Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Létt burst á Everton í startið

Það er ekki slæm byrjun að vinna 1-6 á útivelli og það gegn Everton sem eru með sterkt lið alla jafna, en í dag vorum við einfaldlega allt of góðir fyrir þetta lið Cool
mbl.is Arsenal rótburstaði Everton á Goodison Park
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úff, þetta er ekkert venjulegt hrun!

Það er aldrei gaman  að lesa eða heyra um miður skemtileg afdrif landans á erlendri grund, það að lesa um hrun banka okkar í erlendum prentmiðlum er svo ömurlegt  að ekki er fingri á festandi!!


mbl.is Telegraph: Ekkert venjulegt hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Quislingar okkar tíma!

það er með ólíkindum hve linir og jafnvel sofandi okkar forystumenn eru í máli Icesave, að sætta sig við eitthvert málamyndasamkomulag sem í felst að "breyta" orðalagi samningsins sem í raun alls ekki á að greiða,  er ekki ásættanlegt! Mér liggur við að segja að okkar stjórnarliðar séu ekkert annað en nútímaútgáfur af hinum norska  Vidkun Quisling sem  sveik sína þjóð í hendur nasista í seinni heimstyrjöldinni, þeir eru í þessa mund að skrifa hrikalega sorgarsögu  í íslenska stjórnmálasögu sem þýðir að okkar ástkæra þjóð mun ekki bera sitt barr í óratíma!!

Guðmundur Júlíusson


Hér er hann aftur með "Starman"

Eitt af hanns betri lögum


David Bowie er engum líkur!

Hér er eitt af hans frábæru lögum "Young Americans"


Gott tækifæri fyrir góða íslenska þjálfara :)

Þó staða þessa ágæta landsliðs sé ekki glæst er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að snúa blaðinu við, er ekki rétt að þegar menn eru á botninum liggji leiðin aðeins upp á við! Ég mæli með að Atli Eðwalds  eða Willum Þór taki  á þessu liði og beini því upp úr öldudal margra tapa, einn sigur t.d. á móti Íslandi myndi gera þá að miklum þjóðhetjum í þessu eyríki!!!

http://visir.is/article/20090814/FRETTIR01/758153561


Halvorsen sýnir okkur ekki mikla "frændsemi" !

Þessi yfirlýsing Halvorsens um að ekki komi til greina að lána íslendingum nema að við klárum samnga við hollendinga, breta og AGS vegna Icesafe, er langt frá því að vera vinalegt handtak af hálfu okkar nærstu vinaþjóð! og er ekki í takt við það sem forsætisráðherra Noregs hefur látið hafa eftir sér.

http://visir.is/article/20090814/FRETTIR01/971270225/-1


Venger verður að sýna árangur á komandi tímabili, hans síðasti séns!

Margir hafa gagnrýnt Arsene Venger fyrir lélega  árangur undanfarinn ár,  og ekki síst fyrir að hafa selt of marga toppmenn og enga fengið í staðinn, ég sem stuðningsmaður Arsenal tel að þetta sé síðasti séns þessa annars góða manns hjá þessu félagi, nái hann ekki betri árangri á komandi sparktíð vil ég hann burt og nýjann mann í brúnna.


mbl.is Wenger lýgur fyrir leikmenn sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boði breta á að hafna!

Ég tel að við ættum að hafna allri aðstoð sem bretar bjóða okkur, bara fyrir prinsippið! Leggjumst ekki svo lágt að þiggja hana.


Verðlagseftirlit ASÍ er ekki í lagi!

Skv fréttum í  kvöld varðandi  þessa tilkynningu ASÍ og þeirra verðlagseftirliti finnst mér sem þenkjandi manni  að greinilegt er að þeir vita ekkert hvað þeir eru að gera! þeir rugla fram og til baka kíloverði og stykkjaverði, greina röng verð hvað ofan í annað, hversu lengi  eiga verslanir að þola þessa heimsku ríkisstofnanna????

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/08/07/asi_leidrettir_graenmetiskonnun/?ref=fphelst


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband