Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

Evrópusamtökin my.................................?

Það er með ólíkindum hve þeir félagar í evrópusamtökunum á blogginu eru geldir, þeir Steini og félagar, þeir leyfa engar athugasemdir aðrar en þeim hugnast og loka á allar málefnalegar umræður um málefnið, get ekki skilið hvað þeir eru í raun að vera með siðu á blogginu ef ekki má spjalla um málið!! Hvað finnst ykkur?

Kolbeinn "kapteinn" með fimm mörk

Frábært hjá stráknum og að auki skoraði Jóhann Berg eitt, ætli Tinni skori ekki í næsta leik?
mbl.is Kolbeinn skoraði fimm mörk fyrir AZ Alkmaar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Knattspyrnustjarna tók upp kynlífsmyndband

Ekkert má nú orðið, hvað með það þó að fótboltamaður stundi kynlíf uppi í herbergi?? Það er greinilegt að pressann er í krísu og leitar alltaf að ódýrasta umfjöllunarefni handa heimskum lesendum sínum!

http://visir.is/knattspyrnustjarna-tok-upp-kynlifsmyndband/article/2011726010462

 


Skemma múmíur í Egyptalandi

Það eru ekki hinir almennu borgarar sem eru að skemma verðmætar arfleiðir landsins heldur eru það glæpahyski sem nota tækifærið og láta hendur standa fram úr ermumþ

Annars er gaman að sjá þessa mynd af þessum fornleifafræðingi, hann minnir mig á frægan leikara sem lék einmitt fornleifafræðing í nokkrum myndum, hatturinn og allt LoL


mbl.is Skemmdu tvær múmíur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóðalist, frá Íslandi til ljóðlistar úr austri

Ég hef lengi verið aðdáandi góðrar ljóðlistar og hef sjálfur tekist við þá góðu list, með misjöfnum árangri eins og svo mörgum öðrum reyndar, en það eru ekki bara á vesturlöndum sem menn hafa reynt fyrir sér í  þessum orðaleik sem ljóð eru.

 Ljóðlist er listgrein þar sem fagurfræði tungumálsins er í forgrunni, og meiri áhersla er lögð á uppsetningu og hrynjandi heldur en efnislegt innihald textans.

"Þótt skilgreiningin á ljóðum og ljóðlist hafi verið útvíkkuð í seinni tíð eru þó enn til afbrigði ljóðlistar sem lúta mjög ströngum bragfræðilegum reglum. Dæmi um það eru íslenska ferskeytlan  og japanska ljóðaformið Haiku." (tekið frá Wikipedia)

Dæmi um rétt kveðna ferskeytlu:

Ferskeytlan er Frónbúans

fyrsta barnaglingur,

en verður seinna í höndum hans

hvöss sem byssustingur.

(Andrés Björnsson)

Svo er það Japanska formið Haiku (Hæka)

Haiku er japanskur bragaháttur sem þróaðist út frá rengu sem er bragur þar sem tveir eða fleiri kveðast á. Hæka hefur þrjár braglínur með fimm atkvæðatáknum í fyrstu línu, sjö í næstu og fimm í þeirri þriðju. Efni rétt ortrar hæku á að tengjast náttúrunni og innihalda eitt orð (kigo) sem tengist þeirri árstíð sem er þegar hækan er ort. Hækur eru ortar í nútíð og innihalda ekki rím. Efni hækunnar eru yfirleitt tvær (sjaldnar þrjár) einfaldar skynmyndir eða upplifanir á náttúrunni.

Dæmi:   

Í nótt kom vorið

hvergi sér ský á himni

þrestir ræðast við 

 

Vorilmur trjánna

fær grjótið til að gægjast

undan snjófeldi 

 

Þegar ég kem út

hvað sé ég! þarna hangir

vor á pílviðnum 

 

Eins og við sjáum er þetta töluvert öðruvísi en okkar gamla og góða ferskeytla, en það er gríðarlega gaman að lesa japönsk og kínversk ljóð sem eiga aldagamlar hefðir. 

 

 

 


Jón Bjarna vill ekki að Ögmundur segi af sér!

Auðvitað ekki, þeir passa rassgatið á hverjum öðrum þessi  blessuðu ráðherrar Devil

Ögmundur er nýbúinn að lýsa yfir stuðningi við Jón Bjarnason í vikunni og er þá ekki tilvalið að  gjalda keisarans því sem keisarans ber? Með því auðvita að verja Ögmund í staðinn, þetta pakk er svo gelt að það hálfa væri nóg. 


mbl.is Fráleitt að Ögmundur segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viggó óhress með liðsvalið hjá landsliðinu!

Vel spilað í fyrry hluta keppninnar en liðið keyrði sig út í seinni hluta hennar,

Hann gagnrýnir Guðmund fyrir að hafa ekki notað Sigurberg Sveinsson  meira í keppninni en raun ber vitni.

"„Eftir á að hyggja held ég að Noregsleikurinn hafi kostað okkur mjög mikið. Það var í raun dýrkeyptur sigur að mörgu leyti fyrir það sem á eftir kom."


mbl.is „Óskiljanlegt að taka Sigurberg með“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Telegraph: Iceland til sölu á 274 milljarða

Það  virðist vera  að koma í ljós  að virði eigna skilanefnda bankanna eru meiri en menn þorðu að vona í upphafi.

Nú virðist sem  að keðjan  Iceland sé um 274 milljarða virði!! ekki slæmt upp í allar kröfurnar! 


Pæling til hægri, sveigja til vinstri, eða er það öfugt ??

Allir tala um gamla fjórflokkinn og allt sem hann  hefur gert af sér, eða öllu heldur það sem hann  hefur alls ekki gert!!!

Það sem að mörgum sést yfir er að þegar að kosningar nálgast er raunin oft sú að vinstri menn leggjast í hýði og fara að pæla í hvort þeir eigi að kjósa D eða S eða svo fr

Það sama gegnir um hægri menn,  sjálfur tel ég mig til hægri manna og var lengi að velta fyrir mér að kjósa  Græna þegar að hrunið varð!!

En, ég lét ekki undan freistingum og stóð við sannfæringu mína þrátt fyrir að árásum linnti ekki á mína flokksmenn!!

Nú get ég borið höfuðið hátt þar sem að vinstri öflin eru því sem næst búinn að rústa efnahag þjóðarinnar svo um muni!!

Í næstu kosningum  get ég með stolti kosið þann flokk sem ég tel hæfastann í að leiða landið út úr þessu skelfilegu ógöngum sem við erum nú í. 

 

 


Lesbíur fá ekki að giftast í Frakklandi!

Stjórnarskrárréttur í Frakklandi hefur meinað lesbísku pari að giftast, þau eiga þegar fjögur börn.

Í úrskurði segir að  það sé stjórnmálamanna að  breyta þessum lögum sem hamla giftingu gagnkynheigðra.

 Þetta er sorgleg niðurstaða fyrir frakka og aðra  evrópubúa, þar sem að  meirihluti þessara landa styður sambúð homma og lesbía yfir höfuð.

Það er  því komin tími til að  þessum gömlu skruddureglum og úrsérgengnulögum verði eytt ekki síðar en  strax!!! 


mbl.is Frakkar meina lesbíum að giftast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband