róa farþega í stað þess að benda á einhverja mögulega hættu, í þessu tilfelli var ekki ástæða til neyðarástands sem betur fer. Ekki vildi ég hafa verið farþegi hér um borð!
mbl.is Áhyggjufullur flugmaður bað farþegana um að biðja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lúndúnaslagur af bestu gerð! Gunners v Spurs

Já, Spursarar verða án tveggja góðra manna, en Gunners án mun fleiri, t.d. Walcott, Rosicky og Denilson ásamt því að markmaðurinn Fabiansky er meiddur, þeir verða sennilega  að notast  við Almunia! þetta verður leikur kattarins að músinna að mínu mati, það koma ekki hverjir sem er á heimavöll Arsenal og taka sigur!!
mbl.is Lennon og Defoe ekki með Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er mögulegt að íslensku bankarnir hafi stundað peningaþvætti?

Nú standa  yfir rannsóknir á hendur íslensku bönkunum um hvort þvætti á peningum hafi verið stundað,  og eða tengsl eru gagnvart þeim. Breska blaðið Times fjallar um þetta og nefna tengsl breskra kaupsýslumanna við bankanna á Íslandil. Þetta er athyglisverð frétt, og vert að veita athygli.


mbl.is Ásakanir um peningaþvætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líf og fjör á Kjötsúpudeginum, og smakk var víða á boðstólum

það var líf og fjör á Skólavörðustíg í dag og boðið upp á íslenska kjötsúpu að hætti mömmu, Siggi Hall tók að sér að elda hana auk þeirra Úlfars Eysteinssonar, Snorra Birgi og Friðgeiri Eiríks, en það voru fleiri sem buðu upp á góða kjöstúpu, kjötmeistarar Nóatúns voru með smakk í allan dag í sínum verslunum og voru viðskiptavinir mjög ánægðir með það, enda góð súpa þar á ferðinni Wink
mbl.is Líf og fjör á Skólavörðustíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stillt upp fyrir Man U v Liverpool á morgun

Svona líta fréttir netmiðla enskra út vegna leiksins á sunnudag, og er þeim Johnson og Vidic stillt upp sem fighterum þennann dag. Þetta gera þeir vel á miðlum  þeirra á Bretlandi.

johnson+v+vidic


Mourinho rífur bara kjaft, á leið til Liverpool?

Ítalskir miðlar sega sína hverja söguna af Jose hinum kjaftfora, hann virðist ekki njóta sömu vinsælda og á Bretllandseyjum þar sem blaðamenn hreint dýrkuðu manninn,  nú segja þeir hann hafi í höndunum lið sem eigi að geta unnið titil, það segir framkvæmdarstjóri Catania, Pietro Lo Monaco og þess ber að geta að hann hefur sagt að þegar liðin þeirra mætist muni hann lemja Jose með priki í andlitið!!!! halló og góðan daginn.  Svei mér ef hann er bara ekki á leiðinni til Liverpool!!

 


Benitez óttast ekki að missa starfið

Manni finnst samt undirtónnin hjá honum ekki sannfærandi, þeir eru í áttunda sæti og ef þeir tapa fyrir ManU um helgina held ég að ekki verði komist hjá því að hann fari. Orðrómur um að Klinsman eða Dalglish taki kannski við eru undirliggjandi og alls ekki fjarri lagi.


mbl.is Benítez: Óttast ekki að missa starfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bensíndropinn hækkar

Já, um að gera að hækka dropann, ekki veitir olíufélögunum af aurnum, það verður jú að vera hægt að borga toppunum þeirra góða bónusa um áramótin, annað gengur alls ekki !!
mbl.is Eldsneytisverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband