Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
25.4.2009 | 00:04
Hverjir voru trúverðugastir í kvöld?
Þátturinn byrjaði annsi rólega eins og svo margar drama myndir gera, en þegar leið á fóru leikendur að finna "rótina" sína og smátt og smátt byrjaði fjörið.
Mér fannst Jóhanna ansi dauf í dálkinn í kvöld og talaði allst ekki eins og forsætisráðherra ætti að tala á svona ögurstundu, virtist búinn á því á köflum, (spurning hvort hún ráði við þetta erfiða verkefni), ég held ekki, ( gleymum því ekki að hún var mjög hikandi við að taka við forystuhlutverki hjá Samfylkingunni á sínum tíma!) Kannski er það að skila sér í lélegu úthaldi hjá konunni. Steingrímur virtist í vörn allann tímann, Ástþór átti spretti en eins og þú segir, fullákafur á stundum, en ég minni á að fyrir 15-20 árum voru stjórnmálaumræður í héruðum og á opinberum vettvangi mun ákafari en nú,(ekki var óalgengt að menn létu hendurf skipta slíkur var ákafinn á stundum) menn í dag eru ansi settlegir í samanburði við það sem þá tíðkaðist
Mér fannst Sigmundur allst ekki þessi frelsandi engill eins og svo margir virðast líta á hann , er hreinlega ekki með á hreinu hvar ég hef þennann mann!(reyndar hef ég ekkert álit á honum nú eftir síðustu sprengjuna hans) Guðjón var eins og hann hefur alltaf verið, fastur í sínum kvótamálum og byggðarstefnu, sem ekki endilega er slæmt, hef ekkert álit á Þór Saar. Bjarni Ben fór á köflum í æsing við sessunauta sína, og kom mér það á óvart, þar sem ég hef talið hann rólyndismann að upplagi, en það eru jú engar smá upphæðir í boð í þessari rúllettu sem nú er að byrja að snúast.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2009 | 22:36
Hef grun um að skoðannakannanir muni reynast ósannspáar!
Já, ég held að skoðannakannanir síðustu daga, muni ekki lýsa skoðunum kjósenda á morgun, ekki síst í ljósi þess að allt of margir kjósendur eru óákveðnir, og eins það að "fyrirsagnaglaðir" forystumenn sumra flokka hafa farið yfir strikið, Fyrst voru VG menn eða konur, Kolbrún Harðardótiir með yfirlýsingar um olíumál, síðan hikandi (ó)svör Steingríms sem settu kjósendur í enn meiri óvissu, Sigmundur og hans hemsendaspá var gríðarlega óábyrg svo ekki sé meira sagt, og nú hafa þrír forsvarsmenn ríkistjórnarinnar stígið fram á svið og sagt að þeir kannist ekki við það plagg sem Sigmundur vitnar í sinni "harmageddon" spá. Hvað stendur eftir, jú þeir einu sem ekki hafa verið með óabyrgar yfirlýsingar eru sjálfstæðismenn sem hafa verið mjög íhaldsamir og varkárir í sínum málflutningi nú í aðraganda kosninga og haldið sig tiltölulega til hlés. Ok, hvað á maður að kjósa, var ákveðinn í að kjósta VG en er hættur við í ljósi síðustu atburða, XB kemur heldur ekki til greina þar sem ég tel Sigmund fara yfir strikið í hræðsluáróðri, ekki koma Guðjón og frjálslyndir til greina þar sem ég get ekki litið fram hjá fasistatilburðum þeirra hér áður, gleymum Ástþóri, þá standa eftir Borgarahreyfing og Samfylking, og það má ekki útiloka XD, þeir hafa sýnt mikla endurnýjun þó ég vildi sjá fleiri menn út eins og Guðlaug.
Ef við tökum þetta saman og súmmum þetta upp, þá stendur eftir sá flokkur sem ég kaus síðast og það er ....................................... og hana nú
Samfylkingin enn stærst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.4.2009 | 20:51
Fyrsti naglinn í kistu Ólafs Ólafssonar
Hér er kominn fyrsti naglinn af mörgum í kistu Ólafs í Samskipum, (þá er ég ekki að tala um hans persónulega kistu, svo það sé á hreinu) hann er tengdur gríðarlega mörgum "skúffufyrirtækjum" og er ljóst að hans spilaborg er að byrja að falla, nú Egla og hvaða fyrirtæki verður næst? Ég vona að að ekki komi til að Samskip fari yfir um eða þá önnur fyrirtæki með mikið af almennum verkamönnum en óttast að slíkt sé óhjákvæmilegt!
Egla óskar eftir nauðasamningum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2009 | 20:10
Harmageddon Sigmundar
Mér finnst þetta ústpil Sigmundar og hans flokks fara út fyrir allann þjófabálk! og gríðarlega óábyrgt og gerir ekkert annað en að skapa algerann glundroða hjá almenningi, ég trúi ekki að bæði Jóhanna, Steingrímur og Gylfi ljúgii því að hafa ekki heyrt af þessarri skýrslu! þau hljóta að vita að það mun koma í bakið á þeim ef þau eru að ljúga um tilvist þessa plaggs.
Sjá hér svar frá Gunnari Andersen hjá FME í Vísi.isnú kl 18 :
http://visir.is/article/20090424/FRETTIR01/269448435
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.4.2009 | 01:11
Goodbye,farwell !
Talinn hafa svipt sig lífi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.4.2009 | 00:27
Olíuleit Vinstri Gænna, taka 3
Skv þessari frétt : http://visir.is/article/20090422/FRETTIR01/219138542
Virðist sem allt logi í illdeilum vegna ummæla Kolbrúnar í kvöld, flokkurinn sér því þess ekki vænna en að gefa út þessa yfirlýsingiu og reyna að þagga þetta leiðinlega "mishapp" hennar Kollu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.4.2009 | 23:57
Svar Kolbrúnar
Mig langar til að gubba þegar ég heyri svona afsakanir! það líða ekki nema 2-4 tímar frá því að á hennar hlut er sótt, að hún er komin með yfirlýsingu sem afsakar allt sem hún segir, þetta var allt heljarinnar miskilningur og voða leiðinlegt! þetta er það sem ég kalla aumkunarvert í hæsta skala, og þýðir aðeins eitt, ég kýs ekki VG í ár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2009 | 23:42
Kolbrún verður að víkja!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.4.2009 | 23:10
Titillinn sennilega tryggður
Manchester United náði þriggja stiga forskoti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.4.2009 | 23:00
VG mun ekki fara i sæng með Samfylkingu!
það er sama hvað hver segir, VG mum að öllum líkindum ekki fara í stjórn með Samfylkingu að öllu óbreyttu, of mikill er ágreiningur þeirra um aðild að EB. Þeir nunu biðla til Sjálfstæðísflokks og er ég nokkuð hlynntur því. Svandís Svavarsdóttir var mög varkár í sínu máli í kvöld, en á milli lína mátti lesa að djúp gjá er á milli þeirra Össurar og Svandísar.
Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)