Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2013

Frábær Jóhann G Jóhannson

Hver man ekki eftir þessu frábæra lagi hans Jóa G , Dont  try too fool me


842 mílljónir í laun fyrir tvo!

Ég er með ..................... í laun á mánuði og er þar af leiðandi fátækur miðað við þessi tvo, Steinunni og Pál, sem skammta sér sívirðileg laun án alls eftirlits að því er best virðist. Hvar eru stjórnvöld? Hvar er eftirlit með þessu liði?  Ég er búinn að fá upp í kok á þessu rugli og  krefst þess að við þessu verði eitthvað gert!!

Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson í slitastjórn Glitnis banka.


Just the Bieber!

Það er stormasamt i kringum kappann hann Bieber, greyjið reykti marjúana og var myndaður, og ljósmyndari lést við það að elta kappann, Bieber beraði svo bossann og setti á Twitter sem síðan var fjarlægt í snatri, skaut úr leikfangabyssu á öryggisvörð og áreytti konu á líkamsræktarstöð. Svona er endalaust hægt að halda áfram með hans raunir, það er ekki allra að  verða frægir, sumir hreinlega höndla hana ekki!!


mbl.is Berst Bieber eða bugast?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múrmeldýrið sá skuggann sinn, Groundhog Day

Samkvæmt gömlum hefðum hefur það verið venja að merkja vetrarlok með því að láta Phil, sem er jú múrmeldýr eins og allir vita, spá um vorkomu, hann sá skuggann sinn og það merkja menn sem að vor sé á næsta leyti!!

Umrædd hefð ku eiga rætur sínar í þeirri hefð á meðal þýskra bænda að fylgjast náið með hegðun dýra til þess að meta hvenær væri rétt að hefja sáningu í akra sína.

Allir muna eftir myndini Groundhog Day, með Bill Murray og  Andy McDowell þar sem að Bill Murray  fer á kostum.

Frá degi múrmeldýrsins í dag. <em>AFP</em>


mbl.is Múrmeldýrið sá ekki skuggann sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný Samfylking ?

Nú er ljóst að ný stjórn tekur við hjá Samfylkingu eftir kosningu dagsins, Dagur víkur fyrir Katrínu og Jóhanna fyrir Árna Páli. Ég held að þetta eigi eftir að styrkja flokkinn mikið og þeir munu smátt og smátt vinna upp sitt fylgistap með tímanum.


tvö lög í úrslitum

Ég er hrifinn af laginu hans Eyþórs en skil ekki val á hinu laginu, henni Sollu stirður og Ég syng,

hefði valið lagið hennar Birgittu frekar, en það er nú bara ég.

Eyþór Ingi Guðmundsson á sviði. <em>mbl.is/Eggert Jóhannesson</em>


mbl.is „Ég á líf“ og „Ég syng“ í úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin með fyrsta vinning í EuroJackpott-- DJÓK !!!.

Ég held að við gætum alveg verið án þess að taka þátt í þessum leik, hverjir eru möguleikarnir? hvert fer gróðinn af þessu? Er ekki nóg fyrir okkur að spila í Víkingalottói???

Hefur einhver reiknað út hve háar upphæðir eru notaðar á ári á Íslandi í lottó og getraunir ???,,

.


mbl.is Enginn með fyrsta vinning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt Ísland

Nú er tækifæri, nú er séns, núna verðum við að standa saman og ákveða framtíð okkar, viljum við áframhaldandi ríkisstjórn eða viljum við fá ferska og ábyrga stjórn sem kemur okkur til framtíðar með nýsköpun og framtíðarsýn? Já, Það held ég svo sannarlega, þess vegna ætla ég að kjósa Sjálfstæðisflokkinn!!

Súluritið hér að neðan er bara til gamans, en það sýnir nokkurn veginn hvernir þetta verður í vor!!


Ekki mjög skemtilegt fyrir Jóhönnu!

Kannanir síðustu daga hafa ekki verið til þess að skemmta Jóhönnu né Steingrími, enda eru þeirra flokkar nánast að hverfa.

Í könnun sem Gallup gerði eru það Björt Bramtíð og Framsókn sem taka griðarlegt fylgi til sín, og er BF með næst mest fylgi mælt á eftir Sjálfstæðisflokknum. Ég á von á því að þetta verði nokkurn vegin þannig í vor,  að Sjálfstæðisflokkurinn fái  38%, Framsóknarflokkurninn ´19%, Björt Framtíð 14%, Samfylking 12%, og VG 10%, aðrir rest"!!!


mbl.is Ekki skemmtilegt fyrir Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttavefur MBL er 15 ára í dag!

Það er frábært að horfa tilbaka og sjá hve miklar breytingar hafa orðið síðan 1998 er þessi tímamót frétta áttu sér stað!. Ekki aðeins hefur þetta haft áhrif á þá sem fréttaþyrstir eru heldur hefur þetta haft gífurleg áhrif á bloggara á MBL og vafalaust annara miðla.

Eg óska öllum sem að þessum vefmiðli koma, til hamingju með árangurinn og vona að það sem framundan er sé ekki síðra!!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband