Eldingar og vörn gegn þeim, rafvirkjar ekki á lausu!

Það er ekki endilega hlaupið að því að kalla til rafvirkja á þessum stöðum sem mest lætinn eru! góð ráð engu að síður.


mbl.is Margar eldingar í stróknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Öll umræða er góð og nauðsynleg. Ég vissi ekki um þessa hættu út af eldingunum og örugglega fleiri en ég sem ekki vissu? M.b.kv. Anna

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.4.2010 kl. 22:58

2 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Guðmundur,

Eftir að hafa búið í Texas í 8 ár, þar sem þrumuveður eru algeng, og hafa upplifað að eldingu laust niður í hús hinu megin við götuna frá okkur í San Antonio, þá kem ég ekki nálægt þessu.  Það var snarræði mín og annarra sem björguðu að þetta hús sem eldingunni laust niður í brann ekki því það kviknaði eldur undir þakklæðningu og ég sá smá eld þegar ég kom út og við kölluðum slökkviliðið til.  Þetta var í ausandi rigningu svo eldurinn slokknaði mjög fljótlega að utanverðu en var kraumandi undir klæðningunni.  Slökkviliðið rauf þakið og slökkti þetta.  Allar lagnir í húsinu brunnu, rafmagn, sími, sjónvarp, allir kaplar.  Það þurfti að skipta um flest heimilistæki sem höfðu brunnið yfir eða rafeindadótið í þeim var ónýtt og ekki borgaði sig að skipta um það.  Eldri kona, fyrrum lögregluþjónn, bjó í húsinu og henni var svo brugðið við þetta að hún bjó hjá dóttur sinni í hálft ár þangað til hún flutti heim aftur.  Ég gleymi aldrei leiftrinu og ærandi þrumunni sem kom á nákvæmlega sama tíma og að finna húsið okkar beinlínis nötra. 

Þar sem það er mikil hleðsla í öskuskýjunum ætti fólk ekki að vera á ferli utan dyra nema mjög brýna nauðsyn beri til.  Halda sig frá flatlendi og vötnum því þar leita eldingarnar að stystu leið til jarðar og ef ekkert stendur hærra upp úr landslaginu heldur en þú, þá eru mjög góðar líkur á því að þú fáir milljón volta stuð í kroppinn og það örugglega ekkert sérlega þægilegt!!! 

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 18.4.2010 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband