Þrefallt húrra fyrir Bridgelandsliði okkar

Þetta er frábær árangur og sýnir enn hve lítil þjóð eins og okkar 320 þúsund manna land getur og kann, tek hatt minn ofan fyrir þeim ( í orðsins fyllstu )Smile
mbl.is Besti árangur á Evrópumóti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðverjar rústa Argentínu

Nú grætur Maradonna nokkur bitrum tárum enda er lið hans úr leik eftir burst þjóðverja 4-0, hvern hefði grunað það! En þetta  var fyllilega sanngjarnt og ekkert meira um það að segja, nú mæta þeir Spáni eða Paraguæ í undanúrslitum.


Þjóðverjar búnir að skora

Thomas Muller er búinn að skora fyrir þjóðverja eftir aukaspyrnu.


Talsmaður neytenda sendi skuldurum skilaboð!

"Talsmaður neytenda hefur sent bönkum og bílalánafyrirtækjum landsins tilmæli um að fólk og fyrirtæki með gengistryggð lán greiði aðeins fasta krónutölu af hverri milljón - þar til Hæstiréttur sker úr um vaxtakjör hinna ólöglegu lána. Framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja tekur vel í tilmælin. "

Halló!!  Af hverju tekur ríkistjórn Íslands ekki bara af skarið og setur lög á þetta bull! þeir hafa sett lög á annað eins!


Lýsing og Exista högnuðust um 90 milljarða á stöðutöku "gegn" krónunni

Á sama tíma hvatti fyrirtækið almenning og sína viðskiptavini til að taka stöðu "með" krónunni síðasta ár fyrir hrun!!

Ef þetta er ekki alvarllegur glæpur er ég  ekki íslendingur!!!!

Ég  meina, hvað eigum við lengi að láta þessa glæpamenn ganga yfir okkur á skítugum skónum, og síðan erum við að heyra lýsingar á því hvernig þeir ganga fram með yfirgangi í að taka aleiguna af okkur almúganum sem voru svo "græn" að fara í "viðskipti" við þessa glæpamenn???


Gæsluvélinn send á Mexíkóflóa, þvílíkt bull!

Mér finns þetta skrýtinn ákvörðun, þar sem við íslendingar erum varla í stakk búinn að láta okkar einu vél til lands sem talið er það ríkasta í heimi og ætti að eiga nægar vélar til að sjá um þessi störf, hver sem þau nú eru, ég hreinlega skil ekki svona bull!!!


mbl.is Gæsluvél send á Mexíkóflóa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SP-Fjármögnun fer að tilmælunum sem og Íslandsbanki!

Það er ljóst að bæði SP - fjármögnun og Íslandsbanki ætla að fara að tilmælum FME og Seðlabanka varðandi vexti sem skal miða við þegar gengislánin eru reiknuð út.

Ekki að það komi mér á óvart en varð engu að síður fyrir miklum vonbrigðum engu að síður, þar sem ég var að vona að þeir sæju sóma sinn í að halda þó sínu  striki þó það strik væri ekki sérlega hagstætt okkur heldur!! En svona er nú þessi svokallaða "pólítíska yfirstétt" okkar í dag.

Ég veit hreinlega ekki hvernig við getum breytt hlutunum ef ég á að vera hreinskilinn!


Bobby Fisher grafinn upp eftir helgi

Mér huggnast ekki þessar aðfarir, enda aðeins til þess fallnar að huggnast  fégráðugum ættingjum hans sem rífast eins og hundur og köttur um þennann littla arf sem hann lætur eftir sig!

Má hann ekki hvíla í friðí, enda búinn að þola nóg í sínu lifanda lífi.

http://visir.is/bobby-grafinn-upp-eftir-helgi-/article/2010374838966


Dunga hættur með brasilíska landsliðið

Carlos Dunga er hættur að þjálfa þá brasilísku eftir tapið gegn hollendingum í dag, enda ætti það varla að koma á óvart þar sem aðdáendur "Samba" fótboltanns eru farnir og áherlsa hans verið lögð á góðan  varnarleik, sem ekki er slæmt í sjálfu sér heldur eru þetta heldur mikil viðbrigði fyrir okkur samba dansarana.

Paris Hilton handtekinn á HM í Suður Afríku!

Hilton

Hilton var handtekinn eftir leik Brasilíu og Hollands grunuð um að vera með maríjúana undir höndum, ekki hefur verið staðfest að um hina ektakvinnu hafir verið að ræða en lögreglumaður sem ekki vildí láta nafns síns getið sagði að um hana væri að ræða.

Það er langt frá því að um þessa ágætu stúlku sé einhver lognmolla.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband