14.1.2011 | 22:33
Stöð 2 Sport og ummfjöllun um HM í handbolta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2011 | 19:25
Frábær sigur Íslands, en erfitt á morgun
Ég hafði nokkrar efasemdir um að við næðum að vinna ungverja í dag, en önnur varð raunin, það var aldrei spurning um hvar sigurinn lennti, hefðum getað unnið með um ellefu tólf marka mun, en okkar menn slökuðu verlulega á í lokinn enda engin ástæða til annars.
Á morgun tökum við á móti brössum sem eru í klassaflokki fyrir ofan chilemenn sem töpuðu með tíu mörkum fyrir svíum í gær, það verður góður prófsteinn fyrir okkur eftir sigur í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.1.2011 | 22:00
Óveður á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli
Heyrði í kunningjafólki sem var á leið undir Hafnarfjalli í kvöld og sögðu þau að þau hefðu þurft að leggja bílnum í skjól, svo mikill var vindurinn.
Skil raunar ekkert í fólki að vera að hafa sig út í að keyra þessa leið þar sem margbúið er að lýsa hana nánast ófæra, trekk í trekk!!
![]() |
Óveður á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.1.2011 | 21:33
Góður sigur íslendinga á þjóðverjum í kvöld
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2011 | 18:44
Áfram Ísland í kvöld!
Nú eru aðeins sex dagar í HM í handbolta og lokaæfing í kvöld og á morgun gegn Þjóðverjum, þá sjáum við hvar við stöndum og getum dæmt liðið nokkurn veginn.
Áfram Ísland.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2010 | 00:50
Óþolandi níðings blogg um jólinn
Það er ekkert sem fer meira í taugarnar á mér en þegar að menn eru með níð um aðra hvort sem um þekkta einstaklinga er að ræða eða ekki, þó svo að þeir séu svokallaðir útrásarvíkingar eða bankamenn sem farið hafa yfir strikið.
Þeir eiga allir fjöldskyldur og hlakka eflaust til jólanna eins og okkur hinum og eiga allir börn sem að hlakka til jólanna alveg eins og okkar börnum, ekki skemma þessa hátið fyrir þeim! Þeir taka þetta til sín sem það eiga skilið!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.12.2010 | 00:23
Skrýtin aðdragandi Jóla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2010 | 21:38
Styrkur íslensks vinnuafls í verki, og til eftirbreytni!
Þetta er með ævintýralegum blæ og til mikils hróss fyrir íslensks hugsunarháttar og vinnusemi.
Þessir áhafnnarmeðlimir farþegaþotunar frá Íslandi leiddist þófið er ekki fékkst þjónusta eldsneytisbíls þeirra Hollendinga á Schipholflugvelli og hófu að moka brautina sjálfir til að þurfa ekki að dvelja næturlangt, þannig eru íslendingar úr garði gerðir, verkin tala!!!
Ég tek hatt minn ofan fyrir þessum áhafnarmeðlimum, og þið vitið að ég er með hatt :)
![]() |
Mokuðu snjó á Schiphol |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
25.12.2010 | 20:50
Grátbrosleg jól
Það er talað um kreppu í öðru hverju orði í fjölmiðlum og að Ísland sé nær gjaldþrota þjóð! En samt les maður greinar í erlendum blöðum um að Ísland sé mun betur á veg komið en mörg önnur lönd, t.d. er Írland sem er nýjasta dæmið um fallandi land vegna efnahagskreppunar borið saman við Ísland og komum við þar mun betur út.
Ástæðan er sögð meðal annars vegna hörku íslenskra stjórnvalda sem sögð eru harðskeytt í samningum. Við vitum öll hvar hugur stórs hluta íslensks almennings er gagnvart þeirri stjórn er nú er við lýði, en er málið þannig vaxið að í raun séu þau á réttri leið?? Ég spyr ykkur þar sem að ég er nú á báðum áttum !
Jólin eru hátið barnanna og ekki síst barnsins inn í okkur sjálfum, en það er því miður mikið um grátur hjá fólki sem ekki á höfði undir að halla vegna þess að það á einfaldlega ekki efni á að halda jól, og einnig vegna annars konar vandamála er ekki endilega tengjast fætækt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2010 | 15:53
Jólakveðjur til allra bloggara nær og fjær
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)