20.3.2010 | 23:17
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands
Góðan dag kæru ráðherrar
Mig langar til að leggja smá fimmspurninga krossapróf fyrir ykkar háttvirtu þingmenn og ráðherra ríkisstjórnar Íslands.
- Hvað teljið þið að núverandi stjórn muni sitja lengi ?
a þrjá mánuði b sex mánuði c tólf mánuði
2. Hvaða flokkur innan ríkisstjórnarinnar ykkar mun verða fyrst til að slíta samstarfi?
a VG b Samfylking c Verða báðir reknir út úr þingheimi af óðum lýð frá Austurvelli
3. Finnst ykkur að Kínverjar eigi að koma að uppbyggingu landsins að einhverju leyti?
a Já, með því að leyfa þeim að fá hafnaraðstöðu b Nei, EB á að hjálpa okkur út úr krísunni c Hvorki né !! (má ekki taka afstöðu sökum stöðu minnar ! )
4 Hvað á að gera til að bjarga fjöldskyldum landsins frá því að missa húsnæði sín?
a Láta byggja bragga í neðra Breiðholti b Gefa út matarmiða til fólks með undir 100 þ tekjum c Flytja alla er ekki hafa efni á að borga til Grænlands
5 Hvað ætilið þið að gera til að hjól atvinnulífsin fari að snúa aftur?
a Selja erlendum fyrirtækjum aðgang að auðlindum landsins b Fá Pólverja til að koma og vinna fyrir fríu bakkelsi c Reyna að fá stóriðjustefnu staðfesta og í gagnið.
Með von um að þið sjáið ykkur fært að svara þessu einfalda krossaprófi
Svör sendist á gummijul@internet.is eða á http://gudjul.blog.is/blog/gudjul/
Vinarkveðja
Guðmundur Júlíusson, Krossfari
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.