Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hvað varð um fjörugar stjórnmálaumræður í sjónvarpi?

Þegar ég í  dag var að hlusta á útvarp sögu seinnipart dags og náði hluta af umræðu manna, mig minnir að Jón á Viðskiptablaðinu og fleiri góðir hafi verið í þeim þætti, en allavega, það er unun að hlusta á þessar líflegu umræður og vildi ég óska að einhver sjónvarpsstöðín kæmi með slíka þætti sem líftu þessari stjórnmálaumræðu upp á enn hærra plan en nú er gert, það er til sjónræns áhorfs fyrir okkur almúgan. Skora ég á þær stöðvar sem hér starfa að vera með þátt einu sinni í viku, það er svo sanarlega áhugi fyrir því hér.

What a Wonderful world

Á þessum róstursömu tímum er ekki úr vegi að hlusta á snillinginn Louis Armstrong flytja lagi sem fær okkur öll til að fella tár, tár sem hljóta að vera tvíbennt.


Hve oft á að fresta birtingu á þessari &/%$(&)&/% skýrslu?

Það er að verða framhaldsskrípaleikur með þessa andskotans skýrslu í aðalhlutverki, manni dettur helst í hug að það sé samsæri um að hún verði alls ekki birt! Ef dugur væri í fólki sem þarna er við stjórnvölinn væri þetta ekki búið að fara þennan frumskógarveg. Ég lýsi yfir frati á allt þetta rannsóknarfólk og skora á það að taka sig saman í andlitinu og sýna þann dug sem til þarf til að birting geti farið fram!!!

Bölið yrði enn verra við leyfisveitingu spilavíta

Ég tel að það væru mikil mistök ef spilavíti fengju að starfa á Íslandi, fíknin er ekkert grín og allt of margir yrðu til taks að taka lokastökkið í þessu víti, mun fleiri en menn gera sér grein fyrir!!


mbl.is Leggst gegn opnun spilavíta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slegist við fæðingarrúmið!

Þetta er með því svakalegasta sem ég hef heyrt, að fullorðið fólk sem unnið hefur lækniseið skuli láta eins og gengisglæpamenn er með ólíkindum, og ætti að reka þessa menn og taka leyfið af þeim til æviloka auk þess að fangelsa þá fyrir manndráp af fyrstu gráðu!!
mbl.is Lést í fæðingu eftir rifrildi lækna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útvarpsárásir eru nýjasta tískann!

Það er að verða tískufyrirbrigði að ráðast á þekkta einstaklinga í og við útvarpshús, hverra sem það nú er, nú síðast varð Jón Magnússon fyrir því að löglærður einstaklingur veittist að honum og tók kverkataki með hótunum um líflát. Spurning hvort þurfi að ráða öryggisverði við öll útvarpshús landsins ? bara spyr sí sona.

http://www.dv.is/frettir/2010/2/20/haestarettarlogmadur-tekinn-kverkataki-utvarpi-sogu/

 


Bellamy og Mancini rífast eins og hundur og köttur

Góðar fréttir berast úr Manchester borg, city megin, þegar að þeir félagar Craig Bellamhy og stjórinn ítalski Mancini eru farnir í hárið á hvor öðrum, lengi hefur verið ljóst  að Bellamy var mikill stuðningsmaður Mark Hughes og sauð upp úr þegar hann var beðinn um að fara á aukaæfingu hjá ítölskum aðstoðarþjálfara stjórans!!

http://visir.is/article/20100219/IDROTTIR0102/658977791


Hvert verður svarið frá þeim??

Get ekki beðið eftir að heyra hvert þetta svar þeirra er, tel þó líklegt að það verði neikvætt, ef það hefði verið okkur hliðhollt biðu menn ekk með að segja frá því!!
mbl.is Svar komið vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig skilgreinir maður rusl?

Víst má segja að Bond myndirnar séu ekki þar allra bestu hvað varðar efnistöku, en þær eru og verða alltaf afþreyingamyndir fyrir fólk sem vill einfallt og áreynslulaust áhorfsefni með spennu og einföldum þræði, þær eru einfaldlega hluti af tilverunni og munu varðveitast sem slíkar í heimi kvikmyndanna.
mbl.is Bond-myndirnar „rusl“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arsenal komnir í 1-0

Arsenal dominerar leikinn og eru komnir yfir eftir 28 mín leik, Bendtner með markið.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband