Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Á hvaða plánetu býr Össur Skarphéðinsson?

Össur hefur frá fyrsta degi haldið því fram að við ættum að fara í Evrópusambandið, hvað sem raular og tautar, og  hefur hann frá  þeim degi verið duglegur við að halda fram hinum  ýmsu rökum fyrir því að það væri bara gott fyrir landið.

Hann hefur í ræður og riti lýst kostum sambandsins sem best hann getu og oftar en ekki farið fram úr sjálfum sér í lýsingum á kostum þess sambands,

En mikið ósköp er maðurinn á miklum  villigötum! hann virðist vaða áfram þrátt fyrir að aðrar staðreyndir liggji fyrir, sbr, það sem hann segir í dag: "stuðningur við aðild Íslands að Evrópusambandinu á Alþingi hefur heldur farið vaxandi að undanförnu"

Þetta er það fyndnasta :)

Fylgt úr hlaði með stuttri ræðu

"„Við munum leggja fram skriflega greinargerð sem ég fylgi úr hlaði með munnlegri ræðu þar sem farið er yfir stærstu drættina. Ég mun þar leggja áhersla á þau grundvallaratriði sem koma fram í nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar. Það er sá grundvöllur sem allt ferlið byggir á."

Brrrrrr þvílikt endemis bull og sull!!!


Aukinn stuðningur við aðild ? Össur samur við sig

Hann er alltaf samur við sig hann Össur, nú segir hann að það sé vaxandi stuðningur við aðild að EB á Alþingi!! ég efa það og tel að þetta sé aðeins eitt af hans froðusnakki sem engin innistæða er fyrir, Össur vísar á bug gagnrýni sjálfstæðismanna vegna fyrirhugaðrar þátttöku hans í ríkjaráðstefnu ESB og segir flokkinn vera að einangra sig.

EB fáni

Lesið þessa grein þar sem hann útalar sig um þessi mál, þvílík stepa!

 


mbl.is Aukinn stuðningur við aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slökkviðlismenn neita að bera boðtæki

Nú þegar  að þeir eru komnir  í "verkfall" og neita að taka bakvaktir getur maður ekki að því gert að hinkra við og hugsa um tilgang þessa verkfalls þeirra slökkviliðsmanna, þeir fara fram á ákaflega miklar hækkair og hlýtur maður að gera athugasemd við þeirra kröfur.

Hví ættu þeir að fá hækkun  þegar að svo margar aðrar stéttir sem eru mun verr staddar en þeir fá enga hækkanir?

Að ekki sé talað um hvað verði ef stórbruni verður á meðan þessu stendur? Ætla þeir að taka ábyrgðina á sig?


mbl.is Neita að vera með boðtækin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vuvuzela-lúðrarnir bannaðir á rúgbý-landsleik í Suður-Afríku

Við  ættum að taka þá til fyrirmyndar hvað þessa lúðra varðar, það er ekkert jafn pirrandi og stingandi í eyry og Þessir lúðrar!!!


Þeir segja að veðrið verði gott

Ekki er ég nú einn af þeim sem fagna þessu veðri, þar sem  að þá flykkjast allir út úr bænum og engin  eftir til að versla hjá mér!!!, en það er sem betur fer alltaf hægt að treysta á eldri borgarana, sem ekki eru eins duglegir við  að ferðast, þeir  koma  þó til mín þó veðrið sé svona:

Smelltu á kortið til að fá betri sjón,

 

Veður


mbl.is Útlit fyrir gott helgarveður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slökkviliðsmenn í verkfall ???

Ég segi nú bara eins og kellingin forðum, "detta mér nú allar dauðar lýs úr  höfð'

En það er í sjálfu sér mjög alvarlegt mál þegar að lögregla eða slökkviðliðsmenn hóta að fara í verkfall, það er ekki það sama og að strætóbílstjorar eða mjólkurbússtarfsmenn hóta verkfalli, þetta er grafalvarlegt mál!! þarna þarf að gera eitthvað í málinul.


mbl.is Slökkviliðsmenn boða verkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Daniel John Hannan í dag: Drífið ESB-umsóknarferlið af og leyfið þjóðinni að kjósa!

Daniel  John Hannan sem er breskur þingmaður íhaldsflokksins fyrir Suðausturhluta Englands,  telur að við þurfum að drífa í öllu þessu umsóknarferli og láta síðan þjóðina  taka af allann vafa!

Hann ráðleggur engri þjóð að ganga  í sambandið.

„Ef niðurstaðan verður nei, þá setjist þið niður og finnið út úr því hvað kemur í staðinn. Ef það verður já, þá vitum við hvar þið standið. Verst af öllu er að draga þetta á langinn og bíða eftir að einhver tiltekin niðurstaða verði í skoðanakönnunum. Verið hreinskilin og heiðarleg og treystið fólkinu. Almenningur er yfirleitt skynsamari en stjórnmálamennirnir,“


Weisshappel safnar fyrir skuldugum Ómari Ragnarssyni

Frðrik Weisshappel veitingamaður í Danmörku hefur hrundið af stað söfnun á Facebook þar sem hann hvetur fólkl til að gefa þúsnund kall í sjötugsafmælisgjöf til handa Ómari Ragnars, fyrir störf hans í þágu  íslenskrar náttúru.

Ómar segist vera gríðarlega skuldugur vegna allra þeirra heimildamynda er hann  hefur gert.

Hægt er að leggja inn á reikning Ómars sem hefur verið stofnaður en reikningsnúmerið er 0130 26 160940 og kennitala 160940 4929.

http://visir.is/weisshappel-safnar-fyrir-skuldugum-omari-ragnarssyni/article/2010226209624


Setti hlið um bústað forsætisráðherra á Þingvöllum

Foraætisráðherra og hennar ráðuneyti lét í vikunni setja hlið í kringum Þingvallabæ sem kallaður hefur verið bústaður forætisráðherra á Þingvöllum!!

Í 80 ára sögu þess hefur aldrei verið girt í kring um þennann stað fyrr en nú!!

Ég spyr mig þeirra spurninga, hvers vegna  er það gert núna, er núverandi forsætisráðherra ekki öruggur um eigið líf eða er hann komin með "útlenska" fóbíu um vernd gegn brjáluðum mótmælendum!!! eða hvað?


Búið að finna fellihýsin sem stolin voru!

Það er búið að handtaka tvo menn vegna þessa máls og telja menn að um skipulagða starfsemi sé um að ræða, og þar af leiðandi  voru mennirnir að reyna að  koma  þessu í verð.


mbl.is Búið að finna fellihýsin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband