Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Kosningahátíð Ástþórs (ef ég mætti ráða)

Ef ég væri Ástþór Magnússon myndi ég efna til mikillar kosningahátíðar og bjóða ýmsum frægum og "misfögrum! listamönnum á staðinn og dettur mér þá helst í hug hún Susan Boyle sem slegið hefur í gegn á Bretlandi, hún er nátturulega svo græn ennþá að hún tæki ekki mikið fyrir að koma, og ekki verra að hún þekkir Ástþór ekkert Shocking ekki það að Ástþór hafi ekki efni á því, við verðum öll að spara, ekki satt?


Lýðræðishreyfingin stærsti flokkur landsins?

Skv þessari frétt, sem ég veit alls ekki hvaðan komin er, er Ástþór og hans menn stærsti flokkur landsins Devil hvernig sem það er nú hægt, ég hélt að ég væri eini stuðningsmaður þeirra!

http://lydveldi.blog.is/blog/lydveldi/#entry-856933


Af hverju að kjósa?

Hvernig stendur á því að við íslendingar skulum nú standa í þeim sporum að vita ekki hvaða flokk við kjósum eftir viku? Ákveðnir sjálfstæðismenn sem aldrei hafa annað kosið eru tvístígandi og sama er um vinstri flokkanna, menn greinir á sem aldrei fyrr um hverjir valdir séu að þessari kreppu?

Ég segi: förum virkilega eftir sannfæringu okkar í þetta sinn, munið að það sem fyrst kemur upp í hugann er yfirleitt það rétta! Ennfremur er mjög mikilvægt að að sem flestir mæti á kjörstað og láti sitt álit í ljós, ekki eyðileggja þjóðarhag með því að mæta ekki eða skila auðu!

 


Ég horfi, en hvað sé ég?

Mig langar til að fara með nokkrar ljóðlínur sem ég samdi einhverju sinni þegar mér þótti heimurinn ekki upp á sitt besta, síðan eru liðinn ca 25 ár, en þetta hefur endurtekið sig síðann, en er bara margfallt verra ef eitthvað er Heart

Ég horfi á veröldina eyðast

sundrast og verða að engu,

ég horfi á mennina berjast

og falla með krosssprungið hjarta.

Ég horfi á gangandi fólkið

flýta sér eitthvert með eitthvað,

ég horfi með söknuði á dýrin

sem að brátt munu hverfa og deyja.

Ég horfi á tæknivædda skermi

sem að fyllingu fólkinu veitir,

ég horfi á allt sem ég sé

því að brátt mun ég alls ekkert sjá.

Ég horfi á sjóndeildarhringinn

sem þrengist nú æ meira að,

ég horfi á svækjuna nálgast

með bráðkvaddann dauðann í för.

 


Krísuvísa eða kreppuvísa ?

 

Af krepputali og bankaklúðri,

af knésettum mönnum og öðru slúðri,

ég er knúinn áfram af auðfengnum gróða

en á endanum er þetta allt fyrir róða?


Hvað eigum við að kjósa ?

Eftir að hafa fylgst með þáttum þeirra á Rúv, frá borgarafundunum svokölluðu þar sem oddvitar flokkanna komu saman og svöruðu fyrirspurnum, bæði frá stjórnendum og þeim úr sal, verð ég að segja að ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum!. Ég var að vona að með þessum fundum myndu frambjóðendur virkilega sýna hve mikils megi vænta af þeim og hve mikið varið væri í þau.

En þvílík vonbrigði biðu okkar!  Hverjum af öðrum virtist fyrirmunað að koma með einföld og skorinort svör við einföldum spurningum fyrirspyrjanda, orðskrúð var gríðarlegt og útúrsnúningar yfirgengilegir. Það var helst að maður legði hlustir við jaðarflokka eins og Lýðræðishreyfinguna og Borgarahreyfinguna, þeir voru ekki mælskustu menn þessa kvölda, en þeir voru að minnsta kosti að tala út frá hjartanu, það er meira en hægt er að segja um fjórflokkaséníin sem öll skreyttu sig með sömu tuggunum og tuggin hefur verið árum saman fyrir kosningar, nema að núna með smá kreppubragði til að breyta út frá venjunni!!

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvað kjósa skuli og verið nokkuð óákveðinn hvað það varðar, en ég er nokkuð sannfærður um að á næstu dögum muni úrslitavaldur kosninganna koma fram með miklum látum og alþýðan mun kjósa rétt, svo Ísland muni ekki sökkva í dýpsta óminnishaf allra tíma!


Ástþór segir um sjóðasukk borgarahreyfingarinnar!

Það er bráðfyndið að fylgjast með hvernig kosningabaráttan er að þróast þessa stundina,  Ástþór og hans menn ásaka Borgarahreyfinguna um að blekkja menn hvað varðar styrki, þ.e. Borgarahryfingin segist ekki þiggja styrki frá neinum stórfyrirtækjum og séu án  annarra hagsmunatenglsa.  Ástþór telur þetta allst ekki rétt  og segir Borgarahreyfinguna jafnspillta og hin gömlu flokkakerfi.

Hann segir að Herbert Sveinbjörnsson, sem hann segir að vinni fyrir Rúv hafi verið í framboðsferð umj landið þegar vinnuveitandinn hélt hann vera í vinnu! 

Einnig segir Ástþór að Þráinn Bertelsson sem þiggi styrki sem borgarlistamaður, noti þann pening til að fjármagna framboð til þings!

Nú, er þetta ekki bara brandari? eða er kosningabarátta Ástþórs á þessa vegu, ekki það að ég sé hissa,

 


Er Guðlaugur að ljúga?

Guðlaugur telur að ákveðin öfl innan flokksins vinni gegn sér, og íhugi ekki segja af sér.Hann ræðst á Agnesi Bragadóttir og færir hana í" líkindarmál" með Ögmund Jónasson í aðalhltverk! sjúkt! Þessi maður er greinilega að segja ósatt, ég les það á milli línanna!

http://visir.is/article/20090411/FRETTIR01/848654697/-1

 


Carlos Santana enginn annar

Carlos Devadip Santana er forveri Gary Moore, hér er hann með lagið Europa.


Gary Moore - Still got the blues - Live

Vá hvað þetta er flottur gítar Cool


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband