Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Aldrei er góð vísa of oft kveðin

Það er með fótboltaleik eins og góð ljóð, að það þarf að lesa þau nokkrum sinnum til að ná boðskapnum í ljóðinu og eins er það með fótboltaleik, það þarf að horfa á hann aftur til að sjá mistökin sem þar eru gerð, það á einmitt við um leik dagsins í dag Man U og Arsenal, þar sem Arsenal átti leikinn frá A til Ö en tapaði engu að síður, dómari var fáráðnlegur og þarf að taka á þessu af festu.


mbl.is Manchester United lagði Arsenal, 2:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak Skjás Einns vegna krabbameinssjúkra barna!

Það söfnuðust um 43 milljónir kr í söfnun kvöldsin og er vel, það ber að þakka þeim er tóku þátt í dagskránni og vonandi verða heimtur góðar!
mbl.is Rúmar 43 milljónir söfnuðust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamingjuóskir með afmælið Jón Valur Jensson

Ég vil nota tækifærið og senda helsta bloggara íslendinga Jóni V Jensyni kveðju vegna  hans merkis dags á mánudag (að mér skilst)  ( þar sem ég verð ekki við tölvuna þann dag) hann á skilið það besta fyrir hans gríiðar góðu skrif á undanförnum árum, þó sérstaklega nú á síðari tímum erfiðs stjórnmálaástands, þar sem hann hefur verið óþreytandi við  að skilgreina og ekki síður sálgreina ástandið í þjóðfélaginu og gera því skil eins og honum finnst hæfa, og þá af listafenginni mælsku svo manni svelgist hreinlega á Grin  enda er greinilegt að maðurin viðar að sér efni og staðreyndum hvaðan af.

Það eru fáir sem  hafa það úthald að standa í sífellum skrifum um sín hugðarefni dag eftir dag og láta aldrei deigan síga,  Það eru ekki heldur allir sem hafa verið honum sammála í gegnum tíðina,  hann hefur fengið sinn skammt af gagnrýni  og hefur alltaf haldið ró sinni eða þar sem næst. Eg var einn af þeim í byrjun míns stutta ferils sem bloggara er ég gagnrýndi hann sí og æ, en eftir að hafa fylgst  betur með hans skrifum hefur mér snúist hugur hvað það varðar.

Jón, ég óska þér alls hins best og vona að þú haldir áfram að hrista í stoðum hins pólítíska kerfis svo lengi sem þín löngun og heilsa leyfir!!

 

 

 


Eigum við að taka tæknina inn í dómgæslu knattspyrnunar?

Menn hafa rifist í  árararaðir um dómgæslu í knattspyrnu, en nú er svo komið að að ekki verður komist hjá því að ræða um hvort nota eigi aðstoð aukadómara eða notkum tækninar! Ferguson stjóri Man U  var að tjá sig í kvöld um þetta og er ég sammála honum í meginatriðum, það þarf að koma dómum í betra lag, hvernig sem það verður gert.
mbl.is Ferguson vill fá betri dómgæslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir segjast hafa samið við ríkiststjórnina en ekki þingið!!

Þessi viðbrögð hollenska fjármálaráðherrans benda til þess að  þeir líti allt öðrum augum á þetta mál en við, hann  gefur í skyn að þetta breyti engu þar sem þeir telja að þeir hafi samið við ríkisstjórn Íslands um málið og ekkert geti breytt því!! Mér líst ekki á þessi ummæli hans.
mbl.is Sömdum við ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðursstúka Hitlers

Vá, þvílíkur heiður að vera boðið í stúku hins valdasjúka og geðveika Adólfs Hitlers!!!!! Ef ég hefði haft tækifæri á að sitja þarna, hefði ég notað tækifærið og gert  allt vitllaust ha!! Hvað með ykkur ?
mbl.is Sátu í heiðursstúku Hitlers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Richard Pryor solo on stage!

Hann var drepfyndinn þessi gæi, hann lést fyrir aldur fram.


Það eru eingir eins og Eagles

Tequila Sunrise er eitt best orta og spilaða lag ever!!!


Get ekki sagt skilið við ELO ennþá!

Þetta var eitt af mínum uppáhalds í denn !!!! Showdown !!!!


ELO voru rafmagnaðir ekki satt ?

Þetta lag var mér sérlega kært í denn, (stelpur þú veist" ) Strange Magic


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband