Bubbi ver Baugsveldið og telur Davíð höfuðskúrkinn!

Nú er Bubbi byrjaður að blogga og byrjar á að verja Baugsveldið fullum hálsi og segir: tilvitnun:

"Höldum því til Haga að Jón Ásgeir og Jóhannes í Bónus bera ekki ábyrgð á íslenska hruninu. ... [Finnur Sveinbjörnsson] Bankastjóri Arion banka hefur útskýrt  vel þau atriði sem voru þess valdandi að ákveðið var að setja Haga á markað og leyfa núverandi stjórnendum að kaupa 15% hlut á sama verði og aðrir. Vandamál Haga eru ekki tilkomin vegna þess að fyrirtækið sé illa rekið heldur vegna þess að Seðlabanki Íslands rústaði krónunni. ... Arion banki hefur ekki gert neitt ólöglegt né siðlaust. ... Davíð [Odddson ritstjóri Morgunblaðsins]hamast dag eftir dag. Vitandi það að reiði fólks þarf að fóðra.  Hvað er betra en að fela eigin mistök með stærstu smjörklípu sögumnar  og benda á Jóhannes í Bónus og alla hina?"

Jahérna, hverjum hefði dottið í hug að Bubbi myndi verja útrásarvíkinga nr 1 ?? Ég set málið í dóm ykkar.

http://eyjan.is/blog/2010/03/13/bubbi-morthens-til-varnar-baugsfedgum-hogum-og-arion-banka-allt-david-ad-kenna/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband