Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Græðgisvakinn leystur úr læðingi

Var að líta inn á síðu vinar míns hans Júlíusar Björnssonar og sá hans frábæra blogg um græðgisvæðingu á Íslandi, hér er linkur á hans frábæru grein, lesið hana með jákvæður hugarfari og gefið ykkur tíma til að skilja þetta!

http://juliusbearsson.blog.is/blog/juliusbearsson/


Vona að Pólverjar vinni bronzið, segir þjálfari Cróata!

Með þessum orðum hleypir hann aðeins illu blóði í mig og  okkar menn, og vona ég að þegar að lokum kemur verða það pólverjar og cróatar sem éta það sem úti frýs og verði þeim það að góðu :)

Forseti Íslands í útrás

það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum að Ólafur er í stuði þessa daganna, hann er ódrepandi við að afla okkur atkvæða og notar hvert tækifæri til þess, og ég virði það mikils, en eitt sló mig illilega og það var þegar hann talaði um hve illa bretar og hollendingar væru að fara með okkur, og í næstu setningu talaði hann um  Ísland sem eina af ríkustu þjóðum landsins! sem við vissulega erum að ákveðnum skilningi, en það lýtur ekki vel út í þessum samanburði og í þessari orðaræðu forsetans. Það þarf að viðhafa alla mögulega skynsemi og orðheppni við öll opinber tækifæri, það gerði forseti Íslands ekki í þessu tilfelli.

Frábær björgun á Langjökli

Giftusamleg björgun átti sér stað í dag þegar að móður og barni var bjargað úr sprungu á Langjökli, ekki er vitað hve mikil meiðsli þeirra er en ef Guð lofar hafa þau það bæði af með minni háttar meiðsli. Enn á ný sýna björgunarsveitir okkar hve nauðsynlegt er að styrkja þær með öllum tiltækum ráðum, fjárframlögum og sölu flugelda.


mbl.is Hafa náð báðum úr sprungunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er það bara bronzið, ekki satt :)

Svona fór um sjóferð þá, og ekki skal sýta, heldur spýta í lófa og safna liði gegn pólverjum og rústa þeim!"!"!!! ekkert djö %///&(/)/%%&$( hangs heldur vörn og aftur vörn, þá kemur þetta.


Árs bloggafmæli

Á morgun er liðið ár síðan ég hóf að fikta við blogg, og hafði enga hugmynd um hvað ég væri að fara út í, en það hefur reynst ansi skemtilegt þegar upp er staðið og þakka ég öllum þeim sem sent hafa comment á mínar færslur.

Fyrsta  blogg mitt  var um réttmæti hvalveiða http://gudjul.blog.is/blog/gudjul/month/2009/1/, og í dag þegar að  þorrin er þreyttur hvarvetna, er alvöru súr hvalur af langreyð á boðstólum í betri búðum, ég er mjög ánægður með það.

Annað blogg mitt var um hina vösku sveit löggæslumanna er stóðu í sveita síns andlits andspænis reiðum múgnum sem í rétti sínum mótmæltu ranglæti heimsins og útrásarbulli nýrýkra fjármálabraskara og voru sem á milli steins og sleggju. http://gudjul.blog.is/blog/gudjul/entry/783074

Ég vona að bloggið sé komið til að vera og álit almennings komi til skila þar í gegn, ég held að áhrif þess sé mun meiri en margur geri sér grein fyrir! Áfram Ísland á morgun sem og alltaf :)

 

 


Hér er talað tungum tveim

Greinilegt er að misvísandi fréttir berast um ágæti þessa fundahalda, og tala menn tvennum tungum hvað það varðar. Ekki skal ég segja um hve ágæti þessa fundahalda er en sé tekiið mið af fyrirsögnum er það misheppnað í hvívetna.
mbl.is Bjartsýnir eftir fund í Haag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fegnir að sleppa við íslendinga

Pólverjar segjast fegnir við að losna við leik á móti okkur íslendingu, og segja. „Fyrir okkur er betra að mæta Króatíu en Íslandi. Við höfum átt í mestu vandræðum gegn Íslendingum og það voru einmitt þeir sem slógu okkur út á Ólympíuleikunum," og áfram segja þeir; „Ég vona bara að við náum að sigra Króata og að Frakkar leggi Íslendinga að velli," sagði Wenta ,  og nú er bara að sjá hvað skeður  á kl 13 í dag!!


mbl.is Pólverjar fegnir að sleppa við Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg er það merkilegt................

Alveg er það merkilegt að engin skuli "commentera" á Loga hjá mér! Finnst engum ykkar þetta vera íþróttaleg frammistaða ?


Athyglisverð grein um EM og Ísland hér!

Skoðið þessa grein á opinberu síðu austurríkismanna um handbolta.

Þar koma ýmsar skemtilegar upplýsingar fram.

http://www.ehf-euro.com/Singe-News.511.0.html?&tx_ttnews[tt_news]=3203&cHash=04904b4b1a#

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband