Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Grindvíkingar óttast

Ekki er skrýtið þótt Suðurnesjingar  hafi áhyggjur vegna skjálftanna síðastliðinn sólarhring, enda hafa upptök átt sér stað undan fótum þeirra, margir skjálftar hafa mælst og hefur fólk fundið lyktina af hörmungum þeirra á Selfossi fyrir nákvæmlega ári síðan. Jarðfræðingar telja að líklegt sé að fleiri skjálftar séu væntanlegir og þá nær höfuðborgarsvæðinu. 


mbl.is Grindvíkingar geri ráðstafanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jarðskjálfti upp á 4 á Richter nú áðan!

Nú rétt í þessu var að ríða yfir skjálfti upp á um 4 á Richter á suðvesturhorni landsins, fréttir eru að byrja á rúv!

"The Big Sellout" einkavæðingin og afleiðing hennar

Sá atyglisverðan þátt á Rúv í vikunni um afleiðingu einkavæðingar og sló hann mig töluvert, ekki að það hafi svo sem komið manni neitt á óvart, heldur var þetta góð áminning núna í kreppunni þar sem þetta hittir tiltölulega vel á.

Í þættinum var tekið á dæmum frá fjórum löndum í fjórum  heimsálfum, Bretlandi, Suður Afríku, Bólivíu og á Filipseyjum.  Í Bretlandi var dæmi tekið um einkavæðingu bresku járnbrautanna, þar sem þeim var á Thatcer tímanum skipt upp í mörg fyrirtæki með jafnmismunandi góðan rekstur, í Soweto var sýnt frá fátæku fólki sem ekki átti fyrir rafmagni eftir einkavæðingu þess og sýnt frá andæfingarhópi fólks sem setti fólk út á laggirnar til að koma rafmagni á í óþökk yfirvalda þegar búið var að loka fyirr straumin hjá gamalmennum sem ekki gátu greitt síhækkandi greiðsluseðla, í Bólívíu fanst mér sláandi þegar að yfirvöld seldu einkarétt vatns til fyrirtækis sem engin vissi lengi deili á, og í smáu letri samninga fólst að fólk mætti meira að segja ekki safna regnvatni! (það myndi minka gróðann hjá stórsteypunni sem keypti réttinn af þessu fátæka landi, seinna kom í ljós að þetta fyrirtæki var stórt risafyrirtæki  í bandaríkjunum! þeir gáfust upp í lokin vegna gríðarlegra mótmæla almúgans.) Á filipseyjum var kona ein fátæk sem átti nýrnaveikan son sem þurfti í blóðskiljun tvisvar í viku og kostaði miklar fjárhæðir fyrir þessa fátæku konu sem fékk ekki inni á spítölum landsins sem voru orðnir einkareknir, sem aftur þýddi, að ef þú áttir ekki pening fékkstu ekki þjónustu, en hún vildi ekki gefast upp og leitaði allra ráða, en þau virtust aðeins duga til að fresta óhjákvæmilegum dauða sonar hennar, svo lítil var sú hálp sem henni voru rétt.

Einnig var getið um Alþjóðabankann og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn sem fengu miður góða einkunn hjá viðmælanda þáttarins hvers ég man ekki nafnið á í svipinn, og var fyrrverandi starfsmaður IMF ! Hann sagði það eitt af meginmarkmiðum bankans að stuðla að einkavæðingu sem víðast þar sem neyðin væri mikil,  og síðan koma til bjargar á fölskum forsendum og oft á tíðum stórvarasömum fyrir viðkomandi land !

Hvað sem fólki finnst um einkavæðingu almennt er alveg ljóst að þetta eru dæmi sem við viljum ekki sjá í okkar samfélagi, Dæmi: við einkavæddum bankana okkar, við vitum nú hvað það hafði upp á sig!


"Brabra" í garðinum

Fyrir um tveimum vikum eða svo ákváðu andarhjón ein að setja sig niður í bakgarðinn minn í Norðlingaholti Smile og eins og allir góðir dýravinir ákvað ég að stökkva til og gaf þeim sitt blessaða brauð sem og maður myndi gera niður á tjörn á á sunnudögum, nema það að á hverjum degi hafa þessi sömu góðu hjón, ég geri ráð fyrir að þetta séu alltaf þau sömu, þó ég í raun geti ekki fullyrt það með neinum rökum, þau jú eru öll svipuð útlits, komið í sína föstu heimsókn og var það alltaf um fjögurleytið á daginn, en nú síðustu daga hafa þau verið að koma tvisvar til þrisvar á dag!

En það er gaman að hugsa til þess að þessir fallegu fuglar skuli búa yfir því viti að koma inn í þéttvaxna byggð og lenda alltaf á sama stað og biðja um sitt brauð! Ég hef búið víða og aldrei kynnst þessu áður, gaman væri ef einhver ykkar hefði svipaða sögu að segja mér.


Ungur nemur þá gamall temur

það sýnir sig æ oftar að unga fólkið (þó mjög ungt sé eins og í þessu tilfelli) að tæknin er ekki að fara fyrir brjóstið á þeim þó síður sé, en án alls gríns sýnir þetta að gríðarlega áríðandi er að við séum vakandi yfir því hvað börnin okkar eru að gera, ef þriggja ára barn getur keypt skurðgröfu á netinu, ( sem ég kynni ekki að gera) hvað geta þá 10 - 15 ára unglinga gert!!

 


mbl.is 3 ára keypti skurðgröfu á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það virðist sem tekið sé af málunum af festu vestan hafs!

Manni virðist af fréttum vestra að forseti Bandaríkjanna sé virkilega að reyna að taka á málum almennra borgara, nú síðast með undirritun reglugerðar þess efnis að lina þá hörku greiðslukortafyrirækja gegn hinum almenna borgara, hann segir "það er auðvelt að komast inn en nánast ómögulegt að komast út " þetta þýðir að vaxtahækkun er ekki möguleg af hálfu kortafyrirtækjana nema að uppfylltum ákveðnum ákvæðum.

Það er eitthvað svona sem við viljum sjá hjá okkar yfirvöldum!! eru þau starfanum vaxin?


mbl.is Obama gegn kortafyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betri eru bleikar nærur en græn torfa!

Þessi mynd sem um er rætt lýsir best þeirri þjálfun sem þessir menn eru í , meðvitaðir um að þeir geti sem best verið dauðir eftir nokkur vanhugsuð andartök taka þeir þann pól í hæðina að æða út á þeim fatnaði sem þeir sváfu í , (hver veit nema einhverjir þeirra sofa naktir, en það er önnur saga Blush  ) taka aðeins þá hluti sem geta bjargað þeim, byssur og hjálm ásamt vesti, og láta ekki pressuna hafa nein áhrif á sig, vitandi að fylgst er með öllum þeirra  hreyfingum. Vona bara að kona hans eða kærasta hafi gefið honum þessar buxur!
mbl.is Á bleikum nærbuxum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú held ég að Ástþór brosi út í annað

Þessi frétt staðfestir það sem Ástþór Magnússon sagði skömmu fyrir kosningar og hefur reyndar alltaf haldið fram, að Ólafur Ólafsson og Samskip hafi ekki hreint mjöl í pokahorninu, þeir hafa sætt innrás embættis sérstaks saksóknara í dag ásamt nokkrum öðrum, sem og lögræðifirma undir stjórn fyrrverandi KB banka foststjóra Hreiðars Más. Nú er bara að vona að menn haldi rétt á spilunum og láti ekki hanka sig á smáatriðum!
mbl.is Leitað á heimili Ólafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær flutningur Jóhönnu

Ekki slæmur flutningur eða hvað? Ef hún kemst ekki áfram heiti ég Þoraldur!!

Beint frá bónda er gott mál

Það er gott að æ fleiri framleiðendur hugi að þessari lausn, þ.e. að selja beint til söluaðila í stað þess að láta milliliði sjá um dreifingu, sem  aftur hefur bara aukakostnað í för með sér.
mbl.is Sífellt fleiri selja vörur sínar beint frá býli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband