Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

Ein mistök eru of mikið fyrir þetta lið!!!

Capello segist sáttur við frammistöðu sinna manna í kvöld, þrátt fyrir að ná aðeins jöfnu gegn Bandaríkjamönnum í kvöld, Green átti að öllum öðrum ólöstuðum sök á þessu jafntefli er hann missti varðann bolta inn fyrir sig og sýndi enn einu sinni að hann er ekki markmaður sem á heima í þessu liði, ekki frekar en James, það er í raun engin almennilegur markmaður til í Englandi sem veldur þessari stöðu!!! Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir þetta lið.


mbl.is Capello: Ein mistök í góðum leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er maðurinn eiginlega að hugsa?

Hann er með sporðdreka í klofinu, hnífa í bowling kúlu sem hann kveikir í og kastar henni síðan á........... Jæja, sjáið þetta bara hér :


Sælgætisverksmiðjan horfin!

Heil sælgætisverksmiðja er horfin í Hafnarfirði, virðist sem einhver óprúttinn hafi stolið henn í heilu lagi.

Annsi skrautlegt svo ekki sé nú meira sagt, en Jóhannes G Bjarnason eigandi hennar kærði málið til lögreglu sem hefur látið málið niður falla, en ekki Jóhannes sem enn leitar að henni.

„Þetta var í glerkrukkum og rokseldist alveg hreint," segir Jóhannes.

Við vonum að hann finni verksmiðjuna sína.

http://visir.is/saelgaetisverksmidja-horfin-i-hafnarfirdi/article/2010715145254

 

 


Ekki drepa Lúpínua!!!

Ef Svandís Svavarsdóttir ætlar að ganga af Lúpínunni allri , þá er í flest skjól fokið!!

http://visir.is/hafna-herferd-gegn-lupinu/article/2010744102206


BP mun fresta arðgreiðslum!

Erfitt er að skilja þessa ákvörðun BP í ljósi hrikalegs ástands í Mexícóflóa, þar sem leki er að verða einn sá mesti í manna minnum. Og það sem enn erfiðaðar er  að skilja, er að hlutabréf fyrirtækisins eru að hækka um 7%  á verðbréfamörkuðum í London!!

Útlimir látins tvíburabróður uxu út úr maga 7 ára drengs: Með 4 fætur, 4 hendur og 2 botna

Shit, þvílík byrði að bera, vesalings drengurinn náttúrulega þekkir ekkert annað, enda fæddur með þessa hryllilega vanskapnaða útlimi!! 

 vanskapaðurEn nú hefur draumur þessa drengs ræsts þar sem læknar hafa fjarlægt þessa útlimi tvíburabróðir hans, eins og talið er að þetta hafi verið, og getur hann nú vonandi lifað eðlilegra lífi en áður!http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/utlimir-latins-tviburabrodur-uxu-ut-ur-maga-7-ara-drengs-med-4-faetur-4-hendur-og-2-botna

Davíð Oddson getur einn komið okkur á réttann kjöl

davíð OEr Davíð Oddson sá sem getur ýtt okkur út úr kreppunni? Já, ég tel svo vera, og vona innilega að hann komi aftur á vettvang stjórnmálanna.

Mikið hefur verið rætt um þátt hans í hruni og spillingu bankanna, en ég segi á móti að það sé alltaf auðvellt að hengja bakara fyrir smið! Hvað meina ég með því? Jú, hann er að sjálfsögðu tilvalið skotmark sem fyrrverandi forystumaður í Sjálfstæðisflokknum og leiðandi maður í áranna rás, og síðan liggur leið hans til Seðlabankans, og þar set ég punktinn, þoli ekki þegar afdankaðir stjórnmálamenn eru settir í embætti bara til að hugnast flokkshagsmunum, en ég held að það sé liðinn tíð og við munum ekki sjá það gerast aftur, (vonandi)

En aftur að Davíð Oddsyni, ég heyri það á götunni að menn vilji fá  hann aftur, telji að hann sé gæddur þeim hæfileika að ná fram því besta í fólki á erfiðum tímum, ekki ósvipað og Winston Churchill gerði fyrir breta í upphafi seinni heimstyrjaldarinnar!!

Churchill var nefnilega alls ekki vinsæll maður fyrir stríð og var það ekki heldur eftir stríð, hann var nefnilega bara akkúrat maðurinn til að taka á þem vanda sem stríðið var, og ekkert meira en það. nnski er Davíð einmitt sá maður sem getur komið okkur út úr krísunni sem við erum í!


Búið að loka Þórsmörk vegna flóðahættu

flóðahætta

Amannavarnir hafa lokað Þórsmörk fyrir almennri umferð sökum hættu á flóði úr nýmynduðu stöðuvatni í gíg Eyjafjallajökuls.

"Kjartan Þorkelsson sýslumaður í Rangárvallasýslu, segir hættu á flóði niður Gígjökul og út í Markarfljót. Hann segir erfitt á þessari stundu að segja fyrir um hvort hætta er á stóru flóði. Vatn safnist fyrir og það geti brotist fram með litlum fyrirvara. Ákveðið hafi verið að banna alla almenna umferð inn í Þórsmörk, en staðan verði endurmetin eftir helgi þegar búið sé að kanna betur stöðuna uppi á jöklinum."


mbl.is Loka Þórsmörk vegna flóðahættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svika"hreinsun" Jónínu Ben?

Aðstoðarlandlæknir, Matthías Halldórsson segir að svokölluð ristilhreinsun Jónínu Ben sé gagnslaus með öllu, enda hafa fjöldi manns kvartað vegna þessa!.

Ekki get ég dæmt um þetta þar sem ég hef ekki prófað það, en hafandi lesið og séð fréttir og fylgst með þessari konu í gegn um árin, verð ég að segja að tilfinning mín er að þetta er ekkert annað en peningaplokk í besta falli!


Fyrsta kosningaloforðið svikið já Jóni Gnarr

Jón Gnarr hefur viðurkennt að hann hyggist svíkja það loforð sitt að gera alls ekki neitt! þar með hefur hann byrjað sína óformlegu borgarstjórnartíð með sínu fyrsta kosninngasviki, og ég sem var að vona að þetta yrði eina loforðið sem hann myndi standa við Sick

http://visir.is/jon-aetlar-ad-svikjalofordid-um-adgerdaleysi/article/2010192194822


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband