Húsið í vesturbænum!

Þetta samdi ég þegar ég var um það bil 24 ára, og var á hápunkti "ljóðaferils míns" eða þannig!

eða þannig  úhahahahaha , mæli með að það sé lesið við lítið kertaljós og að slökkt sé á öðrum ljósum, best er ef þetta sé lesið af góðum skáta við varðeld á Ægisíðunni.

 

Húsið

 

Í vesturbænum húsið stendur autt og ógnþrúngið,

Með mölbrötna glugga er snúa í átt að sjó.

Reykháfurinn hálfur teygist afskræmdur upp,

Líkt og  hendi upp úr hálfopinni yfirgefinni gröf.

 

Krakkarnir í hverfinu þau hræðast þennann stað,

Því heyrt  hafa þau orðróm um að maður sæist þar! ,

Hann á að vera sveipaður í  gullið herðasjal

Með augur er lýsa  hungri og skelfingu í senn.

 

Enn einn var sá er þorði, þó með hálfum hug að fara,

Inn í þetta stóra hús og finna þennann mann,

Hann vissi ekki hitt að sagan hún var sönn!

Þessi maður hann var inni og eftir stráknum hann nú beið!

 

Það halla tók að kvöldi og að miðnætti senn leið,

Strákur læddist stuttum skrefum inn um dyr og beið,

Hann littla ljósatýru fékk úr vasaljósi fínu

En trúði vart að dynkirnir, þeir komu  úr hjarta sínu.

 

Nú atburðirnir hraðar næstu mínúturnar liðu,

Er inn í  breiðan gang hann kom og krakkar úti biðu,

Hann heyrði hávært hljóð er líktist klukknaslætti,

Hann snertingu við fótinn fann og andardrætti hætti !!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband