Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Umsátur í bænum Rothbury í Englandi í beinni á Sky

Er að horfa á Sky News og þar er verið að tala um mann sem grunaður er um að hafa skotið fyrrverandi unnustu sína og myrt mann hennar ásamt því að hafa sært lögregluþjón alvarlega.

Lögreglan er sögð í  þessum örðum skrifuðum að ræða við þann grunaða og reyna að fá hann til að gefast upp, hann er sagður vera með byssu beinda að höfði sér og vera tilbúinn að skjóta sig!!


mbl.is Umsátrið heldur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fangaskipti bandaríkjamanna og rússa

Þetta minnir  mig á góða  bíómynd frá áttunda áratugnum þega kalda stríðið var í algldeymingi!! nema að þá áttu þessi skipti sér stað í lest sem staðsett var á milli Vestur og Austur Berlínar Cool, og ef minnið er ekki að bregðast mér var það Gene Hackmann sem lék  það hlutverk af  mikilli silld með aðstoð ballettdansara  sem ég man hreinlega ekki hvað heitir !!!


mbl.is Njósnaraskipti í Vínarborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hætt við nauðungaruppboð!

Skref í rétta átt, og er það óskandi að svipað verði upp á tengingum í fleiri uppboðsmálum sem vafalaust eru allmörg!!!
mbl.is Hætt við nauðungaruppboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var norska olían skotmarkið?

Skv frétt í vikunni handtók norska lögreglan 3 menn sem grunaðir eru um að hafa ætlað sér alvarleg hryðjuverk í Noregi en ekki er vitað um hvaða skotmörk mennirnir miðuðu á, en nú eru uppi þær umræður að það hafi verið olíuiðnaður norðmanna sem hryðjuverk þessi beindust að, ekki síst í ljósi þess að einn þeirra hafði sótt um að komast í fyrirlestra um olíuborun!

Maðurinn, sem er flóttamaður frá Úsbekistan, hafði sótt um árin 2007 og 2009 að komast í ITC iðnaðarskólann í Osló. Maðurinn er 31 árs gamall, hafði dvalarleyfi í Noregi.


mbl.is Var norska olían skotmarkið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Catalina dæmd í 15 mánaða fangelsi fyrir vændi

Hún er ekki dæmd fyrir mannsal heldur vændi og líkamsmeiðingar og brot gegn valdstjórninni. skv dómi er féll í héraðsdómi Reykjaness.

Það eru örugglega skiptar skoðanir um þennann dóm sem ég ætla ekki að fara út í en ég tel að þarna hefði mátt dæma í lengri tíma!


mbl.is 15 mánaða fangelsi fyrir vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þörf fyrir nýjann stjórnmálaflokk?

Það halda margir að vegna ágreinings um aðild að Evrópusambandinu séu fjórflokkarnir að klofna í afstöðu sinni til málsins og vilji til þess að kljúfa sig út úr flokkunum og stofna sérframboð sem styðja eigi aðild að sambandinu.

Algjört "humbukk" gef lítið fyrir þetta, þeir hinu sömu hljóta að vita að þeir fá ekki fylgi fyrir þessum skoðunum sínum,  það  er ljóst að mikill meirihluti landsmanna er mótfallinn aðild að þessu bandalagi, og gerum ekki lítið úr því.

Þess vegna spyr ég, hvað þarf til að blessaðir stjórnmálamenn okkar virði skoðanir okkar kjósendanna og fari að vinna í þágu okkar í stað þess að gera það sem stjórnmálamenn hafa alltaf gert "best", mata krókinn og þæfa mál niður í nefndir.

Kjörnir þingmenn verða að vaka og sofa eftir kjósendum sínum, það er ekki nóg að vera bara trúr sinni eiginn sannfæringu (þó virðingarvert sé öllum stundum) en  þjóðinn ræður hverju sinni!!!


Sorglegt slys í Kongó

Þetta slys er hrikalegt en hefði senilega ekki átt sér stað í  Evrópu, olíubíllinn veltur í þorpinu og bensín byrjar að vella út úr bílnum, í stað þess að flýja fer fólk að þyrpast að bílnum til að ná í bensín sem er að leka úr farartækinu, og þá springur allt í loft upp.

Þarna er náttúrlega aðeins hægt að kenna um fátækt og skorti á fræðslu,  þar sem  ég geng út frá því að ekki sé  um háskólagengið fólki  að ræða.


mbl.is Skelfing í smáþorpi í Kongó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spánverjar áfram

Unnu Paraguæ  1-0 úha úha!!!

Spánverjar komnir yfir 1-0

Hola Senor  

  








Þessi ríkisstjórn er eins og bland í poka!

Það má líkja þessari ríkisstjórn við fimm ára frænku mína sem á laugardögum bíður alltaf eftir sínu "blandi í poka" og fær ef hún hefur verið góð stelpa, hún  veit aldrei hvað er í pokanum og það er mest spennandi, það má segja það sama um stjórnina, þú veist ekkert hvað er í gangi hjá þeim fyrr en þeir gera hvert axarskaftið af fætur öðru, það er einhverskonar bland í poka þar sem allt nammið er vont, ef ekki beinlínis skemmt!!!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband