5.9.2009 | 19:30
Ef tími samstöðu er ekki núna, þá hvenær?
Ég neita að trúa því, né sætta mig við það að fáir menn á Íslandi, mínu ástkæra föðurlandi geti kollvarpað öllu atvinnulífi, landbúnaði og sjávarútvegi sökum þess að örfáir menn þurftu að kaupa flottar íbúðir eða snekkjur erlendis, hljóðfráar þotur og þyrlur til að skjótast upp í sumarbústað, svo ekki sé minnst á fínu veislurnar með heimsfrægum poppurum og fínustu kokkum heims, og skrifuðu þetta allt hjá íslensku þjóðinni ! Gleymum því ekki að þessar eignir, (íbúðir og snekkjur og þotur) voru fengnar á 100% láni frá bönkunum okkar, ég segi okkar því íslenska þjóðin átti þessa banka áður en ákveðin hópur stjórnmálamanna ákvað að gefa þá frá sér, skömmin er ævarandi þeirra, Ef þetta er ekki saknæmt, þá veit ég ekki hvað er.
Stjórnmálamenn hvar í flokki sem þeir eru, keppa aðeins að einu, að halda völdum ! ég meina, í öðru eins ástandi og nú geisar, skyldi maður ætla að samstaða okkar væri meiri en oft áður? Nú verðum við að breyta þessu, hvernig? jú, með því að vera samhuga í að láta jákvæðar fréttir vera í forgangi og ekki síst að láta flokkkspólítíska hagsmuni lönd og leið og vinna saman að sem bestu kjörum fyrir íslensku þjóðina, börnum okkar og barnabörnum til heilla í framtíðinni.Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.