Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Við viljum prestinn okkar tilbaka!

Það er sök nútímaþjóðfélags hve sorglega komið er fyrir fólki eins og t.d. presti einum góðum, hann er ásakaður fyrir að hafa verið of "góðlegur" við stúlkur í söfnuði sínum að mig minnir, og að hafa gengið of langt í að vera "ástúðlegur" ( í merkingunni að vera elskulegur, vingjarnlegur, góðlegur)  það þótti ekki alvarlegt brot á blygðunarkennd fólks hér áður fyrr að vera vingjarnlegur við fólk, og þá síst hvað presta varðaði, þeir voru alltaf, alla vega hvað mig minnir, góði maðurinn með Jesús svipinn, en í dag virðist sem upp úr pottinum sé að sjóða og gamlar venjur séu ekki lengur í gildi. Það er til að mynda varhugavert fyrir frænda eða frænku að vera "of elskuleg / vinaleg" við littlu frænku eða frænda, þar sem greinilega aldrei er að vita hvenær  einhver gæti kært þau fyrir "of mikil elskulegheit" svo ég orði  það á  þann hátt!

Þetta er í stuttu máli orðið allt of mikið reglugerðartilskipunarþjóðfélag sem stýrist af steríleseraðri miðstýringu frá  löndum sem íslendingar miða sig því allt of oft við, t.d. Svíþjóð, og í raun alla Skandinavíu.  Vonandi eru einhverstaðar eftir hin einu sönnu gildi heimilis og góðrar og gildar ástar, geymdar í djúpum hjartarrótum okkar sem ekki láta reglur og lagabókstafi algerlega ráða för okkar.


Campbell gæti reynst drjúgur, ef Wenger þrjóskast ekki við

Ég er ekki svo viss um að Wenger sé að gera rétt í að bjóða ekki í kappann, hann telur hann útbrunninn en það geri ég ekki!
mbl.is Wenger ætlar ekki að semja við Campbell
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það lítur út fyrir að við verðum með varaliðið í dag!

En það er í lagi, þeir ungu hafa sýnt að mikið er í þá spunnið!
mbl.is Clichy og Bendtner úr leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við að "hafa" vændi á götum Reykjavíkur?

"Jæja sonur sæll", segir faðirinn kvöldið sem Lói verður átján ára,  það er komið að því að þú verðir að manni!! ég hef talað við hana Blæju sætu sem alltaf hangir á horni Laugavegs og Skólavörðustígs, og ætlar hún að hitta þig á Svarta Víkingnum í kvöld!!! Þú verður að koma einn, (ekki segja mömmu  þinni frá) það er komin tími til að þú komir  í heldri manna tölu Devil en, mundu bara að nota verju, helst smokkinn, og mundu eitt, ekki kyssa hana, það vilja þær alls ekki!!! , það gerir maður ekki  nema maður elski einhvern!!!.

Einhvern vegin svona gæti samtal feðga í denn hafa farið fram, en síðan eru liðinn mörg ár!


mbl.is Götuvændi stundað í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við viljum prestinn okkar aftur!!!

Já, þessi orð segja meira en tvær setningar!!!, það er greinilegt að sérann hefur fylgi og er það vel, en gaman væri að vita hve margir voru á þessum fundi, ef einhvern veit það vinsamlega látið mig vita takk Smile
mbl.is Viljum fá prestinn okkar aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loftbelgjafjöldskyldufaðir sekur?

Ég held að það sé engin vafi á að þetta hafi verið upphugsað hjá þessum "ágæta" föður, og að hann var að reyna að ná athygli á sér, þess ber að geta að hann á ekki flekklausa fortíð og ef ég réði, myndi ég lögsækja hann fyrir viðvikið!!
mbl.is Lögregla yfirheyrir loftbelgsfjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn strákasveitarinnar Boyzone er látinn

Það hljóta margar stúlkurnar að vera harmi slegnar vegna frétta um lát Stephen Gately sem lést á heimili sínu á Mallorca, hans verður eflaust saknað af mörgum, blessuð sé minning hans.
mbl.is Flogið með lík Gately til Írlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sum svín þekkja sig í spegli, en gera pólítíkusar það líka?

Þessi grein um svínin fékk mig til að hugsa um tvennt, þessi svín sem notuð voru í tilraun til að átta sig á hátterni tegundarinnar. T.d. hvað varðar öflun matar og fleira kom fljótlega í ljós að sjö af átta svínum lærðu að nota spegil til að finna matarskálar sínar. °

Er speglum var komið fyrir í stíum dýranna kom fljótlega fram forvitni hjá dýrunum um hvað væri á ferðinni og skoðuðu þau þá vel og vandlega í bak og fyrir, já kíktu vel bak við spegilinn til að athuga hvað þar væri falið, talið var að dýrinn væru að rannsaka tengsl hreyfinga eigins skrokks og myndarinnar í speglinum og átta sig á sambandinu þar á milli.

 En nóg um það, ég velti  stundum fyrir mér hvort fólk geti fallið undir þessa rannsókn, til þess að gera, mér dettur ákveðið  stjórnmálafólk í hug í þessu sambandi og í tenglsum við þessi svín, og hlýt að velta fyrir mér hvort ákveðin "svín þekkja sig í spegli" og viti jafnvel hvað sé á bak við spegilinn!!!

Vænt er þegar vel er grænt

Ögmundi þykir vænt um þá  stuðningsyfirlýsingu félaga hans í Suðvesturkjördæmi í dag, og vilja hann í  ráðherraembætti aftur, ég sé ekki tilgangin með því að hann  taki stól eftir það sem á undan er gengið, hvað ætti að breytast? Ef hann tekur slaginn aftur er hann búinn að tapa þeirri vorkunn og þeirri trú sem menn fengu á honum eftir afsögn hans.
mbl.is Þykir vænt um stuðninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óyndisspár Steingríms eru með ólíkindum!

Í grein sem ég las í Vísi, http://visir.is/article/20091009/FRETTIR01/627534599

finnst mér  Steingrímur ganga fulllangt í áróðri sínum gegn því að við ættum að gangast við Icesafe  reikningum útrásarvíkinganna, og í raun óþolandi að jafnvirtur maður og hann skuli tala með þessum hætti! og þó ,  kannski engin furða, það er jú þannig að stjórninn er í dauðaslitrunum og hver mínúta sem fæst í viðtal dýrmæt!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband