Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

AGS segir Ísland uppfylla skilyrði ! Bullsh..............

Eitthvað segir mér að AGS sé mikið í mun að íslendingar skuldbindi sig við sjóðinn, það eru allt of margar ónýttar  náttúruauðlindir hér eins og olía og orka að ekki sé talað um vatnið sem menn segja að sé gull framtíðarinnar, og vildu þeir ekki hafa hendur í þeirri tekjulind ? menn skulu ekki gleyma hvernig þeir fóru með lönd í Suður Ameríku, eftir að hafa lánað þeim fé og ríkið gjaldþrota og þeir þar með í kjörstöðu til að þurrmjólka landið.

Segjum nei við frekari "aðstoð" þessara glæpamanna hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum!!!Devil


Skjálftavirkni í Básum, spennan vex?

þetta er alls ekki búið, finn það einhvern veginn á mér! köllum það "sjötta skilningarvitið" eða þannig Woundering en málið er bara að jarðvísindamenn eru ekki og geta ekki séð neitt fyrir um þessa hluti og er það ekki endilega meint sem hnökuryrði um þessa frábæru vísindamenn heldur það að þetta er erfið vísindagrein sem erfitt er að festa hendur á að öllu leyti.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/04/01/jardskjalftakippir_vid_basa/


Ápríl hlaupin vegna Michael Schumacher?

Veit ekki hvort einhver hafi hlaupið apríl í dag þegar að ég sagði í bloggi mínu að Michael Schumacher myndi árita á Lækjartorgi á milli 12-13 í dag! Sá reyndar að fleiri hefðu notað hann í aprílgabbi sínu.

Bið þá sem það gerðu afsökunar og vonandi að þeir hætti ekki að heimsækja síðuna mína vegna þess Smile


Flugslysið á Flúðum kannski fyrsta slysið sem rekja má til gossins ?

Sorglegt slys og vonandi ná allir heilsu af þeim sem meiddust, ekki mátti miklu muna að vélin færi á eitthvert af þeim fjölmörgu sumarhúsum sem þarna eru, og þá þarf ekki að spyrja um hvað hefði getað gerst. Ef  þessi vél hefur verið í útsýnisferð um gossvæðið, er þetta  þar með fyrsta slysið sem rekja má til þess að ég best veit!


Fabregas fótbrotinn og leikur ekki meira með Arsenal

Það er komið í ljós að fyrirliði Arsenas spánverjinn Fabregas er fótbrotinn og er úr leik það sem eftir er af tímabilinu!! enn eitt áfallið hjá þeim.

Hvað sagði ég ekki!!!

Nú er verið að flytja alla úr Þórsmörk, á stundinni!  sjá frétt á visi.is

http://visir.is/article/20100331/FRETTIR01/488220779


Með ólíkindum þessi meiðsli hjá leikmönnum Arsenal

 það þarf að ath þjálfun á þessum bæ, hvar á að byrja eða enda, sennilega vita allir hvað gerst hefur, en það sem  bætist við er að Fabrecas er aftur  meiddur og einnig Gallas, það hlýtur eitthvað að vera að hjá þjálfarateyminu!!!!
mbl.is Gallas ekki meira með Arsenal?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íranskur kjarnorkuvísindamaður flýr til Bandaríjanna, O´Yeah!

Eg tel líklegast að honum hafi einfaldlega verið rænt af CIA til að forða honum frá  frekari tilraunum með kjarnavopn þar í landi, þannig vinna bandaríkjamenn út á við og alls ekki á vitorði neinna, þannig að þetta er aðeins tilgáta míin, (ef ég skyldi  hverfa af yfirborði jarðar,  þá er þessi grein ástæðan !  )

Michael Schumacher áritar á Lækjartorgi

Skv heimildum mun Michael Schumacher ökuþór í Formúlu 1 millilenda hér á leiðinni til bandaríkjanna og dvelja um stund til að sjá eldgosið á fimmvörðuhálsi sem hann hefur dálæti á að sögn þeirra er til þekkja, hann mun árita boli og plakköt á Lækjartörgi  á milli kl 12-13 á fimmtuda.

Margur er knár þó smár sé!

Þó það séu aðeins um 25 manns eða svo í Þórsmörk eru það sennilega um 25 manns of mikið! Ég hefði viljað ef ég réði einhverju þarna um, tekið þetta fólk strax og sent það tilbaka því ekki er hægt að byrgja brunninn eftir að barnið er dottið ofan í! þó að menn hafi tönnglast á að þetta gos sé lítið, hefur sannast að ýmislegt sé knátt þó smátt sé!!!

Eldgos_rstur_Jn_3_jpg_560x1200_q95


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband