Stefnumál "Besta flokksins" móðgun við þenkjandi fólk!

Hér eru nokkur atriði tekinn úr þessum lista þeirra um "stefnumál sín" ég nefni númer af handahófi.

Stefnumál nr 2.  Bæta kjör þeirra sem minna mega sín.

Við viljum allt það besta fyrir "svoleiðis lið" og bjóðum því ókeypis í strætó og sund þannig að maður geti ferðast um Reykjavík og verið hreinn þótt maður sé fátækur eða eitthvað að manni.

Stefnumál nr 3. Stöðva spillingu.
Við lofum að stöðva spillingu. Við munum gera það með því að stunda hana fyrir "opnum tjöldum"

Stefnumál nr 8. Ókeypis í strætó fyrir námsmenn og aumingja

Við getum boðið meira af ókeypis en allir aðrir flokkar því við "ætlum ekki að standa við það". Við gætum haft þetta hvað sem er, til dæmis ókeypis flug fyrir konur eða ókeypis bílar fyrir fólk sem býr útá landi. Það skiptir ekki máli

Á ég að halda áfram? þetta er móðgun við þenkjandi Íslendinga og á ekki heima á tímum sem þessum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hverja mælir þú með að ég kjósi, Guðmundur? Gefðu mér nú gott ráð ... þú ert greinlega miklu betur að þér í þessum málum en ég.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 8.5.2010 kl. 06:14

2 identicon

Það segir sig sjálft, að sjálfsögðu "besta flokkinn" :) eða öllu heldur, eina flokkinn!

Guðmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 8.5.2010 kl. 17:51

3 identicon

 Sem er ... ??????

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 8.5.2010 kl. 20:38

4 identicon

Ertu eitthvað nær þó að ég segji að X D sé flokkurinn?

Guðmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 8.5.2010 kl. 21:11

5 identicon

Já, kominn með það!

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 8.5.2010 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband