Save your kisses for me, Turkey

Save your kisses for me sungu þau í Brotherhood of men árið 1976 sem framlag Breta og var mjög vinsælt, enda skratti gott danslag á þeim tíma.

En í dag hafa Tyrkir tekið þá ákvörðun að sýna ekki frá þessari lokakepni á laugardag af þeirri fáráðnlegu ástæðu að Finnski keppandin kysti kynsystir sína smelli kossi á munninn, annsi pent þó! og engar tungur sáust þar á milli  Grin

kiss

Her er lagið fræga!


mbl.is Deilt um finnskan koss í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skræki Rúmeninn

Þegar að ég hélt að eurovisíon gæti ekki farið neðar í virðingarstiganum en það er í dag, heyrði ég og sá þetta lag frá Rúmeníu, hann byrjar vel en síðan gerist eitthvað Shocking


Tónlistarmyndbönd nútímanns eru úrkynjuð!

Ekkert fer eins í taugarnar á mér og tónlistarmyndbönd í dag, þau eru öll einhvernveginn á þann veginn að allt snýst um að litir og myndbrellur sameinist í einni allsherjar sinfóníu þar sem oftast nær sést ekki í flytjendur, hvorki söngvara né hljóðfæraleikara, dansarar eða álíka listamenn sýna listir sínar með stimamjúkum hreyfingum og í bakgrunn er eitthvað landslag sem kemur oftast laginu alls ekki við, og oftast er eina tengingin við munbandið það að maður heyrir lag viðkomandi flytjanda!!!

Ég man þá tíð að okkur bræðurna og vinina  hlakkaði til að sjá þætti í sjónvarpinu  með tónlilstarviðburðum þeirra sem þá voru vinsælastir, þar sem að þeir fluttu sín frægustu lög t.d. Rolling Stones, Elton John, Sweet eða hvað þeir allir hétu, þar sá maður þá flytja lög sín til okkar beint í æð, maður sá þá syngja og spila á hljóðfæri sín.

Tökum sem dæmi Eurovision lagið okkar, frábært dæmi um að þarna sé ekki staðið rétt að málum, við sjáum mynband okkar með Eyþór sem sjómann sem er hreint fáráðnlegt! hefði ekki verið betra að sjá kraftmikinn söngvara sem hann og  er sjást á sviði syngja af krafti í stað þess að vera að slægja karfa og synda i sjónum!!! ??


Á morgun vakna ég glaður maður!

Nú er þjóðhátið á mínu heimili, Sjálfstæðisflokkurinn er að vinna frábærann varnarsigur og gerði í raun betur en maður vonaði. Nú er bara spurning hvort Ólafur forseti gefi Sigmundi eða Bjarna keflið fræga til að mynda ríkistjórn, þó ég hallist á að það verði Sigmundur, í ljósi þess að hann er með mestu aukningu frá síðustu kosningu.

En samt tel ég að við íhaldsmenn getur verið þokkalega sáttir víð þessa útkomu, og munum svo sannarlega nota þetta tækifæri til að bæta þjóðfélagslega stöðu þeirra er mest þurfa á að halda.

Koma svo X - D Smile

Bjarni_Benediktsson_250


Öxar við ána

Öxar við ána, árdags í ljóma,
upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.
Skjótum upp fána, skært lúðrar hljóma,
skundum á Þingvöll og treystum vor heit.
Fram, fram, aldrei að víkja.
Fram, fram, bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðarböndum,
tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.

Þetta er það ljóð sem fyllir mig alltaf af hve mestu þjóðarstollti og blæs einhverjum aukakrafti í sálina í mér, enda veitir ekki af í öllum þessum hremmingum sem við höfum þurft að eiga við á undanförnum fjórum árum ríkjandi ríkisstjórnar okkar.

Heilbrigðismál eru í rúst, mál eldri borgara og öryrkja eru til mikillar skammar og ekki eru áform "guðs sé lof fráfarandi ríkistjornar" um "OFURSJÚKRAHÚS" til að hressa upp á sálina.

Þetta ljóð styrkir mann í trúnni um að ekki eigi selja sjálfstæði þjóðarinnar til Brussel.

Menn tala um að klára viðræður við EB vegna þess að það sé svo langt komið og það hafi kostað svo mikinn pening hingað til, HALLÓ!!!

Við eigum enn eftir þá kafla sem allt snýst um, landbúnað og sjávarútveg, það er það eina sem þá í Brussel skiptir máli! haldið þið að þeir séu í þessum viðræðum til að fá ekki neitt fyrir sinn snúð? aldeilis ekki.
Sjávarútvegur Spánverja, Íra, Breta svo ég nefni einhverja, eru í rúst eftir inngöngu í bandalagið!

Nei, eigum við ekki að segja pass á þessum tímapunkti og hörfa frá þessum viðræðum áður en þær kosta okkur enn meiri fjármuni ???


Tilræðismanninum í Boston náð!

Lögreglumenn og aðrir loggæslumenn hafa loks náð þessum hryðuverkamanni sem lék lausum hala í Boston, hann faldi sig í Bátaskrifli og er að sögn lifandi. Réttlætinu er fullnægt!!

Frá Watertown-hverfinu í Boston í kvöld. <em>AFP</em>


Er útrýming vændis á Íslandi möguleg?

Það er gaman að sjá þessar vangaveltur Breskra í Econimist þar sem þeir velta fyrir sér þeim möguleika að íslendingar séu sú þjóð sem séu næst því að útrýma vændi og klámi úr landinu. Nú þegar sé búið að banna nektarstaði og setja lög sem refsi fyrir kaup á vændi sem og að selja það.

Ekkert land í heiminum hefur tekist að ná fullri stjórn á viðskiptum með kynlíf, hvorki með lagasetningu né refsingum. En um allan heim, sérstaklega í ríkum lýðræðisríkjum, fylgjast stjórnvöld með því hvort Íslandi tekst að gera þetta, með það í huga að fylgja fordæmi þeirra,“ segir í greininni.

 Ég er ekki viss um að þetta eigi nokkurn tima eftir að verða að veruleika, það er, að ekki verði neitt klám eða vændi á Íslandi!!!

bikini girls photo:  bikini_girls-1.jpg
mbl.is Tekst Íslandi að útrýma vændi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær Jóhann G Jóhannson

Hver man ekki eftir þessu frábæra lagi hans Jóa G , Dont  try too fool me


842 mílljónir í laun fyrir tvo!

Ég er með ..................... í laun á mánuði og er þar af leiðandi fátækur miðað við þessi tvo, Steinunni og Pál, sem skammta sér sívirðileg laun án alls eftirlits að því er best virðist. Hvar eru stjórnvöld? Hvar er eftirlit með þessu liði?  Ég er búinn að fá upp í kok á þessu rugli og  krefst þess að við þessu verði eitthvað gert!!

Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson í slitastjórn Glitnis banka.


Just the Bieber!

Það er stormasamt i kringum kappann hann Bieber, greyjið reykti marjúana og var myndaður, og ljósmyndari lést við það að elta kappann, Bieber beraði svo bossann og setti á Twitter sem síðan var fjarlægt í snatri, skaut úr leikfangabyssu á öryggisvörð og áreytti konu á líkamsræktarstöð. Svona er endalaust hægt að halda áfram með hans raunir, það er ekki allra að  verða frægir, sumir hreinlega höndla hana ekki!!


mbl.is Berst Bieber eða bugast?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband