Færsluflokkur: Bloggar
22.7.2011 | 22:34
Minnst 17 féllu í árásunum, óttast er að mun fleiri finnist látnir
Nú hefur lögreglan í Noregi gefið út að hið minnsta sautján hafi látið lífið í sprengingunni í Osló og á eyjunni Utoya í Þistilfirði. Enn er ekki útséð um hve margir enn finnast en margra er en saknað.
Skv heimildum frá fólki er ég þekki í Noregi er ástandið mun verra en menn geta ímyndað sér á fréttamyndum sjónvarpsstöðvanna. Hér á myndinni má sjá ungmenni á sundi að reyna að koma sér frá ejunni.
![]() |
Minnst 17 féllu í árásunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2011 | 18:59
Segjast hafa séð 30 látna
Sjónarvottar segjast hafa séð um 30 lik og mörg þeirra í flæðarmálinu á eyjunni Utøya , þannig er greinilegt að mönnum ber ekki saman um þetta, en eitt er þó víst að það eru ekki öll kurl komin til grafar í þessum hryllilegu atburðum í Noregi.
![]() |
Segjast hafa séð 30 látna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.7.2011 | 22:45
Forbes metur Arsenal sem 7 stærstu í heimi!!
Og eru þá ekki aðeins talin með knattspyrnufélög, heldur öll íþróttafélög í hvaða grein sem hugsast getur. Þetta sýnir hve vel þessu félagi hefur verið stjórnað.
Sjáið listann hér að neðan:
- Manchester United / Football / $1.86 billion
- Dallas Cowboys / NFL / $1.81 billion
- New York Yankees / MLB / $1.7 billion
- Washington Redskins / NFL / $1.55 billion
- Real Madrid / Football / $1.45 billion
- New England Patriots / NFL / $1.37 billion
- Arsenal / Football / $1.19 billion
- New York Giants / NFL / $1.18 billion
- Houston Texans / NFL / $1.17 billion
- New York Jets / NFL / $1.14 billion
- Philadelphia Eagles / NFL / $1.12 billion
- Baltimore Ravens / NFL / $1.07 billion
- Ferrari / Formula 1 / $1.07 billion
- Chicago Bears / NFL / $1.07 billion
- Denver Broncos / NFL / $1.05 billion
- Idianapolis Colts / NFL / $1.04 billion
- Carolina Panthers / NFL / $1.04 billion
- Tampa Bay Buccaneers / NFL / $1.03 billion
- Bayern Munich / Football / $1.03 billion
- Green Bay Packers / NFL / $1.02 billion
- Cleveland Browns / NFL / $1.02 billion
- Miami Dolphins / NFL / $1.01 billion
- Pittsburgh Steelers / NFL / $996 million
- Tennessee Titans / NFL / $994 million
- Seattle Seahawks / NFL / $989 million
- Barcelona / Football / $975 million
- Kansas City Chiefs / NFL / $965 million
- New Orleans Saints / NFL / $955 million
- San Francisco 49ers / NFL / $925 million
- Arizona Cardinals / NFL / $919 million
- Boston Red Sox / MLB / $912 million
- San Diego Chargers / NFL / $907 million
- Cincinnati Bengals / NFL / $905 million
- AC Milan / Football / $838 million
- Atlanta Falcons / NFL / $831 million
- Detroit Lions / NFL / $817 million
- McLaren / Formula 1 / $815 million
- Los Angeles Dodgers / MLB / $800 million
- Buffalo Bills/ NFL / $799 million
- St. Louis Rams / NFL / $779 million
- Minnesota Vikings / NFL / $774 million
- Chicago Cubs / MLB / $773 million
- Oakland Raiders / NFL / $758 million
- New York Mets /MLB / $747 million
- Jacksonville Jaguars / NFL / $725 million
- Chelsea / Football / $658 million
- New York Knicks / NBA / $655 million
- Los Angeles Lakers / NBA / $643 million
- Juventus / Football / $628 million
- Philadelphia Phillies / MLB / $609 million
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.7.2011 | 21:57
Bændur vilja 25% hækkun í haust!!
Eru þeir ekki með öllum mjalla? ég spyr? hvernig dettur þeim í hug að neytendur myndu sætta sig við að borga fjórðungshærra verð en þegar er í dag?
Skil það ekki, en eitt er athyglisvert í umræðunni, og það er að þeir eru að flytja út um 40% af allri sinni framleiðslu og ber á alvarlegum skorti á ákveðnum hlutum lambsins nú þegar!
Bændasamtökin eru nú þegar alfarið á móti inngöngu inn í EB og ekkrt við það að athuga, en hvað eiga neytendum að finnast um að þurfa að borga himinhátt verð fyrir lambakjöt í dag, plús mögulega fjórðungshækkun (sem sennileg aldrei verður það há) og á sama tíma er ekki hægt að fá ódýrt kjöt erlendis??? Hvar er sanngirnin í þessu? Tala ekki um alla þá milljarða sem ríkið gefur bændum í niðurgreiðslur ár hvert.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.7.2011 | 21:24
Lofar öllum landsmönnum Argentínu flatskjám!!
Alveg er þetta frábært, Cristina Fernandez forseti Argentínu kynnti slagorð sitt, Sjónvarp fyrir alla! og ekki bara sjónvarp, heldur flatskjá!!!
"Verðbólgan í Argentínu er gríðarlega há og laun landsmanna að sama skapi lág. Þá er matvöruverð sem og verð á hinum ýmsu lúxusvörum, einstaklega hátt. Cristine segist vilja auka neyslu landsmanna í von um að lækka verðbólguna."
Nú er það bara spurning hvort VG eða Samfó geri slíkt hið sama í næstu kosningu, þeir hafa engu að tapa, hrunið er slíkt!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2011 | 00:42
Megrunarplan Victoriu Beckham
Halló, þegar að svona fréttir koma á vefmiðlum, hvort sem þær eru á pappír eða á vef eins og þessum, rennur mér kalt vatn á milli skinns og hörunds!!
Hvað kemur okkur við þó að þessi ágæta manneskja sem ekkert hefur sér til ágætis nema að vera gift þokkalegum fótboltamanni sem að auki var einu sinni í Man U????
Hverjum er ekki sama þó að hún sé að fara að eignast sitt fjórða barn og vilji komast í stærð 4 strax að lokinni fæðingu eða hér um bil ?
Aumkunarverð blaðamennska, en í raun dapurlegt vegna þess að það eru lygilega margir sem vilja lesa þetta og fylgjast með lífi frægu stjarnanna????
http://mbl.is/smartland/stars/2011/07/09/megrunarplan_victoriu_beckham/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hversu betur eru þegnar þessa hrjáða lands komnir við þetta?
Allt innra skipulag stjórnkerfisins er lamað, olíulindir eru einhverjar, en hvað kemur það til með að skila þeim, verða nýjir ráðamenn heiðarlegri en þeir er fyrir voru? Nei, það held ég ekki, þetta er bara eitt valdataflið enn í svörtustu Afríku!
http://visir.is/sudur-sudan---nyjasta-land-i-heimi/article/2011110709106

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.7.2011 | 23:43
BP vill hætta að borga, skömm er ekki til í þeirra orðabók!!
Er þetta ekki týpískt fyrir stórfyrirtæki, að reyna að "stöðva tapið" (cut the loss) og koma með afsakanir sem eru gersamlega út úr kú!!
Að halda því fram að allt sé nú í himnalagi og allir túristar séu snúnir tilbaka og trallala!!!
Mér rennur kalt vatn á milli skinns og hörunds við svona ummæli!!
Ástand heimsmálanna er að stóru tilkomið vegna allt of mikilla yfirráða stórfyrirtækja í dag, sem í raun ráða pólítískt öllu, hver fer með völd í hverju landi fyrir sig með ofurstyrkjum sem faldir eru og engin sér, og ekki síst þrýstingi eða " lobbýisma" sem engin má vanmeta og kemur miklu í verk, sama hve landið er!!!
![]() |
BP vill hætta að borga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Húsið
Í vesturbænum húsið stendur autt og ógnþrúngið,
Með mölbrötna glugga er snúa í átt að sjó.
Reykháfurinn hálfur teygist afskræmdur upp,
Líkt og hendi upp úr hálfopinni yfirgefinni gröf.
Krakkarnir í hverfinu þau hræðast þennann stað,
Því heyrt hafa þau orðróm um að maður sæist þar! ,
Hann á að vera sveipaður í gullið herðasjal
Með augur er lýsa hungri og skelfingu í senn.
Enn einn var sá er þorði, þó með hálfum hug að fara,
Inn í þetta stóra hús og finna þennann mann,
Hann vissi ekki hitt að sagan hún var sönn!
Þessi maður hann var inni og eftir stráknum hann nú beið!
Það halla tók að kvöldi og að miðnætti senn leið,
Strákur læddist stuttum skrefum inn um dyr og beið,
Hann littla ljósatýru fékk úr vasaljósi fínu
En trúði vart að dynkirnir, þeir komu úr hjarta sínu.
Nú atburðirnir hraðar næstu mínúturnar liðu,
Er inn í breiðan gang hann kom og krakkar úti biðu,
Hann heyrði hávært hljóð er líktist klukknaslætti,
Hann snertingu við fótinn fann og andardrætti hætti !!!!
Höf:
Guðm Júlíusson
_______________________________________________
Kveðja
Guðmundur Júlíusson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.7.2011 | 17:40
Kóngulóin er besti veðurfræðingurinn
Hef verið að fylgjast með stórrí kónguló sem tekið hefur sér búsetu í garðinum mínum, og síðastliðnar fimm vikur hef ég ekki getað haft augun af henni og hennar fallega vef, sérstaklega þar sem mér er meinilla við þessa tegund skordýra og í raun afarhræddur við þær, og er alltaf að passa upp á að hún sé á sínum stað og fari ekki lengra, (þ.e. inn í íbúðinna) sem hún náttúrlega gerir ekki, og hangir bara á sínum vef og veiðir sínar flugur, gott mál.
En ég hef tekið eftir ákveðnu háttarlagi hjá þessari ágætu kónguló, hún finnur veðrið á sér svo ekki sé vægt í árina tekið.
Ef t.d. rok er væntanlegt er hún flúin upp í rjáfur einum til tveimur tímum áður, ef mikil sól er í kortunum er hún löngu komin til að undirbúa vef sinn, ef rigning er væntanleg er hún fyrst til að láta mig vita, því hún felur sig tímanlega áður en á skellur. Hver þarf á veðurfréttum Rúv eða Stöð 2 að halda þegar maður hefur þessa fínu kónguló??
Merkilegt nok þetta dýraríki !!!

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)