4.2.2011 | 23:04
Obama hvetur til stjórnarskipta í Egyptalandi
Hann hvatti Mubarak til að hlusta á raddir fólksins og hvatti hann til að taka réttar ákvarðanir með hag þjóðarinn í forgrunni, hann sagði einnig að heimurinn fylgdist allur með Egyptum.
Hann, Mubarak yrði að afsala sér völdum í landinu!! sagði forsetinn.
![]() |
Hvetur til stjórnarskipta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.2.2011 | 22:46
InDefence styður ekki Icesave
Þeir félagar í InDefence styðja ekki Icesafe samningin, áður hafa þær raddir heyrst að þeir styðji hann en nú er það staðfest að svo er ekki, hér er fréttatilkynnig þeirra:
Undanfarna daga og vikur hafa fjölmiðlar og stjórnmálamenn slegið því fram að InDefence hópurinn hafi jákvæða afstöðu gagnvart Icesave III samningunum. Það er rangt.
Þann 10. janúar skilaði InDefence hópurinn umsögn um núverandi Icesave samninga til fjárlaganefndar Alþingis. Umsögnin var einnig afhent öllum þingmönnum.
Í umsögninni er ítarlega fjallað um þá miklu fjárhagslegu áhættu sem núverandi samningar fela í sér fyrir Íslendinga. Sú áhætta er staðfest í öðrum efnahagslegum umsögnum. Í umsögninni er lögð rík áhersla á að til að samningarnir geti talist ásættanlegir sé nauðsynlegt að draga úr þessari áhættu.
Þegar útgreiðslur úr þrotabúi Landsbankans hefjast verður að tryggja að Íslendingar njóti aukins forgangs. Með þeirri breytingu að jafnstöðusamningar (Pari Passu) milli aðila yrðu felldir úr gildi yrði áhættu núverandi og komandi kynslóða Íslendinga mætt að verulegu leyti.
Í umsögninni segir orðrétt: Þetta á að vera krafa íslenskra stjórnvalda ef gera á samning án þess að skorið sé úr um lögmæti greiðsluskyldunnar. Í samræmi við þessa umsögn, ráðlagði InDefence fjárlaganefnd Alþingis að sameinast um eina breytingartillögu sem hefði minnkað fjárhagslega áhættu þjóðarinnar og skapað meiri frið um Icesave samkomulagið.
Afstaða InDefence hópsins hefur verið skýr og hin sama frá upphafi málsins:
Grundvallaratriði er að samningar um Icesave málið endurspegli þrjú meginatriði:
1. Að ekki sé lögbundin greiðsluskylda að baki kröfum Breta og Hollendinga.
2. Að samningar feli í sér skipta ábyrgð allra samningsaðila.
3. Að samningar feli í sér skipta áhættu allra samningsaðila.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.2.2011 | 20:31
Forkólfur verkalýðshreyfingar segir af sér!
Þó ekki væri, hann er í forystu verkalýðs á suðurnesjum og gerist stjórnarformaur banka! sem er algerlega út í hött af verkalýðsleiðtoga, og í þokkabót skrifar hann undir starfslokasamning við bankastjóra "án þess að lesa samninginn" sem síðann reynist illa gallaður!!
Farið hefur fé betra segi ég!! OG MEGA MUN FLEIRI FARA Í HEIMI VERKALÝÐSHREYFINGAINNAR, ÞAÐ ER BARA SPURNING UM TÍMA.
![]() |
Kristján segir af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2011 | 20:18
Mikið um árekstra á höfuðborgarsvæðinu
![]() |
Margir árekstrar á höfuðborgarsvæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.1.2011 | 02:16
Evrópusamtökin my.................................?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
30.1.2011 | 01:53
Kolbeinn "kapteinn" með fimm mörk
![]() |
Kolbeinn skoraði fimm mörk fyrir AZ Alkmaar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2011 | 22:20
Knattspyrnustjarna tók upp kynlífsmyndband
Ekkert má nú orðið, hvað með það þó að fótboltamaður stundi kynlíf uppi í herbergi?? Það er greinilegt að pressann er í krísu og leitar alltaf að ódýrasta umfjöllunarefni handa heimskum lesendum sínum!
http://visir.is/knattspyrnustjarna-tok-upp-kynlifsmyndband/article/2011726010462
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2011 | 21:15
Skemma múmíur í Egyptalandi
Það eru ekki hinir almennu borgarar sem eru að skemma verðmætar arfleiðir landsins heldur eru það glæpahyski sem nota tækifærið og láta hendur standa fram úr ermumþ
Annars er gaman að sjá þessa mynd af þessum fornleifafræðingi, hann minnir mig á frægan leikara sem lék einmitt fornleifafræðing í nokkrum myndum, hatturinn og allt
![]() |
Skemmdu tvær múmíur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.1.2011 | 20:31
Ljóðalist, frá Íslandi til ljóðlistar úr austri
Ég hef lengi verið aðdáandi góðrar ljóðlistar og hef sjálfur tekist við þá góðu list, með misjöfnum árangri eins og svo mörgum öðrum reyndar, en það eru ekki bara á vesturlöndum sem menn hafa reynt fyrir sér í þessum orðaleik sem ljóð eru.
Ljóðlist er listgrein þar sem fagurfræði tungumálsins er í forgrunni, og meiri áhersla er lögð á uppsetningu og hrynjandi heldur en efnislegt innihald textans.
"Þótt skilgreiningin á ljóðum og ljóðlist hafi verið útvíkkuð í seinni tíð eru þó enn til afbrigði ljóðlistar sem lúta mjög ströngum bragfræðilegum reglum. Dæmi um það eru íslenska ferskeytlan og japanska ljóðaformið Haiku." (tekið frá Wikipedia)
Dæmi um rétt kveðna ferskeytlu:
Ferskeytlan er Frónbúans
fyrsta barnaglingur,
en verður seinna í höndum hans
hvöss sem byssustingur.
(Andrés Björnsson)
Svo er það Japanska formið Haiku (Hæka)
Haiku er japanskur bragaháttur sem þróaðist út frá rengu sem er bragur þar sem tveir eða fleiri kveðast á. Hæka hefur þrjár braglínur með fimm atkvæðatáknum í fyrstu línu, sjö í næstu og fimm í þeirri þriðju. Efni rétt ortrar hæku á að tengjast náttúrunni og innihalda eitt orð (kigo) sem tengist þeirri árstíð sem er þegar hækan er ort. Hækur eru ortar í nútíð og innihalda ekki rím. Efni hækunnar eru yfirleitt tvær (sjaldnar þrjár) einfaldar skynmyndir eða upplifanir á náttúrunni.
Dæmi:
Í nótt kom vorið
hvergi sér ský á himni
þrestir ræðast við
Vorilmur trjánna
fær grjótið til að gægjast
undan snjófeldi
Þegar ég kem út
hvað sé ég! þarna hangir
vor á pílviðnum
Eins og við sjáum er þetta töluvert öðruvísi en okkar gamla og góða ferskeytla, en það er gríðarlega gaman að lesa japönsk og kínversk ljóð sem eiga aldagamlar hefðir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2011 | 19:34
Jón Bjarna vill ekki að Ögmundur segi af sér!
Auðvitað ekki, þeir passa rassgatið á hverjum öðrum þessi blessuðu ráðherrar
Ögmundur er nýbúinn að lýsa yfir stuðningi við Jón Bjarnason í vikunni og er þá ekki tilvalið að gjalda keisarans því sem keisarans ber? Með því auðvita að verja Ögmund í staðinn, þetta pakk er svo gelt að það hálfa væri nóg.
![]() |
Fráleitt að Ögmundur segi af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)