Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
31.3.2009 | 20:30
Ungfrú Alheimur hrifin af fangabúðum !
Ok, Annað hvort stígur þessi ágæta manneskja ekki í vitið, eða þá hið ólíklegra, að hún hreinlega hafi ekki vitað hvar hún var stödd, af einhverjum ástæðum, ég hallast að hinu fyrra. Góðan daginn! afslappandi umhverfi og fallegar strendur. að ekki sé nú talað um barinn hjá þeim, hvað í ósköpunum voru P.R fólkið hennar að gera þegar hún lét þessi orð falla? Jæja hún er alla vega ljóshærð og við vitum allt um í hvaða flokk þær falla, allavega afsannar þessi alls ekki kenninguna. En myndarleg er hún samt
Ungfrú alheimur hrifin af Guantánamo | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.3.2009 | 17:35
Eva Joly kostar "aðeins" 70 millur á ári :)
Varðandi frétt á Vísi.is þá langar mig aðeins að tjá mig, hér er fréttinn : http://visir.is/article/20090328/FRETTIR01/499829548
Hvað um það þó þessi manneskja fá þessa peninga fyrir það gustukastarf sem hún hefur verið fengin til, aðrir eins fjármunir hafa í súginn farið og ekkert komið í staðinn, jamm, það er makalaust með fréttamiðlanna hve hugsunalaust þeir slá upp sínum fyrirsögnum og er sama hve málið er, það virðist sem fréttastjórar allra miðlanna, hvort sem um um er að ræða sjónvarp eða blöð, hafi það aðeins að markmiði að selja sem mest! held að þetta sé gegnumgangandi viðhorf, (ekki það að ég skilji ekki það viðhorf út af fyrir sig) en sumt má kjurt liggja!!.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2009 | 17:03
Tilfinningalegt skilningsleysi!
Greyið ræfillinn, það skilur hann enginn og menn halda að hann sé djöfullinn holdi klæddur. Hann nauðgaði dóttur sinni "aðeins" 3 þúsund sinnum!!!! En, hann skammast sín fyrir þetta greyið, reyndi nú að gera vistarverur fanga sinna eins "kósí" og mögulegt var, er hægt að biðja um meira? það ber að virða ekki satt?
Hann vill reyna að útskýra fyrir dóttur sinni hví hann hafi komið svona illa fram fyrir við hana og vonast til að allir viðkomandi gleymi "yfirsjón" sinni sem fyrst, nokkuð líklegt að um uppgerð sé að ræða af greyinu, svona til að fá smá vorkunn frá lýðnum, honum til sálarfriðs.
Nei, án alls gríns, ef ég réði hvað gert yrði við svona glæpamenn og aðra álíka, væri heimurinn öðruvísi, ég myndi setja þá alla á einhverja eyju sem ekki er byggð, t.d. Papey (ef við heimfærum þetta til Íslands), slá upp nokkrum svefnkofum og útikömrum, vistir fengju þeir vikulega með ferju, og þeir gætu einfaldlega séð um sig sjálfir, enginn kostnaður við gæslu.
Fritzl þráir skilning Elisabeth | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2009 | 01:42
Indverskt karrý út í geiminn!!
Það er með ólíkindum hve karrý getur haft áhrif á líf okkar, Karrý er blanda af mörgum kryddtegundum og nú er ætlunin að geimferðarstofnun Indlands reyni að þróa karrý með það fyrir augum að ekki verði vonnt af, "Vísindastöðin sem vinnur að matarþróuninni hefur fram að þessu fyrst og fremst framleitt létta matarpakka í heimilislegum stíl fyrir indverska hermenn" Halló !!! vita þeir ekki af okkar íslenska kjöti í karrý?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.3.2009 | 22:04
Þvílíkur körfuboltaleikur !
KR sigraði eftir fjórar framlengingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.3.2009 | 21:13
The Pink Panther strikes again :)
Þessi frétt bærir við gömlum minningum um hin frábæra Inspector Clouseau sem Peter Sellers túlkaði af sinni alkunnu snillt fyrir mörgum árum, maður veltir fyrir sér hvort þessi hópur hafi þennann ágæta franska lögleglumann sér til fyrirmyndar eða hvað? Allavega hefur ekki reynst auðvellt að hafa hendur í hári þessara manna hingað til
Bleikur pardus tekinn á Kýpur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2009 | 00:38
Downs heilkenni og önnur
Ég er verulega ánægður fyrir hönd allra aðstandanda hóps Downs heilkennis, og vona að þið megið vaxa. En við suma langar mig að segja, stundum skil ég alls ekki hvað drífur menn áfram? þeir tala um "hið góða líf" hvað meina menn með því? er það gott líf að fæðast "vanskapaður" að einhverju leyti, hvort sem um er að ræða á líkama eða sál,?? Eru menn virkilega staðfastir á því að einstaklingar skuli fæðast hvað sem á duni, í hvaða ástandi sem er? Ég sá frétt um daginn frá bónda í sveit, þar sem litið lamb fæddist með tvö höfuð, og lifði nóttina, en var svæft daginn eftir, hefði að öllum líkindum lifað af, en hver yrði þjáningin? Með þessu er ég ekki að segja að aflífa eigi einstaklinga sem svo fæðast! síður en svo, ég er að tala um "hvað ef" og "ef ekki"
Ef hægt er að komast að því tímanlega hvort fóstur sé vanskapað eða að einhverju leyti ekki í lagi, tel ég að það eigi að grípa í taumana.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2009 | 21:59
Obama, hin nýja ofurhetja!
Já, þetta kemur í sjálfu sér ekkert á óvart, bandaríkjamenn eru sérstaklega lagnir við að vefa ævintýri úr engu, nú úr forsetaembættinu sjálfu. Bangsímon og Harrý Potter hafa nú eignast keppinaut í engum öðrum en sjálfum forseta USA, bækur eru skrifaðar honum til heiðurs og eru ungar kynslóðir vestra óðfúsar að læra sem mest um hin mikla mann, sem sennilega hefur ekkert til saka "enn" unnið en að vera vel máli farinn.
Börn eignast nýja ofurhetju - Obama | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.3.2009 | 00:24
Ian Rush á árshátíð Liverpoolmanna
Það er nú gott að Ian kallinn skuli vilja koma á árshátið átrúnaðargoða sinna á íslandi Tekst þeim ekki að fá aðra en "longtimeago" center sem þar að auki hefur margkomið hingað í tengslum við knattspyrnuskóla eða fótboltamót roskinna manna, af hverju reyna þeir ekki að fá til landsins einhverja ferskari og nútímameiri menn, t.d. Benitez stjóra eða Torres, eða bara Gerard sjálfan !! þeir hljóta að koma ef vel er boðið, þeim veitir nefnilega ekki af aurunum! eða hvað?
Buðu Ian Rush á árshátíðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 28.3.2009 kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.3.2009 | 22:18
Tap og tekjur stjórnmálaflokka 2007
Skv frétt á Vísi.is um tap stjórmálaflokka 2007:
http://visir.is/article/20090320/FRETTIR01/213168639/-1
Mér finnst athyglisvert að sjá þessar niðurstöður, Samfylking tapar mestu eða 90 m meðan tekjur eru 193 m, Vinstri Grænir tapa 36 m, tekjur 80 m, Framsókn tapar 60 m, tekjur 136 m, og Sjálfstæðisflokkurinn tapar aðeins 37 m, en tekjur heilar 317 milljónir!!. það er heilt haf á millli taps og tekkna hjá vinstri og miðju flokkunum og síðan hjá íhaldinu. Hvar liggur þessi gríðarlegi munur? Er rekstur þessara flokka svona misjafn? Er það virkilega að sýna sig að í Sjálfstæðisflokknum séu hæfari "bisnissmenn" sem kunna að reka flokkinn sem fyrirtæki? Og þá spyr ég, eru þeir þá ekki hæfari til þess verks að reka Ísland sem "fyrirtæki" og koma okkur út úr þessu rugli??
Ps bendi þó á að þessar tölur eru fyrir árið 2007, margt hefur á daga okkar drifið síðan þá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)