Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
20.3.2009 | 20:39
Útrýmið spillingunni
Ég fagna þessari yfirlýsingu páfagarðs um friðþenkjandi Afríku og útrýmingu spillingar en því miður held ég að þetta verði óvinnandi veguri í nánustu frámtíð, slíkt er ástandið í þessari heimsálfu. Sumpart finnst mér þessi ummæli þó eitthvert yfirklór vegna fyrri yfirlýsingar páfa vegna getnaðararvarna er hann lét falla um daginn, og sé að friðþægja sjálfann sig. Sorrý !
Páfinn: Útrýmið spillingunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.3.2009 | 20:25
Trúðverðuleiki kaþólskrar yfirstéttar
Ég er alls ekkert á móti hinum almenna kaþólikka, langt í frá, þeir eru hvorki verri né betri en aðrir trúarinnar menn, en það er hins vegar "yfirstétt" hinnar kaþólsku trúar sem er búinn að eyðileggja ímynd þeirra, ekki síst núna á krepputímum þegar við horfum mikið nánar á alla eyðslu og allt það bruðl er viðgengst í heiminum. þeir eru gersamlega komnir út úr öllum raunverluleika hins veraldlega lífs. Það er t.d. alkunn staðreynd að í dýpstu kimum Vatíkansins sem eru ekki neinar þriggja herbergja íbúðir, eru gríðarleg söfn dýrgripa, málverk og fleira sem ættu aðeins heima á söfnum heimsins fólki til yndisauka og ánægju.
Ég var staddur í einni af hinum mörgu fögru kirkjum Evrópu, nánar tiltekið í Sevilla á Spáni í hittifyrra, og er ég gekk inn var sem ég missti andann af einskærri undrun yfir öllu prjálinu, gullinu og ríkulegheitunum sem þarna voru allsráðandi. Ég hugsaði með mér að Jesú hlyti að snúa sér við í gröf sinni ef hann vissi hvernig þróun trúarinnar hefur breyst frá því er hann hóf boðskap sinn sem trésmiðarsonur upp í þennan auðsöfnuð sem smátt og smátt raunin hefur orðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2009 | 19:51
ÖSE fylgist með með kosningum á Íslandi !
Já, þetta er alveg ótrúleg staðreynd sem blasir við okkur hér á Íslandi, landi elsta þjóðþings í heimi, og að því er ég best veit hafa kosningar alltaf gengið algerlega snurðulaust fyrir sig, og mig langar að vita nánar um ástæður þess að þetta þurfi að gerast? Er litið á okkur sem algert bananalýðveldi og eða ríki einræðis og spillingar að til þessa eftirlits þurfi að koma?
Er þetta gert í kjölfar bankahruns okkar og þeirrar staðreyndar að við skulum hafa verið settir á hryðjuverkalistanns margumrædda? Er þetta krafa sem sett er vegna láns okkar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum? Og er þetta fyrsta skref í þá átt að við erum að missa sjálfstæði okkar sem gjaldþrota þjóð ??
Ég bara spyr ???
ÖSE fylgist með kosningunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.3.2009 | 19:11
Jóhanna með um 80% atkvæða
Jóhanna með 80% atkvæða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 20.3.2009 kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.3.2009 | 17:41
Gunners á skriði
Arsenal í fjórða sætið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2009 | 23:34
Er kaþólsk trú á villigötum?
Þegar að maður heyrir svona fréttir langar mann hreinlega til að leggja upp laupanna og gefast upp. Þessir hempuklæddu menn hinnar kaþólsku kirkju virðast engan veginn vera staddir í raunveruleikanum í hvaða merkingu þeirra orða sem þau nú eru. Þeir dirfast að fordæma lítið barn 9 ára að aldri, littla stúlku sem varð þunguð eftir nauðgun stjúpföðurs síns, ófreskju, ekki bara að einu barni heldur tvíburum.! .
Kaþólski kardinálinn segir að "hin ófæddu börn" hafi átt rétt á að lifa, og undir þetta taka hinar hávirðulegu hempur í Róm! Hvað í ósköpum verður til að menn ( í þessu tilfelli hávirðulegir kardinálar og aðrir hempuklæddir menn hinnar kaþólsku trúar) kunngjöri þvílíkann boðskap? Þetta er alls ekkert nýtt hjá þessum trúarinnar mönnum, þeirra blóðslóð má rekja langt aftur í aldir, gleymum því ekki að þeir gerðu út málaliða (Hermenn) til Suður Ameríku á sínum tíma og drápu þúsundir manna í nafni trúarmála. Nei, ég held að tími sé kominn til að kíkja á þessa klerka betur, þeir eru ekki betri en fjármálamennirnir okkar, þess virði að kíkja á.
Vatíkanið tekur undir fordæmingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 8.3.2009 kl. 02:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.3.2009 | 20:05
Neysla dregst saman, eða?
Nú þegar kreppir að skóm þarf að herða reimarnar fastar að svo tryggt sé að jafnt og örugglega sé stigið til jarðar. Þessi könnun Morgunblaðsins sýnir t.d. að um 90% fleiri lögðu inn númeraplötur sínar frá okt 08 til mars 09, og jakkafatahreinsun hefur lika dregist saman töluvert, enda færri bankamenn í fínum fötum Meira að segja gengur illa að selja hreinræktaða hunda! hvernig sem á því stendur nú. Það er líka mikil merking í aukningu á sölu á bökunarvörum, sem þýðir að fleiri eru að baka sitt eigið brauð frekar en að kaupa úti í bakaríi. Það er líka fyndið að fólk hefur greinilega minkað verulega notkun háralita, það var aðeins 30% aukning í febrúar miðað við tæplega 70% í nóvember 2008.
En allt hefur sínar björtu hliðar á móti, bankamenn fóru í flokkum til útlanda í árshátíðarferðir og létu væntanlega hreinsa sín föt þar, en gera það á Íslandi nú, fólk keypti tilbúnar kökur og lét vera að baka, en gera það nú, það eykur verslun í bökunarvörum, menn og konur fóru mikið út að borða á hinum fjölmörgu veitingastöðum borgarinnar, sem var bara gott út af fyrir sig en gera það ekki svo glatt í dag, þetta náttúrulega þýðir að fleiri kjósa að borða heima, sem aftur kallar á að það þarf að versla í búðinni þinni sem er bara gott. Svona dæmi er lengi hægt að telja upp á þessum erfiðu tímum og ekki auðvelt að segja til um hvernig fer, en ég er nokkuð bjartsýnn á framtíðina
Neysla dregst saman í kreppunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)