Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011

Skora á alla sanna aðdáendur poppcountry unnenda

Að mæta á tónleika Eagles, þrátt fyrir að ákveðnir aðilar bloggsins geri það ekki! þeirra er missirinn.

"Breaking News", Eagles á leiðinni til landsins í vor !

Þó það hafi varla farið framhjá nokkrum manni sem snefill af tónlistaráhuga hefur er þessi bandaríska ofurgrúbba að koma til landsins með allt sitt hafurtask og vill reyndar  æfa hér í einhverja daga fyrir hljómleikaferð um Evrópu, það er spurning hvort maður geti lánað þeim bílskúrinn sinn í nokkra daga gegn vægu gjaldi?

Framleiðslu Two and a Half Men frestað, ekki gott!

Sama hvaða vandræði Charlie Sheen er búinn að koma sér í aftur og aftur, þá eru þessir þættir afburða fyndnir á bandarískan mælikvarða, það er aðeins um tvo þætti að ræða sem virkilega er hægt að hlægja að frá Bandaríkjunum, einn þeirra er Fraisier og þetta er hinn, en ég tek fram að í two and a half men, er það ekki endilega Charlie Sheen sem er bestur, það er bróðirinn sem að mínu mati stelur senunni.
mbl.is Framleiðslu Two and a Half Men frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferguson: Einvígi við Arsenal

Já, það ætla ég að vona, en til þess að það gerist þarf margt að breytast hjá mínum, leikmennn sem koma inn í stað meiddra þurfa að sýna mun meiri árásargirni en þeir hingað til hafa gert.
mbl.is Ferguson: Einvígi við Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atli: Horfi bara í aurana

Já, ("horfði bara í aurana") hvað segir þettta okkur?
mbl.is Atli: Horfi bara í aurana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Van Persie tekur við fyrirliðabandinu

Mér finnst að Wenger ætti að leyfa Fabregas að spila, hann , Fabregas, hefur þrábeðið um að fá að spila þennan leik, enda skil ég hann vel, þetta er fyrsti séns Arsenals og spænska snillingsins að fá bikar í annsi langan tíma! mér skils að Fabregas sé annsi lítið meiddur, og þrælslegt af Wenger að leyfa honum ekki að vera með að hluta að minnsta kosti!!!
mbl.is Van Persie tekur við fyrirliðabandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðurstyggileg móðgun við landsmenn segir Sigmundur Ernir!

Segir Sigmundur Ernir þingmaður Samfylkingarinnar, hann segir : "hundrað þúsund króna mánaðarbónus handa dómurum  sé viðurstyggileg móðgun við landsmenn."

 Hann segir  einnig: "Lífið á Íslandi er svona: Það stendur yfir björgun samfélags og allir leggja meira á sig fyrir minna fé en áður. Þetta hefur þótt svo sjálfsagt að karlar og konur um allt land hafa ekki lagst í neina sérstaka meðaumkun; miklu fremur að hver og einn hafi þakkað fyrir að hafa þó vinnu …"

Sigmundur, það hafa færri og færri vinnu í dag, þökk sé þínum flokki. 


Sjóræningjar undirbúa lausnargjaldskröfu

Eg skil ekki þetta ástand þarna undan ströndum Sómalíu og víðar, hvað eru menn að sigla þarna hjá við þessar aðstæður, vitandi af þesssum sjóræningjum? hvað þá hjón á snekkju sem ekki hafa nein tök á að verja sig, það verður að taka hart á þessum ræningjum og refsa þeim af hörku!!
mbl.is Sjóræningjar undirbúa lausnargjaldskröfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað fengum við eftir "hrunið" ?

Núverandi  ríkisstjórn var stofnuð á skrýtnum tímum hrunsins, en það var líka hrunið sem orsakaði að ömurlegustu "félagastamtök" Gnarrista komust til valda.

Þegar að upp er staðið er það skrýtið að við lögðum upp með að fá betri stjórn landsmála eftir hrun, væntingarnar voru miklar og vonir háar,  en hvað fengum við?  Jóhönnu og Steingrím í landsstjórn  sem hafa gersamlega rústað landinu, ekki síst með  Icesafe rugli sem þau virðast svo hrifinn af, og síðan en ekki síst,  "Jón garrrrrrrrrrr" í borgina, það vita allir hvað þar er á ferðinni, klúður eftir klúður og arfavitlaus tilsvör borgarstjóra hvað eftir annað. 

Hvað fór úrskeiðis????

 


Kennarar á Íslandi nýta 37% af tíma sínum í kennslu!

Bíddu við, erum við að borga þeim laun fyrir að sinna 37% kennslu, og þeir gera ekki annað en að heimta hækkanir á laun sín! hvað eru þeir að gera i 63% tíma sínum sem þeir eru á launum???

 

 http://visir.is/nyta-37-prosent-af-tima-sinum-i-kennslu-/article/2011110219741

kennari

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband