Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010
18.12.2010 | 01:09
Stjórnarkreppan er frá a-ö ásköpuð af ósamvinnuþýðum þingmönnum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2010 | 00:48
Eru jólin "humbuck" ? Hvað fannst Jóhannesi úr Kötlum um það?
Segja vil ég sögu af sveinunum þeim, sem brugðu sér hér forðum á bæina heim. Þeir uppi á fjöllum sáust, - eins og margur veit, - í langri halarófu á leið niður í sveit. Grýla var þeirra móðir og gaf þeim tröllamjólk, en pabbinn Leppalúði, - það var leiðindafólk. Þeir jólasveinar nefndust, - um jólin birtust þeir. Og einn og einn þeir komu, en aldrei tveir og tveir. Þeir voru þrettán þessir heiðursmenn, sem ekki vildu ónáða allir í senn. Að dyrunum þeir læddust og drógu lokuna úr. Og einna helzt þeir leituðu í eldhús og búr. Lævísir á svipinn þeir leyndust hér og þar, til óknyttanna vísir, ef enginn nærri var. Og eins, þó einhver sæi, var ekki hikað við að hrekkja fólk og - trufla þess heimilisfrið. |
| ||
Stekkjarstaur kom fyrstur, stinnur eins og tré. Hann laumaðist í fjárhúsin og lék á bóndans fé. Hann vildi sjúga ærnar, - þá var þeim ekki um sel, því greyið hafði staurfætur, - það gekk nú ekki vel. Giljagaur var annar, með gráa hausinn sinn. - Hann skreið ofan úr gili og skauzt í fjósið inn. Hann faldi sig í básunum og froðunni stal, meðan fjósakonan átti við fjósamanninn tal. Stúfur hét sá þriðji stubburinn sá. Hann krækti sér í pönnu, þegar kostur var á. Hann hljóp með hana í burtu og hirti agnirnar, sem brunnu stundum fastar við barminn hér og þar. Sá fjórði, Þvörusleikir, var fjarskalega mjór. Og ósköp varð hann glaður, þegar eldabuskan fór. Þá þaut hann eins og elding og þvöruna greip, og hélt með báðum höndum, því hún var stundum sleip. |
| ||
Sá fimmti, Pottaskefill, var skrítið kuldastrá. - Þegar börnin fengu skófir hann barði dyrnar á. Þau ruku' upp, til að gá að hvort gestur væri á ferð. Þá flýtti 'ann sér að pottinum og fékk sér góðan verð. Sá sjötti, Askasleikir, var alveg dæmalaus. - Hann fram undan rúmunum rak sinn ljóta haus. Þegar fólkið setti askana fyrir kött og hund, hann slunginn var að ná þeim og sleikja á ýmsa lund. Sjöundi var Hurðaskellir, - sá var nokkuð klúr, ef fólkið vildi í rökkrinu fá sér vænan dúr. Hann var ekki sérlega hnugginn yfir því, þó harkalega marraði hjörunum í. Skyrjarmur, sá áttundi, var skelfilegt naut. Hann hlemminn o´n af sánum með hnefanum braut. Svo hámaði hann í sig og yfir matnum gein, unz stóð hann á blístri og stundi og hrein. |
| ||
Níundi var Bjúgnakrækir, brögðóttur og snar. Hann hentist upp í rjáfrin og hnuplaði þar. Á eldhúsbita sat hann í sóti og reyk og át þar hangið bjúga, sem engan sveik. Tíundi var Gluggagægir, grályndur mann, sem laumaðist á skjáinn og leit inn um hann. Ef eitthvað var þar inni álitlegt að sjá, hann oftast nær seinna í það reyndi að ná. Ellefti var Gáttaþefur, - aldrei fékk sá kvef, og hafði þó svo hlálegt og heljarstórt nef. Hann ilm af laufabrauði upp á heiðar fann, og léttur, eins og reykur, á lyktina rann. Ketkrókur, sá tólfti, kunni á ýmsu lag. - Hann þrammaði í sveitina á Þorláksmessudag. Hann krækti sér í tutlu, þegar kostur var á. En stundum reyndist stuttur stauturinn hans þá. Þrettándi var Kertasníkir, - þá var tíðin köld, ef ekki kom hann síðastur á aðfangadagskvöld. Hann elti litlu börnin sem brostu, glöð og fín, og trítluðu um bæinn með tólgarkertin sín. |
| ||
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2010 | 23:39
Stjórnin fellur fyrir áramót
það brendir allt til að Þessi ríkisstjórn falli fyrir lok þessa árs, ósammlyndi þeirra VG manna er það mikið að kraftaverk þarf til svo ekki verði af falli þeirra. Lilja M og Atli og Ásmundur munu verða þess valdandi að þessi stjórn mun falla, ég hef sagt þetta áður og aftur nú, segjum tvær til fjórar vikur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2010 | 23:26
Lilja Mósesdóttir er sigurvegari í mínum kokkabókum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
17.12.2010 | 23:05
Þakið á Eden að fjúka af, skiptir það máli?
Vont fyrir þá, en ef áform ríkisstjórnarinnar ná fram að ganga, þá er það hvort sem er dauðadómur yfir Hvergerðingum, það fer engin meðalfjöldskylda í Reykjavík að keyra austur fyrir fjall fyrir einhverja þúsundkalla bara til að heimsækja Eden eins og áður !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2010 | 22:45
Vegaskattar og Strætóhækkanir, góð jólagjöf inn í árið 2011
Nú ætlar þessi ágæta rírkisstjórn okkar að setja vegtolla á okkur ræflanna sem keyra á milli Reykjavíkur og Selfoss, eins og við höfum ekki nóg að borga, einnig ætla þeir þeir Gnarr og félagar í "besta flokknun" að hækka gjöld í strætisvagna borgarinnar svo um munar þann 3 janúar nk, einstök fargjöld fara úr 280 kr í 350 kr, og kort keypt á afslætti til elllífeyrisþega færast frá 68 ára aldri til 70 ára´!!!
Hvar er skynsemin í þessu? Á að færa þessa þjóð aftur til fornaldar? Ekki mun ég og mín fjöldskylda taka okkar mánaðarlega rúnt í Eden í Hveragerði næsta vor, hver ætlar að gera það ef að þetta verður niðurstaðan?
Skora á ykkur að kommenta þetta.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2010 | 01:31
47% landsmann telja að spilling hafi ekki aukist hér á landi!!!
53% segja spillingu hafa aukist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2010 | 01:08
Ronaldo mikill svindlari
Mikið er ég sammála danska dómaranum Claus Bo Larsen vegna ummæla hans um Rónaldo hin portúgalska, ég hef aldrei þolað þann mann sem leikmannn eða persónu sökum leikaraskaps á vellinum, látandi sig detta við hvert tækifæri og biðla til dómara um aukaspyrnu eða víti, það er óþolandi, svona prímadonnur eiga ekki heima í íþróttum að mínu mati.
Dómari segir Ronaldo mesta svindlarann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.12.2010 | 00:24
Icesave sagan rakin og Steingrímur brosir í annað!
Ég treysti Svavari Gestssyni og ég veit að hann er að gera góða hluti og ég lofa þér því að það er í sjónmáli að hann og hans fólk landi glæsilegri niðurstöðu fyrir okkur," sagði Steingrímur J. Sigfússon í umræðuþætti á mbl.is eftir að hann hafði sett Svavar Gestsson, gamlan vopnabróður sinn, yfir Icesave nefndina.
Glæsileg yfirskrift eða hitt þó heldur, og þetta pakk höfum við sem forsvarsmenn fyrir þjóðinni, ekki nema von að heimurinn þarna úti taki ekki meira mark á okkur en raun ber vitni!!
http://visir.is/icesave-sagan-rakin-/article/2010266654101
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2010 | 00:17
Reykjavíkurborg ætlar að kaupa 120 nýjar bifreiðar á næstunni
Ég legg til að keyptar verði mun fleiri en 120! helst vil ég að keyptar verði ein fyrir hvern ríkisstarfsmann og að hann fái um leið 50 þús í bifreiðakostnað á mánuði, það er lágmark.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)