Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Er þetta spurning um Hollt og Bolt???

það er að sjálfsögðu ótrúlegt hve mikið afrek þessi maður hefur unnið á stuttum tíma, en engu að síður hafa runnið  á mig tvær grímur og hefur læðst að mér sá grunur að þessi maður sé ef til vill á einhverju!!!! en jég vona að svo  sé ekki.
mbl.is Bolt með 3 gullið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pepsíið er kannski ekki alveg goslaust eftir allt ?

Það var fjör í deildinni í dag, FH tapaði sem betur fer fyrir Grindvíkingum sem voru frábærir, Valur er á góðri leiið niður í fall, og Fylkir tapaði stigi gegn Fjölni, Frammarar sigruðu Störnumenn á hemavelli, (ekkert óvænt þar)  en það voru KR ingar sem stálu senunni með því að sigra Keflvíkinga á útivelli,  og nú fer að að verða gamanCool
mbl.is Grindvíkingar skelltu meisturunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er lögreglan að fara yfir um vegna álags?

Það að handtaka aðila að umferðaslysi án nokkurrar sýnilegrar ástæðna er gersamlega ólíðanlegt og lögreglunni til mikillar hneisu!! Í þessu tilfelli er ung stúlka sem reyndist aðeins þreytt og annars hugar að eigin sögn, sett í járn og færð í lögreglubíl sem hver og einn stórglæpamaður!! Ég held að yfirvöld þurfi að ath hvað virkilega séu að hjá lögreglunni, er málið að þeir séu hreinlega yfirkeyrðir af þreytu?
mbl.is Í handjárn en óölvuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blýantsnagarar skrifræðisins og uppreisn stimpilklukkunnar

Þessi kennari í mínum gamla skóla, Réttarholtsskóla hefur svo sannarlega mitt atkvæði í þessu máli.  Það að svokallað "menntasvið borgarinnar" eins og hann orðar það skuli vera að eyða tíma skattborgara og tíma kennara og nemenda í að ganga í skóla og "kenna" á stimpilklukku er með ólíkindum, á sama tíma er verið að skera verulega niður í öllum rekstri skólanna en eins og kennarinn segir, er lið frá ríkinu sent til að leiðbeina kennaraliðinu á eina blessaða klukku eins og þau séu "heilalaus" að hans sögn.

Annað dæmi um "blýantsnagara,  skrifræðiskerfis hins opinbera, samanber svo margar stofnanir ríkisins, t.a.m. hollustuvernd ríkisins, heilbrigðiseftirlit ríkisins, sem er það alskrýtnasta. Það er með ólíikindum hve mikla vinnu þetta fólk leggur á sig til að fullnægja einhverjum lagabókstaf EB ráðsins, !!!! en í raun er það allt í þágu EB staðli sem við vinnum  með að 90% hluta, en erum ekki einu sinni í EB !!! er einhvert vit í þessu, ég bara spyr???

 


mbl.is Uppreisn gegn stimpilklukku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni okkar Johnsen stal senunni á Alþingi í gær!

Er að jafna mig á flenskuskít sem herjar á heimsbyggðina og hef þar af leiðandi ekki mikið gagnlegt fyrir stafni, hvort sem er í vinnu eða á heimilinu, en þó heilsan sé slöpp er ekki endalaust hægt að liggja í bælinu og úldna, heldur reynir maður að staulast um íbúðina og telja mínútur og síðan klukkutíma, á milli þess sem ég hita mér heitt sítrónuvatn með miklu hunangi,  eins og batinn komi eitthvað fyrr fyrir vikið. En að lokum sest maður við skjáinn og reynir að finna eitthvað til að horfa á og láta tímann líða, en það er bara ekkert á dagskrá á daginn sé maður ekki með fjölvarp svokallað og enda ég á að horfa á þingumræðu á Rúv, og verð ég að viðurkenna að mér fannst þessar umræður stóráhugaverðar, ekki síst fyrir þær sakir að í fyrsta skipti sá ég heildarmynd af því sem er að ske á þjóðþinginu í lengri heild en úr fréttum, og fékk allgóða mynd af flestum þeim þingmönnum sem nú eru á þingi.

Ég hlustaði á allar ræður þingmanna og  er ekki ofsögum sagt að mér finnst þó nokkrir af þeim ekkert erindi eiga á alþingi okkar íslendinga! þeir voru sumir hverjir með afar daprar ræður og afskaplega slaka  framsögu.

En ég verð að nefna þá sem mér fannst skara fram úr, og þá ekki endilega hvað varðar málefnalega hlið þess heldur líka skemmtanagildi þessa annars alvöruþrungna vinnustaðs.

Sigmundur Ernir var með skrautlega ræðu og gaf af sér skemmtilegt yfirbragð með miklum handahreyfingum og pati, og þrumaði annað slagið yfir salinn og fékk oft mikil ofaníköll yfir sig, en það var að öllum öðrum ólöstuðum Árni Johnsem sem stal senunni í gærkveldi með skemtilegri ræðu sem hægt var að hlægja að og jafnvel gráta yfir um leið!

Því miður tekst mér ekki að koma ræðunni á þennann link hér á síðunni af einhverjum ástæðum!


Hverjum er ekki sama?

Má greyið ekki skemmta sér í friði, vísir.is er að verða eins og Sun í Bretlandi, því miður!!

http://visir.is/article/20090815/IDROTTIR0102/374847450


Flott lag með Korgis


James Taylor er þægilegur fýr !

Hér er hann með lagið fire and rain


Hver man ekki eftir þessu úr kanaútvarpinu í denn ?

Seals & Crofts og diamond Girl


Góð lending? frekar magalending að mínu viti

Þetta er hrikaleg magalending að mínu viti, Guðfríður Lilja talar fyrir sig og enga aðra, alla vega ekki fyrir íslenska alþýðu eins og ég  þekki  hana.
mbl.is „Góð lending fyrir Ísland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband