Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ég þegi ekki neitt, segir Bubbi á Pressunni

Skoðið þessa grein hans Bubba, það er hreinlega fyndið að hlusta á hann úttala sig  um pólítik, og það er ekki ofsögum sagt til hvaða flokks hann horfir um þessar mundir!

http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Bubba/eg-thegi-ekki-neitt

 


Sigur á elleftu stundu!

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem að Arseal ná sigri á lokamínútu leiks, ég held það sé í  níunda skipti í vetur takk fyrir og veriði sæl !
mbl.is Wenger: Dýrmætur sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norsk hjón farast í sjnóflóði, fleiri en við íslendingar í návígi við móður náttúru

Það er á fleiri stöðum en á Íslandi sem náttúran segir svo illa til sín, í Noregi fórust hjón í snjóflóði á  Durmålstinden sunnan við Tromsø í norðanverðum Noregi í gærkvöldi.

Tók hana á öxlina!

Tók hana á öxlina og bar hana fyrsta spölin og síðan skiptumst við á! Cool  minnir mig á "Tekið hefi eg hér hvelpa tvo eða hvað skal við gera?" Þetta sagði Skarphéðinn Njálsson úr Brennu-Njálssögu. Bara svona að grínast Halo
mbl.is „Tók hana á öxlina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margt er líkt með Skotlandi og Íslandi

Ekki furða þó þessi ágæti leikari hafi ást á  okkar ágæta landi, hann er sjálfur skoti og hvað er betra en Skotland að viðbættum heitum hverum og smá eldfjallasýn og Vatnajöklaklaka í skoska viskíið hans InLove 


mbl.is Ísland uppáhaldsstaður Gerards Butlers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppann kannski ekki bitið okkur eins djúpt og menn hafa haldið?

Ég held að kreppan hafi ekki verið jafnsýnileg á Íslandi og margur hafi viljað að láta, verslun  hefur ekki fallið saman í jafnmiklu mæli og áður hafði verið spáð, sjávarútvegur er enn í ágætum málum, atvinnuleysi að vísu í hámarki, en ekki verra en í Evrópu almennt, menn kannski áttuðu sig ekki á að það var ekkert eðlilegt ástand hér á árunum 2002 ca til 2009 hvað varðar atvinnumál og yfirleitt hvað sem er, allt var yfirskotið. °Sjá mynd;

Samt sem áður hefði þetta ekki þurft  að fara svona það vita allir, eftirlit með bankamálum og spilling og kunningsskapur var allt of mikil í íslensku atvinnulífi og er þar  um að kenna fámenni íslensku þjóðarinnar og klíkuskaps er því hlýtur að fylgja, menn  halda partý hægri og vinstri og allaf sama fólkið þar, elítan íslenska var svo fámenn að ekki var hjá þvi komist að menn í stjórnmálalífinu kæmust í  nána snertingu  við bisnissmenn sem öllu þessu havaríi orsökuðu.

En engu að síður, mín tilfinning er að ástandið sé ekki verra en svo, að menn sjái enn ástæðu til að búa hér, fréttaflutningur hefur verið fyrst og fremst það sem blásið hefur út þetta ástand, ekki ósvipað og þegar að fuglaflensan var í fréttunum um árið, þá kollréð það öllum fréttatímum líkt og um heimsendi væri að ræða, síðan Mexícóflennsan eða "svínaflensan" ekki var nú minni fréttaflutningur þar um!

Þetta sýnir okkur að það sem við búum við á þessari littlu eyju er ofurselt valdi fárra áhrifavalda svo sem fjölmiðla og stjórnmálamanna hverra tíma er mata okkur á mis góðum eða "réttum" og eða áreiðanlegum,  fréttum af stöðu mála oft á tíðum.


mbl.is Allt stefnir í metár í ferðaþjónustu hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnendur vogunarsjóða mala gull, fjórir milljarðar dollara í laun á síðasta ári!!

Maður skilur ekki hvernig þessir hlutir í raun virka, það virðist sem sama spillingin sé í raun í gangi, og eftirlit ekkert, eða hvað? Eru þetta viðskiptahættir sem eru í lagi eða eru þessir "vogunarsjóðir" enn að starfa utan við lögleg mörk? Allavega finnast manni tölur á við fjóra milljarða bandaríkjadala fyrir síðastá ár vera annsi geðveikar tölur fyrir einn mann.

http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2010/04/03/stjornendur_vogunarsjoda_mala_gull/

 


Reyndu að sökkva norsku hvalveiðiskipi

Líklega voru þarna að verki hryðjuverkasamtökinn Greenpeace, Sea Sheppherd eða álíka samtök! þetta átti sér stað í höfninni Svolvær i Noregi í nótt. Botnlokur vour fjarlægðar ekki ósvipað og gert var við íslenska hvalveiðibáta árið 1986 í Reykjvíkurhöfn. En sem betur fer tókst að koma í veg fyirr að báturinn sykki í þetta sinn.

http://visir.is/article/20100403/FRETTIR02/763053421


Lognið á undan storminum

Þetta er aðeins lognið á undan storminum sannið til, eftir helgina verður fjandinn laus, og hann hefur aldrei kynnst ömmu sinni sem býr undir Kötlu.
mbl.is Óbreytt gos og fólk á heimleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

i Pad dásamað af bandarískum fjölmiðlum????????

Ég spyr, hvað í ósköpunu er þetta, í phone, i pad i þetta og i hitt!! hvað er það sem ég er að missa af ? er ég svona úreltur að ég fylgist ekki með? ekki þarf ég að nota þetta í vinnunni sem er þó háð mikilli tölvunotkun.

Eg vona að nördar þarna úti skýri ´þetta fyrir mér og fullt af öðrum fróðleiksfúsum mönnum og konum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband