Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

Skyldi nokkurn undra eftir allt þetta rugl?

Ekki undrar mig að þetta skuli vera frétt úti í Hollandi og í Bretlandi!, þessi frestun á láninu hefur gríðarleg áhrif á allt viðskiptalíf okkar íslendinga og órar raunverulega engan hve djúp þau áhrif eru! Gjaldþrot eiga eftir að verða mun meiri en þau þegar hafa verið og áhrifin verða gífurleg.
mbl.is Íslendingar kenni Hollandi og Bretlandi um allt slæmt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

blæs ekki byrlega fyrir handboltalandsliðinu undir 19 ára

Nú er staðan 21-30 fyrir Króata og eru okkar drengir greinilega þjakaðir af hitanum sem ku vera um 40 stig í höllinni, en vonandi tekst þeim að minnka muninn fyrir lok leiks!

Alien snýr aftur !

Veit ekki hvort þetta eru góðar eða slæmar fréttir, er nóg komið eða getur þessi gamli jaxl gert kraftaverk með þessari mynd sem á víst að eiga sér stað fyrir tíma fyrstu myndarinnar, vona að þetta takist vel upp og við fáum að sjá fræbæra hrollvekju með nýjustu tækni Smile
mbl.is Geimskrímslin snúa aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lambalæri fyrir fellihýsi, annsi ódýrt!

Mér finnst það nokkuð sínkt að bjóða aðeins eitt lambalæri vegna funds  á heilu fellihýsi, nær væri að bjóða lambaskrokk !!

http://visir.is/article/20090725/FRETTIR01/856843314/-1


Pepsi deildin er goslaus!

Nú þegar deildin er  hálfnuð, finnst mér ekki lengur gaman að  fylgjast með vegna yfirburða FH liðsins. Nokkur lið hafa sýnt smá tilburði til að ná til toppsins en hafa ekki erindi sem erfiði. það er þvi ekki fjarri lagi að segja að Pepsíið sé goslaust !!


Fótbolti eða bissniss

Í  framhaldi af bloggi er ég skrifaði í gær, um Eið Smára vil ég taka fram að ég hef alls ekkert á móti manninum, þvert á mót,  það sem ég meinti og var að reyna að segja, var að mér hefur fundist hann þurfa að spila meira með sínu liði og vil þar af leiðandi fá hann til liðs við annað lið, öðruvísi fær hann ekki leikæfingu, mæli með flutningi.

Stoltið er stórt og mikið

Það hlýtur að hafa verið mikið upplifelsi fyrir Guðlaug Victor að vera fyrirliði og vera með menn eins og Gerrard í liðinu þennann varaliðsleik, ég hef aldrei heyrt um þennann leikmann en hlýt að binda mkklar vonir við hann, það þarf töluvert til að vera kosinn fyrirliði liðs Liverpool!


mbl.is Guðlaugur fyrirliði þó Gerrard væri með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Spáni er gott að djamma og djúsa...

Það kemur mér ekki á óvart að það séu helst bretar sem skili hátt í þessi 10%, enda hefur ekki verið þverfótað fyrir þeim á Spáni, hvort heldur það er á Costa Del Sol eða Kanarí, þeir eru í gríðarlegum meirihluta útlendinga hvað varðar eignar á börum!
mbl.is Ferðamönnum fækkar um 10% á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef ég væri ríkur !

Gott hjá þessum heppna, vona að hann njóti þessara 46 milljóna og að hann hafi þörf fyrir þær, en ekki þegar í hendi, þá meina ég að hann sé ekki þegar vel stæður útrásarvíkingur!
mbl.is Vann 46 milljónir í Lottó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiður! farðu að spila fótbolta

Hann var í byrjunarliði Barcelona í kvöld, en hversu lengi verður hann í hópi efstu manna? er hann það snobbaður að hann sjái sér ekki fært að skipta um lið, þar sem leiðinn myndi liggja niður á við? Hvað finnst ykkur?


mbl.is Eiður Smári var í byrjunarliði Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband