8.10.2010 | 21:49
Svandís telur að þörf sé á meira skapandi mönnum í forystu Samtaka atvinnulífsins!
Þetta finnst mér koma úr hörðustu átt, hvað hefur ágætur ráðherra, Svandís Svavarsdóttir gert sér til ágætis annað en að verða sér og sínu embætti til ævarandi hneisu að ekki sé vægar að orði komist, hversu "skapandi" hefur háttvirtur ráðherra verið á sínum ráðherraferli?, er manneskjan gersamlega úr tengslum við raunveruleikann eins og hann blasir við fyrirtækjum og heimilum í dag???
Athugasemdir
Kannski er Svandís svolítið undrandi á þeim sköpunarmætti sem er jafn frumlegur í dag og fyrir 50 árum.
Svo er ágætt að það komi fram að Svandís er ráðherra umhverfismála en ekki atvinnurekandi. Og fyrir þá sem ekki skilja muninn á því er engin lausn í sjónmáli nema kannski á vegum heilbrigðisstofnana.
Árni Gunnarsson, 10.10.2010 kl. 09:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.