29.4.2011 | 20:10
Tilboðunum rignir inn eftir megrunina
Slæmt ef rétt er, þetta er ekki beint hughreystandi fyrir fólk sem kannski er ekki í "módelstærð" því hún var alls ekki "feit" í þeim skilningi orðsins, en svona er Hollywood, glamúr með súkkulaðihjúpuðu yfirborði!!!
Tilboðunum rignir inn eftir megrunina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki feit? Hún var alveg spikfeit.
Einar (IP-tala skráð) 29.4.2011 kl. 20:59
Einar, hún var það sem við köllum "vel í holdum" ekki spikfeit, þetta er niðrandi hjá þér kæri vin!
Guðmundur Júlíusson, 29.4.2011 kl. 21:55
Það sem mig langar að vita er hverskonar tilboð það eru sem rignir yfir hana eftir að hún varð léttari.
Svo langar mig að vita hversu mörg þeirra tilboða eru frá einhverjum öðrum en karlmönnum sem langar að sænga með henni.
Ég hef ákveðna hugmynd um hver svörin gætu verið, en það væri hinsvegar forvitnilegt að fá þau staðfest.
Hver er annars þessi manneskja og hvernig leit hún eiginlega út áður? Hún hlýtur að hafa verið meira en bara feit ef svona mikill munur á viðmóti fólks er raunverulegur.
En auðvitað er hann það ekki, þetta er einungis afritun úr einhverjum fabríkeruðum slúðurdálki sem hefur engin tengsl við raunverulegt mannfólk.
Guðmundur Ásgeirsson, 30.4.2011 kl. 00:21
Nafni, þetta er söngkona sem sigraði í American Idol fyrir nokkrum árum, hér er slóð á mynd af henni þá:
eins og þú sérð er þetta bara venjuleg þétt soul söngkona með þétt holdafar.
http://www.dv.is/media/news/story/image/Jennifer_Hudson__jpg_800x1200_q95.jpg?entry=8599
Guðmundur Júlíusson, 30.4.2011 kl. 00:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.