Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
20.9.2009 | 03:09
Ó þú sæta Palin!
Ég sakna þessara sérstöku konu frá Alaska sem að margra mati steig ekki í vitið en hún er fjári falleg ekki satt? sjá grein: http://visir.is/article/20090919/FRETTIR02/337972800/-1
20.9.2009 | 02:43
Er krossinn heilagur?
Ég las í DV að forstöðumaður Krossins stæði í hjónaskilnaði! Halló!! hvernig ætlar hann að standa frammi fyrir söfnuði sínum þegar þeir koma og útdeila sínum vandamálum vegna hjónabandserja eða öðrum erfiðleikum nútíma sambands manns og konu. (eða manns og manns, - konu og konu)
Nú! hann hefur skv. helgri biblíu predikað góð gildi í hjónabandi sem og daglegu lífi, en jafnframt með þessari gjörð fyrirgert rétti sínum sem leiðbeinandi til handa kristnum mönnum og allra þeirra er þá trú meðtaka!! hann á að segja af sér sem predikari hið fyrsta, og láta aðra með æðri köllun taka við.
20.9.2009 | 01:56
Eiður er ekki að sýna að hann sé peningana virði!
Mónakó í fjórða sætið með útisigri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2009 | 23:46
Box í kvöld
Núna rétt eftir miðnætti, eða kl eitt mætast þeir Floyd Mayweather Jr og Juan Manuel Marquez í svakalegum bardaga sem lengi hefur verið beðið eftir. Mayweather er fjórum kílóum þyngri en Marquez sem þó segist alls ekki hræddur heldur segist hafa æft gríðarlega vel og sé fullur sjálfstrausts.
Ég held að ekkert geti komið í veg fyrir að Mayweather sigri í þessum bardaga, nema þá helst hans eigin hroki!!!
19.9.2009 | 23:33
Falleg saga úr seinni heimstyrjöldinni
Þetta er pottþétt drama fyrir góða mynd frá Hollywood, enda hefur hún allt sem þarf, en í stuttu máli er það svo að Jack Harold var skotinn niður yfir Þýskalandi árið 1944 og..............snnnnfffffff lesið þetta frekar hér
http://visir.is/article/20090919/FRETTIR02/726661745
19.9.2009 | 16:30
Er loksins eitthvað malt í stjórnarandstöðunni ?
Tryggi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins fer ekki fögrum orðum um ríkisstjórnina og sakar hana um slöttólfshátt, þar á hann við að VG hafi vísvitandi komið í veg fyrir að viljayfirlýsing vegna álvers á Bakka yrði framlengd.
Hann talar einnig um að stjórnin sé að drepa allar atvinnuhorfur á norðausturlandi (og í raun alls landsins, innskot Gudjul) og segir að stefna vinstri flokkanna sé mjög skýr, nefnilega engin!
Ég lýsi hér með eftir meiru af afdráttarlausum og beryrtum skoðunum stjórnarandstöðumanna, það vantar allt malt í þá flesta, yfirleitt eru þeir með staðlaðar pólítískar yfirlýsingar sem allir kunna og engin nennir að hlusta á, en þá vantar að tala meira frá hjartanu, það er það sem kjósendur vilja hlusta á.
19.9.2009 | 15:35
Uppsagnir dregnar til baka, ánægjulegar fréttir úr atvinnulífinu
19.9.2009 | 15:22
"Vinstri akreinarökumenn"
Ég er venjulega rólegur í umferðinni svona alla jafna, en það koma stundir þar sem mér fallast allar hendur í skaut! Það á að aka á eðlilegum aksturshraða er bara hið besta mál en þegar fólk, bæði menn og konur aka langt undir eðlilegum hraða er gersamlega óþolandi, og getur virkilega pirrað annars rólyndisfólk. Að ekki sé talað um þegar það ekur á vinstri akrein á annatíma svo sem á morgnana á leið til vinnu og er jafnvel að tala i síma, þú kemst ekki fram úr þar sem viðkomandi bíll ekur kannski jafnhliða vöruflutningabifreið á 40-50 km hraða, og skeytir engu um hvort þú blikkir hann eða smellir á hann háu ljósunum til að láta vita að þú viljir komast fram úr.
Erlendis þekkist þetta alls ekki og held ég að kennsla verði að vera mun nákvæmari og hnitmiðaðri en nú gerist. Bílstjórar, takið ykkur taki og lagið þessa lesti ykkar þið sem kannist við þessa lýsingu.
19.9.2009 | 13:45
Sveppatínsla getur verið ákaflega pínleg og varhugaverð!
Góð vísa er aldrei of oft kveðinn, það sannaðist þegar ungun maður ráfaði um nakinn og spjarir hans á víð og dreif um verslun Hagkaupa í nótt undir áhrifum sveppaáts að eigin sögn, það var að mig minnir í þessari viku að "Reykjavík síðdegis" var með viðtal við kunnáttumanneskju um íslenska sveppi og það sem ber að varast við neyslu þeirra, eins margar og tegundirnar eru, nema að hún tiltók einmitt einkenni sem einmitt á við hér, nefnilega það að oft hafa menn, við neyslu eitraðra sveppa átt það til að fækka fötum og hafa t.d. fundist uppi í trjám og hafa enga skýringu getað gefið um hvernir þeir komu sér þangað!
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/09/19/nakinn_og_til_vandraeda/
19.9.2009 | 01:05