Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Árs bloggafmæli

Á morgun er liðið ár síðan ég hóf að fikta við blogg, og hafði enga hugmynd um hvað ég væri að fara út í, en það hefur reynst ansi skemtilegt þegar upp er staðið og þakka ég öllum þeim sem sent hafa comment á mínar færslur.

Fyrsta  blogg mitt  var um réttmæti hvalveiða http://gudjul.blog.is/blog/gudjul/month/2009/1/, og í dag þegar að  þorrin er þreyttur hvarvetna, er alvöru súr hvalur af langreyð á boðstólum í betri búðum, ég er mjög ánægður með það.

Annað blogg mitt var um hina vösku sveit löggæslumanna er stóðu í sveita síns andlits andspænis reiðum múgnum sem í rétti sínum mótmæltu ranglæti heimsins og útrásarbulli nýrýkra fjármálabraskara og voru sem á milli steins og sleggju. http://gudjul.blog.is/blog/gudjul/entry/783074

Ég vona að bloggið sé komið til að vera og álit almennings komi til skila þar í gegn, ég held að áhrif þess sé mun meiri en margur geri sér grein fyrir! Áfram Ísland á morgun sem og alltaf :)

 

 


Hér er talað tungum tveim

Greinilegt er að misvísandi fréttir berast um ágæti þessa fundahalda, og tala menn tvennum tungum hvað það varðar. Ekki skal ég segja um hve ágæti þessa fundahalda er en sé tekiið mið af fyrirsögnum er það misheppnað í hvívetna.
mbl.is Bjartsýnir eftir fund í Haag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fegnir að sleppa við íslendinga

Pólverjar segjast fegnir við að losna við leik á móti okkur íslendingu, og segja. „Fyrir okkur er betra að mæta Króatíu en Íslandi. Við höfum átt í mestu vandræðum gegn Íslendingum og það voru einmitt þeir sem slógu okkur út á Ólympíuleikunum," og áfram segja þeir; „Ég vona bara að við náum að sigra Króata og að Frakkar leggi Íslendinga að velli," sagði Wenta ,  og nú er bara að sjá hvað skeður  á kl 13 í dag!!


mbl.is Pólverjar fegnir að sleppa við Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg er það merkilegt................

Alveg er það merkilegt að engin skuli "commentera" á Loga hjá mér! Finnst engum ykkar þetta vera íþróttaleg frammistaða ?


Athyglisverð grein um EM og Ísland hér!

Skoðið þessa grein á opinberu síðu austurríkismanna um handbolta.

Þar koma ýmsar skemtilegar upplýsingar fram.

http://www.ehf-euro.com/Singe-News.511.0.html?&tx_ttnews[tt_news]=3203&cHash=04904b4b1a#

 


Hrikaleg harmsaga frá Danmörku

Það er sorglegt hve mannlegt eðli er breiskt, hvað fær mann til að drepa sín eigin afkvæmi? ef rétt reynist, og hvers vegna, það mun hafa verið um sambúðarslit að ræða og getur verið að það hafi verið kveikjan að brjálsemi mannsins.


mbl.is Varð tveimur börnum að bana í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær fulltrúi íþróttarinnar, Logi :) taka tvö

Auðvitað var ég að vísa til greinar  Eiríks S Ásgeirssonar frá Vín

http://visir.is/article/20100128/IDROTTIR02/502252889

 


Frábær fulltrúi íþróttarinnar, Logi :)

Þessi  grein Eiríks S. Ásgeirssonar  frá Vín er alveg lýsandi dæmi um frábærann íþrótt.amann sem veit sína stöðu og fer ekki í kringum hana. Logi Geirsson er búinn að vera meiddur lengi en var valinn í landsliðið sem síðasti valmöguleiki, og með von um að hann næði að hrista af sér meiðslin og koma sterkur inn, en þegar að nokkrir leikiir eru að baki og hann lítið sem ekkert komið við sögu, er hann keikur sem aldrei og segir liðið koma fyrst og hann síðan!

Hann segir "„Nei, það var alls ekki svekkjandi. Leikurinn var þegar unninn og eftir tíu ár í boltanum get ég sagt að það er ekkert leiðinlegra en að koma inn á í leikjum sem er þegar búið að vinna. Það er meira gert fyrir nýliðana í hópnum," segir Logi og brosir. Og hann segir ennfremur:

Nú er ég bara í „sálfræðidjobbinu" í liðinu," segir hann og hlær.

En ég er vissulega hluti af liðinu og legg mitt af mörkum til hópsins eins og allir aðrir. Það er vissulega stutt í grínið hjá mér en ég er í þessu til að spila og gera mitt gagn. Það kemur svo í ljós í síðustu leikjunum hvað það hlutverk verður."

 Og hann endar á þessum óeigingjörnu orðum:

„Ég er ekki sá leikmaður sem missir sjálfstraust ef hann fær ekki að spila. Þótt ég fengi ekkert að spila í tvö ár kæmi ég jafn góður aftur til leiks aftur. Allir hafa sína kosti og þetta er einn af mínum."

Ef þetta er ekki íþróttaleg framkoma til fyrirmyndar,  þá heiti ég ekki Guðmundur, heldur Jón !!!

Áfram Ísland á morgun, og vonandi kemur Logi sterkur til leiks.


Lánsmaður Arsenal beint í aðalið Boltun

Þetta sýnir hve gífurlega mikið er spunnið í ungu strákanna okkar hjá Arsenal, þeir eru að fara á láni til ýmissa félaga og fara beint í aðalið þeirra, hve björt er okkar framtíð ha :)
mbl.is Wilshere lánaður til Bolton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiður ekki með Spurs á morgun !!

Einmitt,  ég held að hann hafi einfaldega ekki sýnt á æfingu að hann sé nógu góður til  þess að spila með aðalliðinu, ekki gat hann sýnt það með Mónacó, því ætti það að breytast nú hjá Spurs?

Ég held að drengurinn hafi gert mistök varðandi val á liði, held að hann hefði orðið mun liðtækari í West Ham en hjá Tottenham!! meiri spilatími og mun meira pepp frá fyrrum félaga Zola. En það er er freistingin um  sæti Spurs í því fjórða og möguleg aðkoma að meistaradeild evrópu á næsta ári sem hlýtur að vega þungt há kappanum.


mbl.is Eiður spilar ekki á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband