Færsluflokkur: Bloggar

Á morgun vakna ég glaður maður!

Nú er þjóðhátið á mínu heimili, Sjálfstæðisflokkurinn er að vinna frábærann varnarsigur og gerði í raun betur en maður vonaði. Nú er bara spurning hvort Ólafur forseti gefi Sigmundi eða Bjarna keflið fræga til að mynda ríkistjórn, þó ég hallist á að það verði Sigmundur, í ljósi þess að hann er með mestu aukningu frá síðustu kosningu.

En samt tel ég að við íhaldsmenn getur verið þokkalega sáttir víð þessa útkomu, og munum svo sannarlega nota þetta tækifæri til að bæta þjóðfélagslega stöðu þeirra er mest þurfa á að halda.

Koma svo X - D Smile

Bjarni_Benediktsson_250


Öxar við ána

Öxar við ána, árdags í ljóma,
upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.
Skjótum upp fána, skært lúðrar hljóma,
skundum á Þingvöll og treystum vor heit.
Fram, fram, aldrei að víkja.
Fram, fram, bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðarböndum,
tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.

Þetta er það ljóð sem fyllir mig alltaf af hve mestu þjóðarstollti og blæs einhverjum aukakrafti í sálina í mér, enda veitir ekki af í öllum þessum hremmingum sem við höfum þurft að eiga við á undanförnum fjórum árum ríkjandi ríkisstjórnar okkar.

Heilbrigðismál eru í rúst, mál eldri borgara og öryrkja eru til mikillar skammar og ekki eru áform "guðs sé lof fráfarandi ríkistjornar" um "OFURSJÚKRAHÚS" til að hressa upp á sálina.

Þetta ljóð styrkir mann í trúnni um að ekki eigi selja sjálfstæði þjóðarinnar til Brussel.

Menn tala um að klára viðræður við EB vegna þess að það sé svo langt komið og það hafi kostað svo mikinn pening hingað til, HALLÓ!!!

Við eigum enn eftir þá kafla sem allt snýst um, landbúnað og sjávarútveg, það er það eina sem þá í Brussel skiptir máli! haldið þið að þeir séu í þessum viðræðum til að fá ekki neitt fyrir sinn snúð? aldeilis ekki.
Sjávarútvegur Spánverja, Íra, Breta svo ég nefni einhverja, eru í rúst eftir inngöngu í bandalagið!

Nei, eigum við ekki að segja pass á þessum tímapunkti og hörfa frá þessum viðræðum áður en þær kosta okkur enn meiri fjármuni ???


Tilræðismanninum í Boston náð!

Lögreglumenn og aðrir loggæslumenn hafa loks náð þessum hryðuverkamanni sem lék lausum hala í Boston, hann faldi sig í Bátaskrifli og er að sögn lifandi. Réttlætinu er fullnægt!!

Frá Watertown-hverfinu í Boston í kvöld. <em>AFP</em>


Er útrýming vændis á Íslandi möguleg?

Það er gaman að sjá þessar vangaveltur Breskra í Econimist þar sem þeir velta fyrir sér þeim möguleika að íslendingar séu sú þjóð sem séu næst því að útrýma vændi og klámi úr landinu. Nú þegar sé búið að banna nektarstaði og setja lög sem refsi fyrir kaup á vændi sem og að selja það.

Ekkert land í heiminum hefur tekist að ná fullri stjórn á viðskiptum með kynlíf, hvorki með lagasetningu né refsingum. En um allan heim, sérstaklega í ríkum lýðræðisríkjum, fylgjast stjórnvöld með því hvort Íslandi tekst að gera þetta, með það í huga að fylgja fordæmi þeirra,“ segir í greininni.

 Ég er ekki viss um að þetta eigi nokkurn tima eftir að verða að veruleika, það er, að ekki verði neitt klám eða vændi á Íslandi!!!

bikini girls photo:  bikini_girls-1.jpg
mbl.is Tekst Íslandi að útrýma vændi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær Jóhann G Jóhannson

Hver man ekki eftir þessu frábæra lagi hans Jóa G , Dont  try too fool me


842 mílljónir í laun fyrir tvo!

Ég er með ..................... í laun á mánuði og er þar af leiðandi fátækur miðað við þessi tvo, Steinunni og Pál, sem skammta sér sívirðileg laun án alls eftirlits að því er best virðist. Hvar eru stjórnvöld? Hvar er eftirlit með þessu liði?  Ég er búinn að fá upp í kok á þessu rugli og  krefst þess að við þessu verði eitthvað gert!!

Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson í slitastjórn Glitnis banka.


Just the Bieber!

Það er stormasamt i kringum kappann hann Bieber, greyjið reykti marjúana og var myndaður, og ljósmyndari lést við það að elta kappann, Bieber beraði svo bossann og setti á Twitter sem síðan var fjarlægt í snatri, skaut úr leikfangabyssu á öryggisvörð og áreytti konu á líkamsræktarstöð. Svona er endalaust hægt að halda áfram með hans raunir, það er ekki allra að  verða frægir, sumir hreinlega höndla hana ekki!!


mbl.is Berst Bieber eða bugast?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múrmeldýrið sá skuggann sinn, Groundhog Day

Samkvæmt gömlum hefðum hefur það verið venja að merkja vetrarlok með því að láta Phil, sem er jú múrmeldýr eins og allir vita, spá um vorkomu, hann sá skuggann sinn og það merkja menn sem að vor sé á næsta leyti!!

Umrædd hefð ku eiga rætur sínar í þeirri hefð á meðal þýskra bænda að fylgjast náið með hegðun dýra til þess að meta hvenær væri rétt að hefja sáningu í akra sína.

Allir muna eftir myndini Groundhog Day, með Bill Murray og  Andy McDowell þar sem að Bill Murray  fer á kostum.

Frá degi múrmeldýrsins í dag. <em>AFP</em>


mbl.is Múrmeldýrið sá ekki skuggann sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný Samfylking ?

Nú er ljóst að ný stjórn tekur við hjá Samfylkingu eftir kosningu dagsins, Dagur víkur fyrir Katrínu og Jóhanna fyrir Árna Páli. Ég held að þetta eigi eftir að styrkja flokkinn mikið og þeir munu smátt og smátt vinna upp sitt fylgistap með tímanum.


tvö lög í úrslitum

Ég er hrifinn af laginu hans Eyþórs en skil ekki val á hinu laginu, henni Sollu stirður og Ég syng,

hefði valið lagið hennar Birgittu frekar, en það er nú bara ég.

Eyþór Ingi Guðmundsson á sviði. <em>mbl.is/Eggert Jóhannesson</em>


mbl.is „Ég á líf“ og „Ég syng“ í úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband