Hafnarfjarðarbrandari nr 5

Þegar Ingólfur Arnarson kom til Hafnarfjarðar stóð á skilti:
Til Reykjavíkur og þeir sem kunnu að lesa fóru þangað en hinir voru eftir.

Og einn í kaupbæti


Hafiði heyrt um hafnfirðinginn sem færði húsið sitt heilann meter til að strekkja á þvottasnúrunni?


Hafnarfjarðarbrandari nr 4

Hafnfirðingur hringdi í lögguna og bað hana um að koma í einum grænum því búið væri að ræna úr bílnum hans stýrinu, bensíngjöfinni, kúplingunni, gírkassanum og bremsunni.
Nokkrum mínútum seinna hringdi hann aftur og sagði að allt væri í lagi.
Hann hafði sest aftur í. LOL

Hafnarfjarðarbrandari nr 3

Svo var það Hafnfirðingurinn sem var svo fátækur að hann fékk bréf frá blóðbankanum, vegna þess að hann hafði veðsett blóðið sem hann lagði inn fyrir 3 árum.

Mislukkuð baðferð Hafnfirðings

Það er engu logið upp á þá Hafnfirðinga !!!

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/12/17/mislukkud_badferd_i_hafnarfirdi/?ref=fpmestlesid


Hafnarfjarðarbrandari nr 1

Það var komið að fyrsta skóladegi þessa ágæta Hafnfirðings, vinurinn sagði honum að það eina sem hann þyrfti að taka með væri stigi. Nú !!! hvers vegna, sagði Hafnfirðingurinn, Þetta er nú  einu sinni  Háskóli!!!!

Stjórnarkreppan er frá a-ö ásköpuð af ósamvinnuþýðum þingmönnum

Það sagði einhver  góður maður í viðtali á einhverri rásinni á fjólvarpinu þegar að talið barst að kreppunni á Íslandi, að orsökinn lægi hvað mest hjá pólítíkusum þjóðarinnar, kreppan lægi  ekki síst í því að stjórnmálaflokkar á Íslandi væru svo hrikalega ósammála um allt og gætu á  engan hátt unnið saman að lausn mála, hvaða flokki þeir tilheyrðu, þetta er einmitt mergurinn málsins, það vantar að allir flokkar þingsins  taki sig saman og reyni að leysa þessa efnahagskrísu  í eitt  skipti fyrir öll!!!!

Eru jólin "humbuck" ? Hvað fannst Jóhannesi úr Kötlum um það?

Segja vil ég sögu
af sveinunum þeim,
sem brugðu sér hér forðum
á bæina heim.

Þeir uppi á fjöllum sáust,
- eins og margur veit, -
í langri halarófu
á leið niður í sveit.

Grýla var þeirra móðir
og gaf þeim tröllamjólk,
en pabbinn Leppalúði,
- það var leiðindafólk.

Þeir jólasveinar nefndust,
- um jólin birtust þeir.
Og einn og einn þeir komu,
en aldrei tveir og tveir.

Þeir voru þrettán
þessir heiðursmenn,
sem ekki vildu ónáða
allir í senn.

Að dyrunum þeir læddust
og drógu lokuna úr.
Og einna helzt þeir leituðu
í eldhús og búr.

Lævísir á svipinn
þeir leyndust hér og þar,
til óknyttanna vísir,
ef enginn nærri var.

Og eins, þó einhver sæi,
var ekki hikað við
að hrekkja fólk og - trufla
þess heimilisfrið.
 

 

Stekkjarstaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.

Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.

Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.

Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.
 

 

 

Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku' upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti 'ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.

Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.

Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.

Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.
 

 

 

Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.

Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.

Þrettándi var Kertasníkir,
- þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin
sem brostu, glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.
 

 

 

 

 


Á sjálfa jólanóttina,
- sagan hermir frá, -
á strák sínum þeir sátu
og störðu ljósin á.

Svo tíndust þeir í burtu,
- það tók þá frost og snjór.
Á þrettándanum síðasti
sveinstaulinn fór.

Fyrir löngu á fjöllunum
er fennt í þeirra slóð.
- En minningarnar breytast
í myndir og ljóð.


 

 
Jóhannes úr Kötlum
1899-1972
 

Stjórnin fellur fyrir áramót

það brendir allt til að Þessi ríkisstjórn  falli fyrir lok þessa árs, ósammlyndi þeirra VG manna er það mikið að kraftaverk þarf til svo ekki verði af falli þeirra. Lilja  M og Atli og Ásmundur munu verða þess valdandi að þessi stjórn mun falla, ég  hef sagt þetta áður og aftur nú, segjum  tvær til fjórar vikur.


Lilja Mósesdóttir er sigurvegari í mínum kokkabókum!

Þó svo að  hún sé í flokki með mönnum og konum, sem ég hef andúð  á, og eru ekki mér að skapi, þá get  ég ekki orða bundist með að dásama kjark hennar þegar hún býður Steingrími J byrgin á þann hátt sem hún hefur alltaf gert, ég ber gríðarlega mikla virðingu fyrir þessari konu og vona að  það sé hún og svona fólk sem leiði okkur inn í betri tíma framundan!!

Þakið á Eden að fjúka af, skiptir það máli?

Vont fyrir þá, en ef áform ríkisstjórnarinnar ná fram að ganga, þá er það hvort sem er dauðadómur   yfir Hvergerðingum, það fer engin meðalfjöldskylda í Reykjavík  að keyra austur fyrir fjall fyrir einhverja þúsundkalla bara til að heimsækja Eden eins  og áður !!!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband