Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Er Eva Joly dínamítkassi?

Hef þá tilfinningu að Eva Joly sé ákaflega ráðrík og ákveðinn kona sem víli ekkert fyrir sér og láti ekki nokkra stjórna því hvað hún geri. Hún hefur kvartað undan þvi að ekki sé nægur samstarfsvilji af hendi yfirvalda og hún tekur það óstinnt upp að hafa ekki almennilega skrifstofuaðstöðu á Íslandi sem og að fjárkortur sé að hamla rannsókn málsins, sem ég tel með ólíkindum ef rétt er. Hún telur að núverandi ríkissaksóknari Valtýr Sigurðsson sé óhæfur vegna tengsla við son sinn, hún vill hann burt en Valtýr fer hvergi að eigin sögn enda ekki hægt að reka hann! Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir Evu vera "dínamítskassa" hvað sem hún meini með því, Ragna er sammála henni um að Valtýr sé ekki hæfur en hendur hennar séu bundnar nema lögum verð hreinlega breytt.


mbl.is Eva Joly er dínamítkassi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningaaustur knattspyrnufélaga

Ég get ekki annað en verið Platini sammála um öfgarnar í kaupum stórliða Evrópu nú um mundir, Real Madrid er nýbúið að kaupa Kaká fyrir metfé og bætir um betur með sennilegum kaupum á Ronaldo frá Man U í nú í vikulok.

Þetta er að gerast á sama tíma og kreppa hefur skollið á álfuna og heiminn allan og og réttlætir þetta alls ekki, tel að forsvarsmenn klúbba í Evrópu verða að endurskoða sín mál, því við viljum helst ekki setja þak á launamál og kaup á íþróttamönnum.


mbl.is Platini ósáttur við peningaaustur Real Madrid
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann heitir Neal E Boyd og syngur Nessun Dorma af innlifun

 Hann heitir Neal E Boyd og selur tryggingar, með þessa fínu óperurödd og tekur Nessun Dorma af snilld Smile


Fairytale í útgáfu Simma og Jóa

Ef  ykkur langar til að hlæja aðeins eftir tapið á móti Hollandi, og eða vegna sorgar vegna Icesafe málsins, er hér góð leið til þess, þetta eru þeir Simmi og Jói með sína útgáfu af  norska eurovisionlaginu sem flutt var af hinum norsk-rússneska Alexander Rybaks. Smellið á linkinn hér að neðann.

http://visir.is/article/20090606/LIFID01/42513719


Hvalveiðar og hvalaskoðun eiga góða samleið!

það er staðreynd að hvölum í hafinu fer svo gríðarlega fjölgandi að miklil ógn stafar að fyrir þorskstofnin okkar sem og aðrar fisktegundir.

Hvar liggur sú ógn, hljóta þeir sem ekki vita betur, og eru kannski ekki sammála þessari kenningu að spyrja.

 Í fyrsta lagi er málum þannig  háttað, að sk. mælingum vísindamanna okkar er fjöldi flestra stofna hvala við Ísland orðinn það mikill að til vandræða horfir. Þessi dýr hljóta að þurfa að borða gríðarlega mikinn mat, og ef þau ætla í keppni við okkur mennina um fiskinn í sjónum, vil ég miklu fremur að við vinnum þá viðureign en hvalirnir stóru, sem gleypa gríðarlegt magn af fiski ár hvert. Hvað viljum við hafa í sjónum í náinni framtíð , fisk til að veiða, og seðja hungur komandi kynslóða,  eða full höf af risastórum kvikindum sem búinn eru að gleypa allann okkar fisk með stuðningi heimskskra, atvinnulausra aumingja um allann heim sem ekki hafa hugmynd um hvað um er að vera í okkar lífríki.

Og ofan á allt koma óánægjuraddir frá "hvalaskoðunarranninum , free Willie, og allt það batterý  sem það allt er. Það hefur sýnt sig að ferðamönnum  hefur síst fækkað þó hvalveiðar  hafi verið stundaðar svo til hlið við hliðl


Dýrasta pennastroka í sögu lýðveldi Íslands!

Það má alveg segja að þessi dagur sé sá svartasti í sögu þessa lands, enda nýbúið að skrifa undir afsal á sjálfstæði landsins. Það væri við hæfi að flagga í hálfa stöng á þessum sorgardegi og hvet ég alla þenkjandi menn til að gera það á morgun!

Skelfilegt er að vita til þess að Steingrímur J Sigfússon hefur undið sínu kvæði í kross hvað varðar skoðun sína á þessu Icesafe máli, hann gagnrýndi harðlega á sínum tíma í stjórnarandstöðu að borga þessa reikninga og aus saur yfir stjórnarflokka þess tíma, sem þá voru sjálfstæðisflokkur og samfylking með Jóhönnu meðal annars innanborðs!! Segið svo að menn dáleiðist ekki af blessuðum ráðherrastólunum!


mbl.is Erfitt að skrifa undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað verður um Spánarfríið okkar í sumar?

Ég er mikið búinn að velta fyrir mér hvort utanlandsferðir eins og við þekkjum þær í dag séu liðinn tíð nú í öllu þessu krepputali og hvað það þá varir lengi, þá er ég að meina þessar týpísku sólarlandaferðir landanns sem flykkist út á vorin og allt fram á haust, til að fá einhverja tilbreytingu í hið hversdagslega og ófrumlega tilbreytingarleysi hins daglega amsturs venjulegrar vinnuviku okkar.

Ég er einn af þeim sem fer reglulega út á vorin í tvær til þrjár vikur eða svo til að viðra kroppinn og sérstaklega þá sálina, komast í annað umhverfi, því hvað er betra en að fara úr köldum vindum íslenska vorsins,(þó ég sé ekki að setja neitt út á íslenska sumarið, það er einstakt út af fyrir sig), i brennheitann vorhita balkannskagans. Að spranga um á stuttbuxum og hlýrabol með hvern matsölustaðinn hlið við hlið, og ásækna talsmenn staðanna sem vilja ólmir tæla þig inn á sinn stað (auðvitað færðu sértilboð ef  þú sérð þér fært að kíkja inn, hvað annað :)), að ekki sé nú talað um alla ensku barina með sína týpísku ensku morgunverðamatseðla, sem reyndar eru eins frá morgni til miðnættis!,  það verður reyndar fróðlegt að reyna á hversu vingjarnlega þeir munu taka á móti landanum nú eftir bankahrunið og IceSafe málið ógurlega.

En kannski er ég nú bara að mála skrattann á vegginn, þeir gætu alveg eins þakkað okkur fyrir að losa sig við þessa útrásarvíkinga sem voru á góðri leið með að kaupa upp Bretland !  Nú er umhverfið töluvert annað, krónan einskis virði og hver evra kostar það mikið að mánaðarlaun hins almenna borgara dugar skammt til að framfleyta sér og sínum í 2 vikur, hvað þá fleiri, og erfitt að ímynda sér að venjulegur verkamaður komist út í sólina næsta vor og sumar.

Hvað um það, ég ætla samt að reyna hvað ég get til að skreppa þangað suður eftir í sumar eða í haust, enda ber ég þá von í brjósti að betri tíð sé á næsta leiti, er reyndar ansi vongóður um að svo verði, það er töluvert seigt í okkur (Ó)útrásarvíkingum á Íslandinu hinu góða :)


Innbrotsþjófurinn stal Audi Q7 á meðan fjölskyldan svaf

Ég kenni í brjósti um þessa familíu sem og aðrar er lenda í svona leiðindum! en ég hlýt að staldra við vegna þessarar fréttar og spyrja um fjárhagsstöðu þessa fólks, þau eru í einbýlishúsi sem er ekki málið út af fyrir sig, en það sem vekur athygli mína er að þau eru með fjóra bíla og þessi umræddi er nýr svartur Audi Q7 sem er sérinnfluttur frá Heklu og hefur 4,2 lítra díselvél og guð má vita hvað, hvernig eru hinir? þetta fer að minna á Jay Leno og hans safn.

Bara að minna á hvernig staðan er orðin í dag á milli hina ríku og  fátæku, það virðist ekkert vera þarna á milli eða hvað?

Sjá frétt á vísi http://visir.is/article/20090604/FRETTIR01/864621670


Guð Blessi Ísland !

Skv fréttum í kvöld munu íslensk stjórnvöld skrifa undir samning um Icesave reikninga okkar í nótt. Það mun falla í hlut Steingríms J Sigfússonar að sjá um undirritun þessa 640 milljarða skuldaklavasamnings og mun hanns verða minnst í söguni fyrir þann verknað æ síðan sem svik við land okkar.  sjá frétt: http://visir.is/article/20090605/FRETTIR01/713655320/-1

Guð Blessi Ísland!


Hannes greyið þarf að selja glæsiíbúð sína í London

Það sló mig verulega að heyra að einn af okkar mestu athafnarmönnum síðustu ára og framrásarvíkingur með meiru þurfi nú að selja ofan af sér íbúðina í ríki Gordons Browns og Darlings, sjálfsagt vegna skorts á vasapenigum! Þessi íbúð er ekkert slor, tæplega 300 fermetrar og á þremur hæðum, verðið er aðeins um einn og hálfur milljarður ísl króna! það ættu að vera  þó nokkrir kaupendur til á Íslandi fyrir þessari eign.

Sjá frétt á Vísi.is   http://visir.is/article/20090605/VIDSKIPTI06/319796649


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband