Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012

Nýr veitingastaður Roadhouse á Íslandi

Var að heyra að nýr veitingastaður væri að opna á Snorrabrautinni, í gamla Ríkinu, staður sem að væri í anda ekta "Diners" staða í Ameríku að mér skilst.

Ég vona að þetta sé í anda " Diners, drive - ins and dives " *Guy  Fieri´s, sem er frábær, ef svo er verð ég vikulegur gestur þar InLove

Bíð bara  eftir boðskorti á opnuninna Wink

Diners, Drive-Ins and Dives: An All-American Road Trip ... with Recipes!


Gunnar Andersen frá, hvað er í gangi?

Ef rétt  er að honum hafi verið vikið frá spyr ég, hver andskotin er á seyði, og var ekki hægt að finna menn með meira á  bakinu til að ásækja og hegna?? Hvað hefur hann gert umfram aðra til þess  að réttlætanlegt sé að reka hann??

Erum við að leggjast lágt fyrir "hinum nýríka og dularfulla Núbó"

Ef að sveitarfélag kýs að leigja land sitt til arðbærra athafna, eða annarra notkunar, þá er ekkert athugarvert við það, það er allt annað að fara að selja landið til kínverskra athafnamanna en að leigja þeim þetta land.Raddir ósveigjanlegra manna sem halda að verið sé að selja land okkar til erlendra  manna, eru út í hött og eiga ekki upp á pallborðið hjá þeim sem vilja fjárfesta sem flesta hingað til landsins!!Það er einmitt þetta viðhorf sem að er að fæla menn með vasa fulla af peningum til að koma til landsins og fjárfesta í þessu ríkasta landi veraldar sem enn er opið og óskert.Margir af mínum vinum  eru nú búnir að snúa kvæði sínu í kross og vilja ekki fá erlent fjármagn inn í landið, og er það mér ofar öllum skilningi.

Að passa tvennt af hvoru af þremur tegundum er allt annað en auðvelt!!

Já,  þetta eru engar ýkjur , í gær fékk ég það verkefni að passa tvö börn, 3 ára og 5 ára, og á þessum   aldri á maður von á ýmsu eins og raunin varð! auk  tveggja hunda, Silki terríer sem er smáhundur, sjá mynd, og Veimeraner veiðihunds, sjá mynd,  sem er margfallt stærri og i raun eins og stálpað folald!!

En þar með er sagan ekki öll sögð, heldur fékk ég líka í mína umsjá tvo ketti sem voru ekki par hrifnir af nærveru hundana, sjá mynd að neðan,  og í raun ekki barnanna heldur, kettina hef ég til pössunar í mánuð, börnin koma nær daglega og hundarnir annan hvern dag.Þetta stóð frá kl 5 till 9 og þurfti ég að fæða börnin, hundana og kettina á sama tíma! Það var ekki auðvelt, ég byrjaði á að gefa börnunum spagheti í eldhúsinu, kettirnir fengu sinn mat inni í  svefnherbergi og hundarnir sinn mat í stofunni, allt á sama tíma, þetta var ekki auðvelt,  en tókst.

Þetta er allt í familíunni eins og sagt er,  og þegar að upp er staðið, er þetta bara dásamlegt. Grin

 

Bara það


Snjóar í höfuðborginni

Skelfilegar fréttir þetta, ágæti blaðamaður

Þetta hefur sennilega farið  fram hjá okkur Reykvíkingum, takk fyrir ábendinguna! Blush


mbl.is Snjóar í höfuðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innflytjendur beri sérstök skírteini

Þetta minnir mig á það þegar að Himler skipaði SS sveitum sinum að merkja alla gyðinga með bandi um ermina, er ég kannski of væmin núna?

Þessi norska blondína, sem vel gæti verið hin dæmigerða "Aría kona" er dómsmálaráðherra Noregs

Grete Faremo, dómsmálaráðherra Noregs.


mbl.is Innflytjendur beri sérstök skírteini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtið að gerast í Evrópu?

Við íslendingar höfum ekki farið varhluta af vetrarhörkunni frá því í desember og nú berast fréttir af gríðarlegri vetrarhríð í sunnan og austanverðri Evrópu, hundruð manns hafa látið lífið vegna kulda í austur Evrópu og ekkert lát er á, á Ítalíu hafa sjö látið lífið vegna þessa og hefur herinn verið kallaður út til að aðstoða við snómokstur, þetta er það mesta í tæp 30 ár!

Þetta kemur manni til að íhuga hvort gróðurhúsaáhrif séu hér að verki eða bara eðlileg nátturuleg öfl.

Colosseum hefur verið lokað í tvo daga. Ófært er víðast í Róm.


mbl.is Herinn kvaddur til vegna snjós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennara boðið starf sem strippari

"53 ára fyrrum kennslukonu í Frakklandi fékk á dögunum sendan tölvupóst frá atvinnumiðlun á vegum franska ríkisins þar sem lagt var til að hún tæki að sér starf strippara á skemmtistað í næsta nágrenni. "
Lesa meira  

Hvaða hvaða, er  ekki betra að fá eitthvað að gera en ekkert, hún greinilega lítur niður á þessa starfsstétt!!

Úr myndasafni.


mbl.is Kennara boðið starf sem strippari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beyoncé Knowles bjóðast 62 milljarðar fyrir X Factor, "skánar það eða versnar?

Allt í góðu með það, en ég held að fréttaritara væri hollast að öðlast betri skilning á íslensku máli, eða þá að fá betri  prófarkalesara með sér í lið,   hann segir :

"Beyoncé Knowles veit ekki aura sinna tal og ekki mun ástandið skána ef hún tekur tilboði Simons Cowell"

Hann meinar sjálfsagt að "ekki muni ástandið versna ef hún................................


mbl.is Býðst 62 milljarðar fyrir X Factor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband