Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Christie og Yellow river


George Harrison og Here comes the sun


Enn er Helgi Seljan í "Kastljósinu"

Það er ekki heiglum hent að hafa hemil á Helga Seljan kastljósmanni sem ávallt kemur sér í vandræði, (ekki að það sé honum að kenna) hver man ekki eftir því þegar Geir Harde sagði á blaðamannafundi sem næmir míkrófónar pressunar heyrðu, "maðurinn er algert fífl" núna fékk hann ekki að fara um borð í þyrlu landhelgisgæslunnar vegna þess að þvi er segir, að Georg Lárusson hafi ekki verið allt of ánægður með fréttaflutning Kastljóssins frá því í janúar, vegna ráðniningu dóttur forstjórans í þyrluflugmannsstarf.

http://visir.is/article/20090911/FRETTIR01/512835546


Skrýtin er ást fótboltamanna!

Adebayor er búinn að finna ástina sína, hún birtist í stuðningsmannahópi Man City liðsins sem syngja honum lög til heiðurs. Eftir að hann fór frá Lúndúnaliðinu Arsenal hefur hann staðið sig með ágætum og skorað í næstum hverjum leik liðsins, spurning hve mikla ást hann fær frá áhangendum Arsenal á laugardag kl 4 þegar hann mætir sínum gömlu liðsfélögum.

Kannski fæ ég mér bréfdúfu?

Nú á tölvuöld  og með gríðarlegri notkun e-mails kemur mér á óvart að heyra að dúfa skuli vera fjlótari í förum með skilaboð en e-mail! ég ætti kannski að hefja ræktun á dúfum í þeim tilgangi að senda mín blogg um landið? ( varla Errm )


mbl.is Dúfan var fljótari en tölvupósturinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú, fljúgandi hálka" sagði hafnfirðingurinn

Þetta eru frábærar tilvitnanir og undrar mig ekki, enda kunn fyrir mismæli sín og fákunnáttu, þetta minnir mig á nokkra góða ljósku og Hafnarfjarðarbrandara svo sem þennann:

Ljóska ein stóð á miðri Strandgötunni í Hafnarfirði eitt kvöldið og gáði til himins, maður einn gekk til hennar og spurði hana hverju hún væri að skima eftir, hún hváði eftir stutta íhugun, " nú, þeir voru að spá fljúgandi hálku í kvöld! "

Ekki veit ég hvort Paris Hilton hafi verið í Hafnarfirði þetta kvöld en hún er góður kandídat fyrir svona comment held ég!


mbl.is Heimskulegustu ummæli Paris
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þröngt vil ég hafa það !

Já, takk fyrir þetta Jennifer, ég er einn af þeim sem aldrei hef lært að meta boxer og kýs frekar hefðbundnar gamaldags nærbrækur og líkar vel, enda er ég náttúrulega gamaldags eins og hún Aniston sem er ekkert unglamb lengur  þó flott sé ennþá Cool
mbl.is Þröngar nærbuxur takk!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anna Kristine og Kumbaravogsmálið, enn ein bankahneisan!

Þetta er með ólíkindum ef rétt er, að hún skuli lögð í slíkt einelti vegna blaðaskrifa sinna um tiltekið mál, er hrikalegt. Og að Landsbankamenn skuli leggjast svo lágt að halda að þeir komist upp með það að loka á kort hennar og gera hana glæpsamlega í augum verslunarfólks og annara er þvílík hneisa að manna blöskrar svo um munar, vona að hún fari í hart og fái úr skorið hinu rétta í þessu og láti okkur alþjóð vita, því ef svo reynist að bankinn gangi fram með þessum hætti, er það enn einn ljótur ljóður á bankahneisu okkar!
mbl.is Anna Kristine var þjófkennd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferguson að undirbúa morgundaginn með sálfræðistríði.

Snjallt hjá karlinum að segja þetta, sálfræðin í fyrirrúmi hér, gerir Spursara sigurstranglega en hugsar þeim sjálfsagt þeygjandi þörfina! en ég held að Tottenham taki þetta á morgun!

http://visir.is/article/20090911/IDROTTIR0102/14733701/-1


Tvíkynja hlaupadrottnig

Ég kenni í brjósti um þessa hlaupakonu sem úrskurðuð er tvíkynja í dag, mér finnst öll umræða vafasöm í  meira lagi, og vona innilega að hún verði ekki svipt sínum verðskulduðu verðlaunum, hún er jú læknisfræðilega vansköpuð, hún er með kvenkyns sköp, en með innvortis eistu og ekki með eggjastokka. Ég finn til með fjöldskyldu hennar að þurfa að bíða í óvissu um framhald mála!


mbl.is Fjölskylda Semenya bregst reið við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband