Færsluflokkur: Bloggar
29.10.2010 | 21:24
Er Þór Saari að ýta undir fórdóma?
Bergþór G. Böðvarsson, fulltrúi notenda geðsviðs Landspítalans segir orð Þórs Saari sem hann lét falla í Reykjavík síðdedgis á Bylgunni í gær, ekki til þess fallinn að styrkja stöðu geðfallaðra í Íslandi, og í raun mjög óábyrgt af þór að láta þessi orð falla þar sem að engar rannsóknir séu til sem sýni að fólk sem glími við geðveiki eða aðra sjúkdóma því skylda sé hættulegra en annað fólk.
Þór Saari sagði: Það gengur ekki að hafa tugþúsundir manna niðri á Austurvelli öskrandi á Alþingishúsið og kastandi drasli í það. Þetta er ekki siðmenntað stjórnarfar. Þetta er eins og einhverskonar geðveikrahæli."
Ég get engan vegin séð að Þór Saari sé að vega á einn né annann hátt að geðfölluðum á Íslandi með þessum orðum? Að mínu mati er hann aðeins að lýsa því ástandi sem skapast hefur vegna lélegs stjórnarfars og að það er orsök þess ástands sem Austurvöllur er nú miðdepill að, og að það gangi engan veginn, í framtíðinni. Varðandi það að hann nefni þetta "einhverskonar geðveikrahæli."
er hann aðeins að nota hugtak sem að landsmenn hafa alltaf notað þegar að allt er í bál og brandi, hvort sem á heimili sé eða úti í heimi, hver hefur ekki notað þessi sterku lýsingarorð um ástand í sínum ranni?
http://visir.is/segir-thor-saari-yta-undir-fordoma/article/2010618272697
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.10.2010 | 01:56
Trúarágreiningur um steikarlykt af beikoni - Veitingamanni gert skylt að loka loftræstingunni
Hér er enn eitt dæmið um þær öfgar sem fólk þarf að búa við vegna trúmála einnar og sér.
þegar að veitingamaður sem starfrækt hefur samlokustað sinn í átta ár án kvartana fær allt í einu kvörtun frá manni í næsta húsi vegna þess að beikonilmurinn sem berst frá loftræstingunni fælir íslamska vini hans frá því að koma í heimsókn!!!
Halló!! hvernig er heimurinn eiginlega að verða? sjá frétt á Pressunni hér að neðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.10.2010 | 01:07
Ég vil að ungu strákarnir þurfi að hafa fyrir hlutunum
Þetta segir Harry Redknapp stjóri Tottenham, og ég er hjartanlega sammála honum, hann segir:
"Ég hef áhyggjur af krökkunum. Lið eru að lenda í því að gera langa samninga við krakka af ótta við að missa þá. Þeir koma til félaganna 17 ára gamlir og allt í einu standa þeir uppi með 4 eða 5 ára samning,"
"Þá eru þeir komnir í þá stöðu að geta gert það sem þeir vilja þar sem þeir eiga nóg af peningum. Einhverjir munu leggja sig alla fram en meirihlutinn mun hafa það of þægilegt."
Hann segir einnig að ungir leikmenn eigi ekki að fá meira en eins árs samning til að tryggja það að þeir leggi sig hundrað prósent fram til að tryggja sér áframhaldandi samning.
"Það er eitthvað sem stjörnurnar í gamla daga þurftu að gera. Þeir þurftu að hafa fyrir hlutunum. Í dag fá krakkarnir langa samninga þar sem félögin óttast svo að missa þá frá sér."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2010 | 23:56
Eru Bandaríkin reiðubúin fyrir samkynhneigðan forseta?
Það er ekki að spyrja að bandaríkjamönnum, blekið er ekki fyrr þornað af fréttum um borgarfulltrúann Joel Burns frá Fort Worth í Texas, sem er samkynhneigður og flutti tilfinningaþrungna ræðu í tilefni af hrinu sjálfsmorða ungra samkynhneigðra pilta og fórnarlamba eineltis að menn vestra eru farnir að spá í hvort nú sé komið að því að næsti forseti Bandaríkjanna gæti verið samkynhneigður!!
Slík er fréttamennska þeirra þarna vestra að maður á engin orð, það hlýtur að vera þvílík gúrkutíð í fréttamennsku að menn grípa þetta sem "headlines" og gera þvílíkt show úr þessu! Allt til að selja áskrift geri ég jú ráð fyrir.
http://visir.is/eru-bandarikin-reidubuin-fyrir-samkynhneigdan-forseta?/article/2010848328230
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.10.2010 | 20:43
Jón gnarr "veikur og ruglaður"
Að eigin sögn er hann veikur og ruglaður, eftir sýklameðferð greyjið, ekki á bætandi hjá veslings ræflinum!!
Hann verður kannski að ráða þriðja varaborgarstjóra til að hlaupa í skarðið fyrir sig!!! Spurning hver það yrði, ætli Pétur Jóhann sé laus ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.10.2010 | 02:05
Rooney, Ferguson og Littla gula hænan
Eftir allt sem á undan er gengið hefur Wayne Rooney ákveðið að endursemja við Man U til fimm ára, og hefur heldur betur skipt um skoðun á klúbbnum á ca sólarhring!!!
Á miðvikudag var þessi sami klúbbur að hans mati algerlega metnaðarlaus, og var það að hans áliti meginástæða til þess að hann vildi fara, en rúmun sólarhring seinna er hann búinn að semja, og allt í einu segir hann að klúbburinn sé mjög metnaðargjarn?????
Ég held að þetta sé snjall leikur hjá stjóranum og Davið Gill, ef þeir hefðu ekki náð að semja við hann fengist nánast ekkert fyrir hann á næsta ári, en nú geta þeir í janúar selt hann fyrir metfé sem ég held að þeir muni gera, því að það kemst engin upp með að niðurlægja Ferguson frammi fyrir alþjóð, spyrjið bara Beckham og Staam og fleiri!!!
Þegar að á öllu er á botninn hvolft, segir Rooney að það hafi ekki verið hann sem olli þessum óróa, en það skrýtna er að Ferguson segir það sama!!!
![]() |
Rooney með fimm ára samning við Man.Utd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.10.2010 | 00:50
Frjálst er í fjallasal
Nú þegar að stjórnlagaþing mun brátt koma saman og um fimmhundruð manns hafa boðið fram krafta sína í þágu þess, er vandasamt að ímynda sér hvernig frambjóðendur hafa hugsað sér að koma sínum skoðunum á framfæri í ljósi þess stutta tíma sem þeir hafa, og ekki síst í ljósi fjölda þeirra og getu fjölmiðla til að gefa þeim tilhlýðilegt pláss þar sem eins og menn vita eru þessir frambjóðendur misvel í sveit settir. Svo er það hitt, að kjósendur eru á engan hátt tilbúnir að mynda sér skoðanir um þessa fimmhundruð og eitthvað frambjóðendur á þessum stutta tíma.
Munum við sjá einhverja breytingu á framsögu þeirra til handa okkur í bloggi þeirra eða öðrum skrifum þeirra á neti eða í blöðum?
Munum við sjá þetta sama munstur og alltaf þar sem loforð eru gefin í kjölfar kosninga þótt að ekki sé möguleiki á að við það sé staðið!!! annað eins hefur nú gerst!, það vita þeir sem vit hafa á.
Það er jú í eðli mannskepnunnar að berjast, og í bardaga eru oft viðhöfð brögð sem ekki eru leyfileg, en ég hlakka til að sjá framvindu þessarar kosningabaráttu, þeirra er mest hafa haft sig í frammi um spillingu í sjórnmálum dagsins í dag, og haft í frammi hve háværust mótmæli um breytta tíma og betri kjör almennra borgara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2010 | 23:08
Jón "gnarr" hvetur konur til að leggja niður vinnu!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2010 | 22:49
109 þúsund Írakar látnir, 63% af þeim eru óbreyttir borgarar
Skv skjölum Vikileaks hafa um 109 þúsund Írakar látið lifið frá 2003 - 2009, eða það segir sjónvarpsstöðin Al Jazeera sem hefur rannsakað þessi skjöl í tvo mánuði.
Þetta ýtir enn frekar undir þær raddir sem segja að bandaríkjamenn hafa farið með rangindi um stríðsrekstur sinn frá upphafi og ávallt reynt að hylma yfir válega atburði sem skeð hafa í Írak, enda ekki við öðru að búast af þessu herveldi sem í engu sparar til að ná fótfestu í sem flestum heimshlutum ef möguleg gróðarvon er í augsýn, og er þá ekki spurt að því hvort troðið sé á fótum almennra borgara eður ei.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2010 | 20:09
Portsmouth gjaldþrota
Nú bendir allt til þess að þetta sögufræga félag verði gjaldþrota og Hermann Hreiðarsson sem spilar fyrir þennann klúbb verði að leita sér að öðrum vinnuveitanda!
Portsmouth hefur verið í greiðslustöðvun síðan snemma á þessu ári en komið var að því að aflétta henni. Það tókst hinsvegar ekki þegar fyrrum eigandi félagsins, Alexandre Gaydamak, krafðist hárrar greiðslu þegar í stað ef það ætti að gerast.
Við vonum að Hemmi fái inni hjá félagi sem gerir honum hátt undir höfði, eins og hann á skilið.
![]() |
Portsmouth á leiðinni í gjaldþrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)