Megrunarplan Victoriu Beckham

Guð minn góður, er hún ekki flott?

Halló, þegar að  svona  fréttir koma á vefmiðlum, hvort sem þær eru á pappír eða á vef eins  og þessum, rennur mér kalt vatn á milli skinns og hörunds!!

Hvað kemur okkur við þó að þessi ágæta manneskja sem ekkert hefur sér til ágætis nema að vera gift þokkalegum fótboltamanni sem að auki  var einu sinni í Man U????

Hverjum er ekki sama þó að hún sé að fara að eignast sitt fjórða barn og vilji komast í stærð 4 strax að lokinni fæðingu eða hér um bil ?

Aumkunarverð blaðamennska, en í raun dapurlegt vegna þess að það eru lygilega margir sem vilja lesa þetta og fylgjast með lífi frægu stjarnanna???? 

http://mbl.is/smartland/stars/2011/07/09/megrunarplan_victoriu_beckham/ 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Að lokinni fæðingu segir þú, ég segi ef hún lifir það af. Manneskjan eins grindhoruð og hún er, og að því virðist illa hrjáð af annorexiu. Og þetta komment um að ætla að komast í föt nr. 4 segir eiginlega allt sem segja þarf um hversu sjúk hún virðist.

Innilega sammála þér um hversu ömurlegar svona fréttir eru. Hverjum kemur þetta við?

En eitt má þó daman eiga, þó hún sé gift David Beckham. Hún var ein af Kryddpíunum þar sem hún þénaði sand af peningum og síðan hefur hún reynst klók businessmanneskja, og hefur komið ár sinni vel fyrir borð, sjálf. Fólk má nú eiga það sem það á, jafnvel þó okkur hundleiðist að lesa um það.

Bergljót Gunnarsdóttir, 9.7.2011 kl. 01:03

2 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Þetta snýst ekki um velgengni eða peninga kæra  vina, heldur hvert fréttamiðlar eru komnir út í, ógöngur að mínu viti!

Guðmundur Júlíusson, 9.7.2011 kl. 01:15

3 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Ég biðst afsökunar kæri minn, en þú minntist eithvað á að hún hefði ekkert til síns ágætis nema að vera gift fyrr- eða núverandi fótboltastjörnu? Vildi því varpa ljósi á að konan er ekkert upp á stjörnuna komin.

Það þarf ekkert að útskýra fyrir mér hvert fréttamiðlar eru komnir. Þeir eru nákvæmlega á því plani sem fólk virðist flestallt vera, svona fréttir eru gleyptar í sig eins og heitar lummur og upp á það stíla miðlarnir, sorglegt, en samt satt.

Þetta er orðið svo fast í þjóðarsálinni að fólk eins og við, sem fyrirlítum svona fréttir lesum þær, okkur til skapraunar og hneykslunar. Þar með erum við ekkert skárri en þeir sem flytja okkur þær.

Bergljót Gunnarsdóttir, 9.7.2011 kl. 01:42

4 Smámynd: Guðmundur Júlíusson


Hún er jú ein af Spice girls, en er sennilega sú er enga hæfileika hafði, nema útlitið, en það er  efni í aðra grein.

Hvernig væri gagnrýnandi ef engin væri bókin??

Á maður ekki að lesa það sem  ekki er manni að skapi, hvernig er það hægt? ég spyr.

Ef okkur finnst efnið ekki  við  hæfi  þá bloggum við um það eða komum  því til skila á  þann hátt sem  við getum, ekki satt? 

Guðmundur Júlíusson, 9.7.2011 kl. 01:51

5 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Eins og þú vilt og finnst við hæfi, amen.

Bergljót Gunnarsdóttir, 9.7.2011 kl. 01:59

6 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Eru ekki sammála mér Bergljót? eða  hvað. láttu vaða

Guðmundur Júlíusson, 9.7.2011 kl. 02:07

7 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Hvernig væri gagnrýnin ef engin væri bókin, hvernig væri allt ef það væri ekki öðruvísi en við viljum hafa það.

Útlitið? Victoria Becham? Ég man nú ekki eftir neima einhverri horrenglu.

Víst er þetta meira og minna satt sem þú segir, en er það ekki það sem ég var að tala um hérna áðan. Við lesum þetta og bölsótumst síðan út í það, alveg rétt, en þetta er á svo lágu plani að kallast má lágmenning. Við skulum ekki rugla því saman við  bækur, leiksýningar eða tónlist.

 Ekkert af því kemst á framfæri nema eftir nokkurskonar ritskoðun, sem sagt útgefendur leikhúsráð eða t.d. plötuútgefendur. En þessi leiðindasíbylja af einskisverðum fréttum af fólki sem við höfum engan áhuga á er bara hreint annað mál og má svo sem mín vegna vera lesið, ef einhver hefur áhuga á.

Bergljót Gunnarsdóttir, 9.7.2011 kl. 02:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband