Færsluflokkur: Fjölmiðlar
15.7.2016 | 23:04
Eru 365 miðlar á niðurleið ?
Ég er búinn að vera dyggur áskrifandi Stöðvar 2 frá byrjun eða frá því í október 1986 þegar að Jón Óttar og Hans Kristján gerðust svo djarfir að ráðast í þessa stórtæku framkvæmd sem þá þótti. Alla tíð síðan, eða öllu heldur "nærri því alla tíð síðan" hefur þessi stöð verið með afburða efni og kappkostað að gefa áskrifendum sínum kost á sem allra bestu dægradvöl sem völ er á.
Þættir eins og Fóstbræður, Næturvaktin, Heilsubælið í Gervahverfi eru góð dæmi um íslenska þætti sem varið var í og vandað til ásamt fleiri góðum þáttum.
Eins hafa þeir og eru enn verið langfremstir í sporti og er það vel, þó dýrt sé, þeir hafa yfirboðið keppinautana í flestu, enska boltanum, formúlu 1 kappakstri, íslenska fótboltan, körfuboltann og þannig má lengi telja. Allt kostar þetta og er ég nú að nálgast upphaflegan tilgang þessa pistils.
Þeir hafa verið duglegir við að segjast skemtilegastir, með rödd Björgvins Halldórssonar aðalþulu þeirra til margra ára og hafa getað staðið við það þangað til
núna ca undanfarið ár eða svo, að margt hefur breyst til hins verra.
Það byrjaði með að Bíórásin sem sýndi reglulega nýlegar myndir, sem og gamlar í bland, og maður gat horft á rásina þokkalega reglulega án þess að fá endursýningu, í dag eru sömu myndirnar dag eftir dag, viku eftir viku, og mánuð eftir mánuð!! Dagskrá meginrásar þeirra, stöð 2 fór ekki varhluta af þessu og er i dag ekki svipur af sjón frá þeirri stöð sem hún var fyrir um þremur árum síðan! í dag er verið að sýna t.d. á prime time sýningartíma eftir fréttir gamla "Friends" þætti, sem allir eiga á diskum og hafa einnig stanslaust verið til sýninga á Gullrás þeirra, sem jú, er hætt, og sameinuð stöð 3, það er verið að sýna þáttaröð sem heitir ég og 70 mínútur á besta tíma, þætti sem Auddi, Pétur og Sveppi gerðu fábjánalega hluti fyrir mörgum árum síðan! VÁ, fá mann til þess að fá aulahroll svo um munar, en þetta kemur svo sem ekkert á óvart þar sem að einráður í brúnni er Jón Gnarr.
jæja, þetta eru bara nokkur dæmi um dagskrá stöðvar 2. Mig langar að síðustu að nefna að þeir eru hættir að hafa texta á Stöð 3 (sem er nú sameinuð Gullrásinni) líklega í sparnaðarskyni.
Er það löglegt? Nei, því í fjölmiðlalögum segir:
"Samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 29. gr. skal hljóð og myndefni á erlendu máli, hvort heldur sem því er miðlað í línulegri dagskrá eða eftir pöntun, jafnan fylgja tal eða texti á íslensku eftir því sem við á hverju sinni. Samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 29. gr. á þetta þó ekki við þegar fluttir eru erlendir söngtextar eða þegar dreift er viðstöðulaust um gervitungl og móttökustöð fréttum eða fréttatengdu efni sem sýnir að verulegu leyti atburði sem gerast í sömu andrá. Við þær aðstæður skal fjölmiðlaveita, eftir því sem kostur er, láta fylgja endursögn eða kynningu á íslensku á þeim atburðum sem orðið hafa, sbr. 3. málsl. 2. mgr. 29. gr"
Ég sendi póst til þeirra fyrir um 3 vikum og benti á þetta og fékk svar 4 dögum seinna þar sem þeir sögðu að um bilun væri að ræða og þetta ætti að vera komið í lag, í dag er það ekki komið! ég hef sent tvo pósta síðan en þeir eru greinilega orðnir leiðir á mér og svara ekki. En það er svo sem allt í lagi því ég ætla að hætta með allann þeirra pakka í haust og leita á ný mið.
Það er segin saga að þegar að fólk eða fyrirtæki halda að þau séu svo stór og góð að ekkert geti grandað þeim er oft komin tími til að hugsa sinn gang, það er engin svo stór og merkilegur að hann eða hún geti komið fram og valtað yfir neytandan og boðið honum hvað sem er, hvað þá svona rusldagskrá og verið hefur undanfarið ár!!
27.2.2009 | 22:17
Davíð og framtíðin
Nú er Davíð Oddson seðlabankastjóri stiginn af stóli og aðrir menn teknir við stjórn þar á bæ. Settur hefur verið norskur maður í þetta embætti til bráðabrigða, eða þar til annar verður fenginn til starfanns eftir "réttum" leiðum. Ég þekki Davíð ekki neitt frekar enn svo margir landsmenn. Margir hafa verið ósparir á gagnrýni á hans störf í þessu embætti, sumir á móti hans störfum og aðrir með. En eitt veit ég og það er náttúrulega mín persónulega skoðun, að hann er ákaflega vinalegur maður með gífurlega mikinn persónuleika og útgeislun að því er mér hefur fundist í gegnum tíðina, hafandi fylgst með hans störfum , allt frá því er ég fyrst fylgdist með honum og hans félögum,
Hrafni Gunnlaugsyni og þórarni Edjárn í Matthildi sem alþjóð veit að er meistarastykki !.
Davíð er eins og alltir vita vesturbæingur með meiru, og hefur stundum verslað við mig í minni verslun. Hann kemur sérlega vel fyrir og er mjög alþýðlegur maður sem heilsar öllum með sömu virktum hvort sem um er að ræða háttsetta menn í elítunni eða hin óbreytta almúga.
Ekki er ljóst hvað hann tekur sér fyrir hendur nú að loknu bankastjórastarfinu, en ég á von á að hann leggi höfuðið í bleyti og velti hinum ýmsu möguleikum fyrir sér, hvort sem hann leggist í ritstörf eða hreinlega fari aftur í stjórnmálinn, sem ég persónulega vona að hann geri.Fjölmiðlar | Breytt 28.2.2009 kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)