Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010
6.8.2010 | 21:59
ÍNN og Útvarp Saga, gott dæmi um frábæra frjálsa fjölmiðlun
Ég var einn af þeim sem taldi að Ingvi Hrafn væri galin þegar að hann startaði ÍNN, hélt að loks væri maðurinn genginn af göflunum, en því fer fjarri, hann hefur sýnt okkur að það er hægt að halda úti svona stöð með gegnum gangandi viðtölum um pólítík og í bland er hann með þætti eins og matreiðslu og golf og fleira góðgæti.
Enn best af þessu er þó þáttur hans Hrafnaþing þar sem hann er oftast með þá Jón Kristinn og Hall Hallson ásamt gestum hverju sinni, fræbær þáttur þar sem oftar en ekki koma fram merkilegar upplýsingar um það sem helst er á baugi hverju sinni.
En það alfyndnasta er þó þátturinn með honum Magga kokki, og Bjössa á Domo, þeir eru "drepfyndir" og oftar en ekki frjálsegir í tali!! sér í lagi hann Maggi
Annað gott dæmi um frjálsa fjölmiðun er Útvarp Saga, einnar manneskju dæmi um einurð og framtak Arnþrúðar Karlsdóttur sem gafst aldrei upp þó á móti blési!!
Ég tek hatt minn ofan fyrir þeim! ( og ég er með hatt skal ég segja ykkur ein og þið kannski vitið)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.8.2010 | 21:40
Enn kemur Jón Gnarr og gerir sig að fífli
![]() |
Uppátæki borgarstjórans vekja athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
6.8.2010 | 21:10
Afþakkar laun sín á uppsagnarfresti, þó það nú væri
Vá, það er með ólíkindum hve lítillátur maðurinn er, var í starfi í einn dag og þó það nú væri að fara ekki að þiggja laun sem að honum lítur, eftir allt sem á hefur dunið, það hefði allt orðið vitlaust ef hann hefði farið fram á það, það veit hann.
![]() |
Afþakkar laun í uppsagnarfresti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2010 | 19:31
Óprúttnir stela úr ræktunargörðum borgarinnar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.8.2010 | 19:19
Eldarnir færast nær Moskvu
Þessir hrikalegu eldar loga nú sem alrei fyrr enda eru hlýindi gríðarleg í Rússlandi, og gengur slökkvistarf mjög illa. Um fimmtíu manns hafa nú látist og getur sú tala hækkað ef ekki tekst að ná böndum á eldinum, sem enn hefur ekki tekist, og eins að hitinn lækki ekki.
![]() |
Eldar brenna við Moskvu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)