Bloggfærslur mánaðarins, október 2010

Landinn æstur í Björgvin og hans jólatónleika

Ekki skil ég þessi læti hvað tónleika  Björgins og gesta hans varðar, mér finnst þetta allt of miklir "iðnaðartónleikar" fyrir minn smekk um jólinn, finnst frekar að góðir tónleikar með góðum kirkjujólakór eða jafnvel tónleikar Hvítasunnusafnaðarins vera jólaleg innspírasjón inn í jólinn enda þessir stórtónleikar ekkert nema peningaplokk, þegar að hægt er að fara á mun jólalegri tónleika eins og ég sagði annars staðar fyrir littlar upphæðir.
mbl.is Landinn æstur í Björgvin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hef líka logið! en hvað með stjórnmálamennina?

Arsen Wenger segist hafa logið til um meiðsl sinna manna líkt og Ferguson gerði með Rooney, en vill ekki fara nánar út í það hverjir það voru, óskandi að slíkt hið sama  gerðu stjórnmálamennirnir okkar, en það yrði þá sennilega annsi langur pistill hér á blogginu!!!
mbl.is Wenger: Ég hef líka logið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vika í að námumenn sjái dagsljós á ný

Nú er aðeins vika eða svo að mennirnir innilokuðu í námunni í Chile komist upp á yfirborðið og til sinna ættingja. Það er með ólíkindum hve þeir hafa þraukað þarna niðri og náð jafnvel að stunda hlaup og aðrar æfingar til að geta komist fyrir í hólki þeim er niður um borholuna kemur.

Fólk grét og fagnaði ákaft.

 En eitt er víst, að það verður fylgst með þessu í beinni útsendingu um alla heimsbyggð, og ekki svo sem að undra Smile

http://visir.is/vika-i-ad-namumenn-sjai-dagsljos-a-ny/article/2010258930956


Róttæk öfl sögð á bak við menningarsetur múslima

Eins og ég sagði í bloggi mínu í gær, hefur komið í ljós að það eru róttæk öfl sem standa  á bak við  nýtt "menningarsetur múslima"  í Ýmishúsinu, það eru brottrækir aðilar frá hópi Salman Tamimis sem hafa með stuðningi 250 manna stofnað nýtt trúfélag múslima. "Í menningarsetri múslima eru einstaklingar sem Salman Tamimi segist hafi rekið úr sínu félagi fyrir að hafa brotið lög félagsins um öfga, ofstæki og yfirgang í nafni trúarbragða"

"Fjárfestarnir á bak við þessi 250 milljón króna kaup eru erlendir.Þeir heita Hussein Al-Daoudi, Maryam Moe og Sulaiman Abdullah Alshiddi.Það eru tengsl Alshiddi við öfgafulla múslima sem sett hafa verið spurningamerki við.Alshiddi er skólastjóri Al-Salam einkaskólans í Svíþjóð sem gagnrýndur hefur verið fyrir að þiggja fjárframlög frá íslömskum trúboðasamtökum i Saudi Arabíu.Þau eru nátengd Al-Haramein samtökunum sem eru á lista öryggisráðs Sameinu þjóðanna yfir hryðjuverkasamtök.Bandarísk yfirvöld telja sig hafa upplýsingar um að Al-Haramein hafi fjármagnað hryðjuverkahópa, á borð við Al-Kaída. "


 


Vill rétta yfir Jóni Ásgeiri á Íslandi

Brynjar  Nielson hæstaréttalögmaður vill að réttað sé yfir Jóni Ásgeiri og félögum á Íslandi en ekki í Bandaríkjunum, hann kom fram fyrir  dómi í dag erlendis og lagði fram þá ályktun.

Ég hlýt eins og svo margir  aðrir að vona  að svo verði og að hinir raunverulegu sökudólgar  hrunsins verði loks dæmdir, ekki stjórnmálamenn, enda ekki hliðstæða fyrir  því að slíkt hafi verið gert í öðrum löndum þrátt fyrir  að bankar þeirra hafi hrunið líkt og  hér á  landi.

http://visir.is/brynjar-nielsson-vill-retta-yfir-joni-asgeiri-og-felogum-a-islandi/article/2010821300884


Er öfgahópur muslima að hasla sér völd á landinu?

Það hefur varla farið fram hjá neinum að í Bandaríkjunum er deilt um staðsetningu mosku á Mannhattan, og sýnist sitt hverjum þar um það mál, þó flestir held ég séu því ósammála.

Í vikunni sá ég frétt um  að aðilar hér í Reykjavík hefðu  fengið vilyrði fyrir því að fá húsnæði í  bænum, nema að fyrir er félag múslíma sem  rekur mosku annars staðar og er  ekki par hrifinn af þessum áformum.

Salman Tamimi forsvarsmaður muslima hér á landi telur að hætta geti stafað af þessu, og að um öfgahóp eða jafnvel hryðjuverkamenn  geti verið að ræða.

Nú er bara spurning hvort yfirvöld sem heimilað hafa þessa umsókn taki málið til endurskoðunar.


Svandís telur að þörf sé á meira skapandi mönnum í forystu Samtaka atvinnulífsins!

Þetta  finnst mér koma úr hörðustu átt, hvað hefur ágætur  ráðherra, Svandís Svavarsdóttir gert sér til  ágætis annað en að verða sér og sínu embætti til ævarandi hneisu að ekki sé vægar að orði komist, hversu "skapandi" hefur háttvirtur  ráðherra verið á sínum  ráðherraferli?,  er manneskjan  gersamlega úr tengslum við raunveruleikann eins og hann blasir við  fyrirtækjum og  heimilum í dag??? 

Námumenn í Chile, nokkrar klukkustundir eftir !

Nú eru aðeins fáeinar klukkustundir í að borinn sem á að ná til námumannanna í námugöngumunum í Chile fari í gegn, fjöldskyldur þeirra allra eru á staðunum og bíða í ofvæni eftir að sjá sína heittelskuðu eftir um tveggja mánaða  aðskilnað.

Ekki er þó talið að  þeir náist upp fyrr en eftir nokkra daga eða í fyrsta lagi um miðja næstu viku að talið er.

Á meðan bíða fjöldskyldur þeirra með kertaljós og biðja bænir.


mbl.is Nokkrar klukkustundir eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drottningarviðtöl Ingva Hrafns á Hrafnaþingi

Það er alltaf gaman af þáttum Ingva Hrafns á ÍNN þar sem hann er með þáttinn Hrafnaþing, oftast er hann  með sjálfstæðismenn í viðtölum og talar þá digurbarkalega um stjórnvöld og jafnvel bankana sem  eru í raun uppspretta alls þess hruns sem við stönum nú frammi fyrir, sem er bara gott mál, en það er svo skrýtið að hlusta á viðtöl við bankastjóra t.d Landsbankans í vikunni, þegar að maður býst við að hann, Ingvi, taki hann og hakki hann í sig, en nei, það er aldeilis allt annað upp á tengingnum, hann er linur og lætur allar skýringar bankastórans sem góðar og gildar! sama er upp á teningnum þegar að hann hefur fengið Steingrím J í heimsókn, flestum hefði fundist að hann slyldi hakka manninn í sig, en aftur, nei, hann  er kurteis og fágaður sem er gott í  sjálfu sér, en hann gæti verið mun harðari, og miða ég þá við ummæli hans í sömu þáttum þegar að hann er með formála i byrjun þátta með t.d. Heimastórninni.

Totti: Er of góður til þess að vera þjálfari

Þvílikur hroki hjá manninum, verða menn svona af því einu að vera frægir????

 

http://visir.is/totti--er-of-godur-til-thess-ad-vera-thjalfari/article/201053218399


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband