Kóka kóla til Spánar, spánskt vatn í kókið?

Nú er bara spurning hvort versksmiðjan verði lögð niður og send til Spánar og við fáum spánskt vatn í kókið okkar!!

coca cola


mbl.is Spánverjar kaupa Vífilfell
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ÞETTA ER HVORT EÐ ER ÓGEÐISDRYKKUR.

Númi (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 23:18

2 identicon


Burtséð frá því hvor þér finnst þetta vondur drykkur hlýtur það að  vera  okkur íslendingum kappsmál að halda  þessari verksmiðju hér á  landi.

Gudmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 23:35

3 identicon

Hvað sem gerist þá kemur þetta spánskt fyrir sjónir!

Björn (IP-tala skráð) 16.1.2011 kl. 00:24

4 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

hahaha góður!

Guðmundur Júlíusson, 16.1.2011 kl. 00:37

5 Smámynd: The Critic

spánskt vatn er ekki verra en hvað annað, ef það myndi þýða lægra verð er mér sama

The Critic, 16.1.2011 kl. 01:17

6 identicon

Hvað með möguleika vífilfells að tappa á íslensku vatni og selja til útlanda?

Geir (IP-tala skráð) 16.1.2011 kl. 01:29

7 Smámynd: Sveinn Þór Hrafnsson

já þetta mikla Gyðinga vatn er loksins að komast í þeirra eigu.. og framleiðslan mun koma þeim gull í bú til ó taldara ára.

Sveinn Þór Hrafnsson, 16.1.2011 kl. 01:30

8 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Hvernig væri nú að hætta  bara að þamba þennan drykk sem allir vita að er óhollur og eintómur sykur. Þjóðin orðin spikfeit og jafnvel börnin okkar að verða eins og Kanar í vextinum.

 Ég gæti vel trúað að næsta skref hjá Spánverjum yrði að tappa vatni á flöskur og selja Íslenskt vatn í útlöndum. Þannig komast þeir í auðlindirnar okkar á augabragði. Fólki er kannski alveg sama um það ef það fær eitthvað aðeins ódýrara.

Mér finnst þetta ekki gott mál. kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 16.1.2011 kl. 10:11

9 Smámynd: The Critic

Kolbrún: Ef Spánverjar tappa vatni á flöskur og selja til útlanda er það bara gott mál. Get ekki séð hvernig þú færð það út að þeir eignist auðlindirnar með því, nema þú lítir á Vífilfell sem þjóðar auðlind. Getum þá sagt að allir útlendingar sem fá sér vatns glas eða fara í sturtu á íslandi séu að komast í auðlindirnar. Það er ekki verið að selja þeim Gvendarbrunna, heldur aðeins átöppunarverksiðju. Ef þeir myndu fara að flytja út vatn myndi það aðeins skapa atvinnu og gjaldeyri.

The Critic, 16.1.2011 kl. 14:45

10 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Þegar Spánverjar verða farnir að selja vatn í stórum stíl út á hreinleika og heilbrigði hins íslenska vatns eru þeir komir í góð mál. Gott að þú ert ánægður með það en ég er það ekki. Vatnið er auðlind en ekki Vífilfell. Framleiðslan færi fram í Vífilfelli þ.e. átöppunin. Vatn er sú auðlind sem á eftir að verða mesta eftirspurn eftir í heiminum á næstu árum. Ef erlend fyrirtæki eru farin að nýta auðlindina þá er ekki mikið eftir af íslenska auðnum, ekki einu sinni þó þeir komi með einhvern gjaldeyri hingað. Er nú ekki alveg farin að sjá það gerast. Væri t.d. í lagi að Spánverjar ættu Granda og Samherja eða einhver stærstu kvótafyrirtækin okkar. Annars er ég ekki vön að svara þeim sem skáka í skjóli nafnleyndar og læt því þetta duga. Kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 16.1.2011 kl. 19:17

11 Smámynd: The Critic

Finnst þetta soldið langsótt hjá þér verð að segja það.  Hinsvegar held ég að Spánverjarnir séu að fara að gera lítið annað en tappa á kóki fyrir íslenska neytendur og enga aðra.

The Critic, 16.1.2011 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband